Tekjufallsstyrkir til ferðaþjónustunnar áætlaðir 3,5 milljarðar króna

Leið­sögu­menn og aðrir litlir rekstr­ar­að­ilar eiga rétt á að fá allt að 400 þús­und krónur á mán­uði í tekju­falls­styrki fyrir hvert stöðu­gildi í allt að 18 mán­uði. Kostn­aður vegna styrka til ferða­þjón­ustu hefur nú verið áætl­aður.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er ráðherra ferðamála.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er ráð­herra ferða­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Tekju­falls­styrkir sem rík­is­sjóður ætlar að greiða út til ein­yrkja og litla rekstr­ar­að­ila í ferða­þjón­ustu sem hafa orðið fyrir veru­legum tekju­missi vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins munu kosta allt að 3,5 millj­arða króna sam­kvæmt mati sem ráð­gjafa­fyr­ir­tækið KPMG vann fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið.

Tekju­falls­styrkjum er meðal ann­ars ætlað að styðja minni rekstr­ar­að­ila sem starfa í menn­ing­ar- og list­grein­um, ferða­leið­sögu­menn og aðra minni aðila í rekstri. Þetta er því ekki tæm­andi kostn­aður vegna þeirra heldur ein­ungis sá sem mögu­lega mun falla til vegna greiðslna til aðila í ferða­þjón­ustu.

[adspot]Frá þessu mati er greint í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Styrkirnir hafa þegar verið sam­þykktir í rík­is­stjórn og munu jafn­gilda rekstr­ar­kostn­aði (þ.m.t. reikn­uðu end­ur­gjaldi) á tíma­bil­inu frá 1. apríl 2020 til 30. sept­em­ber 2020 en geta þó ekki orðið hærri en 400 þús­und krónur fyrir hvert stöðu­gildi á mán­uði á tíma­bil­inu. Verði frum­varpið að lögum þurfa rekstr­ar­að­ilar að upp­fylla eft­ir­talin skil­yrði:

  • Að hafa orðið fyrir minnst 50 pró­sent tekju­falli á tíma­bil­inu frá 1. apríl til 30. sept­em­ber 2020.
  • Að hámarki þrír launa­menn starfi hjá rekstr­ar­að­ila.
  • Umsækj­endur þurfa að auki að upp­fylla skil­yrði um skatt­skyldu á Íslandi, lág­marks­veltu, skil­vísi á opin­berum gjöldum og gögnum til Skatts­ins og áfram­hald­andi rekstur.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að tekju­fall­styrkir til ferða­þjón­ustu geti orðið allt að 3,5 millj­arðar króna ef öll fyr­ir­tæki nýta sér þá. Upphæðin mið­ast við að öll félög upp­fylli skil­yrðin um minnst 50 pró­sent tekju­fall fyrir nýt­ingu úrræð­is­ins. Þannig getur hámarks­styrkur til hvers fyr­ir­tækis numið 1,2 millj­ónum króna á mán­uði í þá sex mán­uði sem gert er ráð fyrir að úrræðið gildi, eða alls 7,2 millj­ónum króna.

Tekju­falls­styrkjum er meðal ann­ars ætlað að styðja minni rekstr­ar­að­ila sem starfa í menn­ing­ar- og list­grein­um, ferða­leið­sögu­menn og aðra minni aðila í rekstri.

80 pró­sent lista­manna orðið fyrir tekju­falli

BHM greindi frá fyrr í mán­uð­inum að um 80 pró­sent svar­enda í könnun sem félagið gerði nýlega meðal lista­manna hefðu orðið fyrir tekju­falli vegna COVID-krepp­unn­ar. Þeir munu líka geta sótt um tekju­falls­styrki líkt og minni aðilar og ein­yrkjar í ferða­þjón­ustu, eins og t.d. leið­sögu­menn. Ekki liggur fyrir mat á hversu mikið það muni kosta rík­is­sjóð.

„Helm­ingur þeirra hefur horft upp á tekjur sínar minnka um meira en 50 pró­sent milli ára og tæp­lega fimmt­ungur um á bil­inu 75 til 100 pró­sent, sem jafna má til algers tekju­hruns. Tekjur meiri­hluta svar­enda eru nú undir fram­færslu­við­miði og um helm­ingur þeirra seg­ist eiga erfitt með að standa undir fjár­hags­legum skuld­bind­ingum sín­um. Ýmis­legt bendir þó til þess að núver­andi bóta­úr­ræði séu óað­gengi­leg og nýt­ist illa þessum hópi. Mörg ríki hafa valið að styðja fjár­hags­lega við bakið á lista­mönnum með sér­tækum aðgerðum en Ísland er ekki þar á með­al,“ sagði í til­kynn­ingu frá BHM fyrr í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár