Ekki takmark yfirvalda að meirihluti þjóðarinnar smitist af veirunni

Enn bendir allt til þess að innan við eitt pró­sent almenn­ings hér á landi hafi sýkst af COVID-19 og aðgerðir heil­brigð­is­yf­ir­valda séu að bera árangur. „Nú gildir að vera þol­in­móð, umburð­ar­lynd og sýna kær­leika,” segir Víðir Reyn­is­son.

„Það tekst ekki að halda far­aldri í skefjum nema að við vinnum saman,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn rík­is­lög­reglu­stjóra, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Þar var hann spurður um áhyggjur for­eldra af áhrifum tak­mark­ana á skóla­haldi á atvinnu. Hann benti á að nú væru margar vikur fram undan þar sem líf okkar verður ekki með hefð­bundnum hætti. „Ef allir gera eitt­hvað getum við saman gert mjög mikið.“

Ef atvinnu­rek­endur slök­uðu á mæt­ing­ar­kröfum myndi það skila mjög miklu í heild­ar­mynd­inni. Sagði Víðir að til mik­ils væri að vinna að kom­ast hjá því að loka öllu sam­fé­lag­inu.

Smit hafa nú greinst í þremur lands­hlutum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Veiran er því farin að láta á sér kræla ann­ars staðar sem kemur ekki á óvart, að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. 180 hafa nú greinst með veiruna hér á landi. Benti Þórólfur á að nýj­ustu tölur væru stöðugt upp­færðar á covid.is.

Rann­sóknir heil­brigð­is­yf­ir­valda sem og Íslenskrar erfða­grein­ingar benti til að ekki væri mikið sam­fél­gs­smit í gangi, „við vitum ekki hversu lengi það end­ist,“ sagði Þórólfur. Á 1-2 vikum gætu komið upp tals­vert fleiri smit en greinst hafa fram að þessu.

Sagði Þórólfur að enn væri ekki hægt að segja með mik­illi vissu hvernig far­ald­ur­inn kæmi til með að þró­ast en að ekki væri óraun­hæft að ætla að hann myndi fjara út í lok maí eða júní. Enn ætti þó eftir að fá gleggri mynd af ástand­inu svo hægt væri að áætla hvenær far­ald­ur­inn myndi ná hámarki.

„Við erum að skrítnum tímum, það er sam­komu­banni í gildi og röskun á sam­fé­lag­inu,“ sagði Víðir. „Það tekur tíma að aðlag­ast þessu nýja normi, þessum nýja raun­veru­leika. Nú gildir að vera þol­in­móð, umburð­ar­lynd og sýna kær­leika.“

Hvað er hjarðónæmi?

Þórólfur ræddi sér­stak­lega um hug­takið hjarð­ó­næmi og sagði það komið úr bólu­setn­inga­fræðum. Það væri mæli­kvarði á hversu marga þyrftu að bólu­setja til að skapa ónæmi í sam­fé­lagi ef veira kemur upp svo hún næði ekki að þríf­ast og verða að far­aldri. Hann sagði að hægt væri að reikna út stuðul hjarð­ó­næmis og að miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um nýju kór­ónu­veiruna þyrfti að bólu­setja um 60 til 70 pró­sent manna til að vernda þjóð­ina. Ekkert bólu­efni er hins vegar til. „Þetta þýðir ekki að það sé okkar tak­mark að svo margir sýk­ist af veirunni,“ sagði Þórólfur með áherslu. „Okkar mark­mið er að tak­marka útbreiðsl­una og hægja á henni.“ Ekki væri vitað hversu margir kæmu til með að sýkj­ast, „von­andi sem fæstir og þá sér­stak­lega úr þessum við­kvæmu hópum.“

Spurður hvort að fólk ætti að hætta við að fara í til dæmis klipp­ingu sagði Þórólfur að hver og einn þyrfti að vega og meta það, sér­stak­lega þeir sem eru í áhættu­hópum. Almenn­ingur ætti ekki endi­lega að sleppa því. Í sumum löndum hefur börum og hár­greiðslu­stofum verið lokað, svo dæmi séu tekin. „Við getum hugs­an­lega þurft að grípa til harð­ari aðgerða ef far­ald­ur­inn ætlar að þró­ast á rangan máta. Við getum hugs­an­lega gert ákveðnar til­slak­anir ef allt virkar vel í sam­ræmi við okkar áhættu­mat.“

Alma Möller land­læknir sagði að mikið mæddi nú á starfs­mönnum Land­spít­al­ans en að þar væri þó engan bil­bug að finna. Verið væri að und­ir­búa spít­al­ann fyrir það að taka á móti fleiri sjúk­lingum með COVID-19 en einnig þyrfti að tryggja að önnur nauð­syn­leg þjón­usta væri veitt. Aðeins þrjár skurð­stofur af átta væru nú í notkun.

Á fund­inum var einnig Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó bs. Í máli hans kom fram að ákveðið hefði verið að ráð­ast í aðgerðir til að hefta útbreiðslu COVID-19. Frá og með deg­inum í dag hafa fram­dyr allra stræt­is­vagna verið lok­aðar og far­þegar beðnir um að ganga inn um mið- eða aft­ari dyr á vögn­unum.

Þá eru far­þegar hvattir að greiða far­gjöld með strætókorti eða strætó­appi, og halda korti eða síma á lofti í átt að vagn­stjór­anum, en ganga ekki fram í vagn­inn til að stað­festa far­gjald við vagn­stjóra. Þeir við­skipta­vinir sem greiða með pen­ingum eða strætómiðum geta þó gengið fram í vagn­inn til að greiða far­gjaldið.

Nítján jákvæð sýni

Starfs­fólk Íslenskrar erfða­grein­ingar er búið að taka 3.087 sýni í Þjón­ustu­mið­stöð rann­sókna­verk­efna í Turninum í Kópavogi. Þegar greind hafa verið 1.800 sýni hafa fund­ist 19 jákvæð. Enn bendir því allt til þess að innan við eitt pró­sent almenn­ings hafi sýkst af COVID-19 og aðgerðir heil­brigð­is­yf­ir­valda séu að bera árangur, þar sem nýja kór­ónu­veiran sé ekki orðin mjög útbreidd meðal almenn­ings.

Gert er ráð fyrir að um þús­und nið­ur­stöður til við­bótar verði til­búnar í kvöld, og greind sýni verði þá alls 2800.

Alls hafa rúm­lega 14.000 manns skráð sig í skimun fram til 27. mars. Annars slagið losna tímar eftir því sem afbók­anir ber­ast. Hægt er að fylgj­ast með hvort það eru lausir tímar á bokun.rannsokn.is.

Þrjú jákvæð sýni hafa þegar verið rað­greind, upp­runi eins þeirra er úr mann­eskju sem var að koma frá vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna og er af teg­und­inni S sem er upp­runa­lega veiran frá Asíu. Hin sýnin reynd­ust lít­il­lega stökk­breytt og af gerð­inni L, sem er algeng­ari í Evrópu.

Von er á 100 sýnum til við­bótar úr rað­grein­ingu á morgun.

Tæplega 170 þús­und manns hafa nú greinst með veiruna í 148 löndum heims­ins. Yfir 6.500 hafa lát­ist, flestir í Kína, á Ítalíu og í Íran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár