Hlutabótaleiðin framlengd út maí

Ein stærsta mót­væg­is­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar við krepp­unni hefur verið fram­lengd og geta því starfs­menn í tíma­bundið skertu starfs­hlut­falli fengið atvinnu­leys­is­bætur til og með 31. maí.

Stjórn­völd hafa ákveðið að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, sem felur í sér rétt til greiðslu atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­enda, til og með 31. maí. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef félags­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrr í dag.

Ef kostn­aður vegna almennra atvinnu­leys­is­bóta er frá tal­inn er hluta­bóta­leiðin lang­dýrasta aðgerðin sem stjórn­völd hafa ráð­ist í til þess að bregð­ast við efna­hag­skrepp­unni sem fylgdi heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar. Samkvæmt upp­lýs­inga­síðu stjórn­ar­ráðs­ins var búist við að 34 millj­örðum króna yrði varið í greiðslu hluta­bóta í fyrra, en alls hefur rúmur 21 millj­arður verið greiddur úr rík­is­sjóði vegna úrræð­is­ins.

Fjöldi starfs­manna á hluta­bótum náði hámarki í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vor, en í maí fengu tæp 33 þús­und manns greitt vegna skerts starfs­hlut­falls. Mán­að­ar­legur fjöldi minnk­aði þó hratt í sumar og náði að með­al­tali aðeins rúmum þremur þús­undum yfir júlí, ágúst og sept­em­ber.

Á síð­ustu þremur mán­uðum hefur fólki á hluta­bótum þó fjölgað aftur, en þá hefur að með­al­tali fimm þús­und manns nýtt sér úrræðið. Þróunina má sjá hér að neðan, en í des­em­ber fengu 5.450 ein­stak­lingar hluta­bætur.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá félags­mála­ráðu­neyt­inu munu atvinnu­leit­endur fá greidd 6% af grunnatvinnu­leys­is­bótum með hverju barni til og með 31. des­em­ber 2021 en áður gilti úrræðið til 31. des­em­ber 2020.

Áætlaður heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna breyt­ing­anna er 6,7 millj­arðar kr. Þar af fara 6 millj­arðar króna í fram­leng­ingu á hluta­bóta­leið­inni og 700 millj­ónir króna í fram­leng­ingu á hækkun á greiðslum til atvinnu­leit­enda vegna barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár