Aflands- og álandsmarkaður með gjaldeyri rennur saman í eitt

Í sam­ráðs­gátt stjórn­valda hafa verið birt drög að nýjum heild­ar­lögum um gjald­eyr­is­mál. Verði þau sam­þykkt munu aflandskrónu­eig­endur ekki þurfa að losa fyrst eignir sínar úr landi til að geta fjár­fest á Íslandi.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur áform um að leggja fram frum­varp um ný heild­ar­lög um gjald­eyr­is­mál. Drög að frum­varp­inu hafa verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

[links]Á meðal þess sem þar kemur fram er að lög um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, og sett voru árið 2016, verða felld úr gildi. Þau lög settu sér­staka bindi­skyldu á skulda­bréfa­markað og hávaxtainn­stæður í íslenskum krónum sem hafði það mark­mið að koma í veg fyrir að krónu­eignir í eigu erlendra sjóða myndu flæða út úr land­inu eftir losun hafta. Bind­ing­ar­hlut­fallið var upp­haf­lega 40 pró­sent en var lækkað niður í 20 pró­sent í nóv­em­ber 2018, og loks fært niður í 0 pró­sent í mars 2019.

Eftir það gátu aflandskrónu­eig­endur losað um allar aflandskrónu­eignir sínar hér­lendis, en fyrir stærstan hóp þeirra felur sú losun í sér kaup á erlendum gjald­eyri sem hægt er að flytja á erlendan banka­reikn­ing. Þeir aflandskrónu­eig­endur sem vilja áfram fjár­festa hér á landi þurfa því að flytja gjald­eyri aftur til lands­ins og skipta í krónur til að fjár­festa á nýjan leik.

Í frum­varps­drög­unum segir að í því felist ein­hver við­skipta­kostn­aður. „Við brott­fall laga nr. 37/2016 verða engar tak­mark­anir á aflandskrónu­eignum eða ráð­stöfun þeirra og renna aflands- og álands­mark­aður því saman í einn markað.“

Seðlabankinn getur áfram sett höft

Til stendur að leggja frum­varpið fram í jan­úar næst­kom­andi. Til­gangur þess er, líkt og áður sagði, að setja ný heild­ar­lög um gjald­eyr­is­mál. Efni þess er að uppi­stöðu í sam­ræmi við efni gild­andi laga. Í sam­ráðs­gátt­inni kemur fram að fram­setn­ingin hafi þó verið tekin til gagn­gerar end­ur­skoð­unar „með það að mark­miði að lögin verði aðgengi­legri og hug­taka­notkun upp­færð til sam­ræmis við alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands og þá þróun sem hefur átt sér stað frá gild­is­töku núgild­andi laga.“

Í frum­varp­inu er lagt til að áréttuð verði meg­in­reglan um að gjald­eyr­is­við­skipti, fjár­magns­hreyf­ingar á milli landa og greiðslur á milli landa skuli vera frjáls, nema annað leiði af lögum. „Gert er ráð fyrir að grípa megi til ráð­staf­ana sem fela í sér und­an­tekn­ingar frá meg­in­regl­unni í þeim til­gangi að standa vörð um efna­hags­legan stöð­ug­leika eða fjár­mála­stöð­ug­leika. Í frum­varp­inu er að finna ákvæði sem lýsa þeim ráð­stöf­unum sem Seðla­bank­inn getur gripið til í því skyni að fyr­ir­byggja óstöð­ug­leika. Um er að ræða úrræði af tvennum toga: ann­ars vegar fyr­ir­byggj­andi stjórn­tæki á sviði þjóð­hags­var­úðar og hins vegar vernd­un­ar­ráð­staf­anir (höft) við sér­stakar aðstæður.“

Umsagn­ar­frestur þeirra sem vilja skila inn slíkum um drögin er til 13. nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Höft

FréttirHöft

Slita­stjórn Lands­bank­ans fram­lengir frest um viku

Slita­stjórn þrota­bús Lands­bank­ans hefur fram­lengt loka­dag­setn­ingu á frá­gangi sam­komu­lags milli sín og nýja Lands­bank­ans um leng­ingu á greiðslum af skulda­bréfi upp á þriðja hund­rað millj­arð króna sem nýi bank­inn skuldar þrota­bú­inu. Loka­frestur til að ganga frá sam­komu­lag­inu átti að vera í dag, en hefur nú verið frestað um viku, fram til 31. októ­ber 2014. Vænt­ingar kröfu­hafa Lands­bank­ans stóðu til þess...
SkýringHöft

Íslands­banki stað­festir vilja til að skrá bank­ann á markað erlendis

Eigendur Íslands­banka stefna að því að tví­skrá bank­ann á markað. Hluta­bréf bank­ans yrðu þá skráð á markað á Íslandi ann­ars vegar og annað hvort á mark­aði í Skand­in­avíu eða London hins vegar. Áður en af því verður þarf þó að liggja fyrir með hvaða hætti hægt verður að greiða arð til nýrra eig­enda, en fjár­magns­höftin hindra slíkar í dag. Þetta...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár