Bindiskyldan afnumin

Höft á fjár­magns­flutn­inga eru nú svo gott sem horfin.

Breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, sem Alþingi sam­þykkti nýverið tóku gildi í dag, en til stendur að afnema bindi­skyldu vegna nýs gjald­eyris frá 6. mars.

Seðla­bank­inn áformar að setja nýjar reglur um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyris og reglur um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum. Þar á meðal eru reglur sem fela í sér að lækkun bind­ing­ar­hlut­falls frá eldri reglum fer úr 20 pró­sent í 0 pres­ent.

Lækkun bind­ing­ar­hlut­falls­ins markar kafla­skil í beit­ingu hinnar sér­stöku bindi­skyldu á fjár­magnsinn­streymi á skulda­bréfa­markað og í hávaxtainn­stæður sem var sett á í júní 2016.

Með fram­an­greindum breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum er sér­stakur aflandskrónu­mark­aður ekki lengur til staðar og þau fjár­magns­höft sem inn­leidd voru í nóv­em­ber 2008 hafa nú nán­ast að öllu leyti verið losuð, segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Seðla­banka Íslands.

„Fyr­ir­huguð lækkun á bind­ing­ar­hlut­falli markar kafla­skil í beit­ingu hinnar sér­stöku bindi­skyldu á fjár­magnsinn­streymi á skulda­bréfa­markað og í hávaxtainn­stæður sem var sett á í júní 2016. Markmið hennar er að tempra og hafa áhrif á sam­setn­ingu inn­streymis erlends fjár­magns á inn­lendan skulda­bréfa­markað og hávaxtainn­stæður og að styrkja miðl­un­ar­ferli pen­inga­stefn­unnar. Bind­ing­ar­hlut­fallið var lækkað úr 40% í 20% í byrjun nóv­em­ber 2018. Nú hafa mynd­ast aðstæður til að lækka bind­ing­ar­hlut­fallið niður í 0% þar sem líkur á umtals­verðu inn­flæði sem leiddi til ofriss krón­unnar og alvar­legrar trufl­unar í miðl­un­ar­ferli pen­inga­stefn­unnar hafa minnkað mikið, a.m.k. um sinn. Nú eru fjár­magns­straumar til og frá land­inu í betra jafn­vægi en var þegar hin sér­staka bindi­skylda var upp­haf­lega sett á. Að und­an­förnu hefur verið útflæði á erlendum nýfjár­fest­ingum í skulda­bréfum.

Rétt er að vekja athygli á því að fram­an­greindar breyt­ingar munu leiða til þess að fjár­munir sem bundnir hafa verið á bind­ing­ar­reikn­ingum verða því lausir til ráð­stöf­unar, á sama hátt og þegar bind­ing­ar­hlut­fall var lækkað úr 40% í 20% í nóv­em­ber sl. Athygli er vakin á því að verði bind­ing­ar­hlut­fall hækkað í fram­tíð­inni eru hin nýsam­þykktu lög afdrátt­ar­laus um að bind­ing­ar­fjár­hæð hald­ist óbreytt út bind­ing­ar­tím­ann. Nýtt fyr­ir­komu­lag hinnar sér­stöku bindi­skyldu mun þó gera aðilum kleift að losa um bind­ing­una með við­skiptum á mark­aði.

Með fram­an­greindum breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum er sér­stakur aflandskrónu­mark­aður ekki lengur til staðar og þau fjár­magns­höft sem inn­leidd voru í nóv­em­ber 2008 hafa nú nán­ast að öllu leyti verið losuð. Eftir standa tak­mark­anir sem hafa það að meg­in­mark­miði að hin sér­staka bindi­skylda á fjár­magnsinn­streymi nái til­gangi sínum, þar á meðal tak­mark­anir á afleiðu­við­skiptum í öðrum til­gangi en til áhættu­varna. Þær tak­mark­anir verða skoð­aðar í tengslum við heild­ar­end­ur­skoðun laga um gjald­eyr­is­mál. Samhliða þarf að skoða var­an­legt fyr­ir­komu­lag hinnar sér­stöku bind­is­skyldu,“ segir í til­kynn­ingu Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár