Búið að endurgreiða um tólf milljarða króna vegna „Allir vinna“

Ein af neyð­ar­að­gerðum stjórn­valda vegna COVID-19 var að hækka end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti af vinnu ýmissa iðn­að­ar­manna úr 60 í 100 pró­sent. Það hefur skilað því að end­ur­greiðslu­um­sóknir hafa meira en fjór­fald­ast.

Eftirspurn eftir vinnu iðnaðarmanna hefur aukist vegna hækkunar á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts af vinnu þeirra.
Eft­ir­spurn eftir vinnu iðn­að­ar­manna hefur auk­ist vegna hækk­unar á end­ur­greiðslu­hlut­falli virð­is­auka­skatts af vinnu þeirra. Mynd: Bára Huld Beck

Meðal þeirra ráð­staf­ana sem stjórn­völd gripu til í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins var að hækka end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts tíma­bundið úr 60 pró­sentum upp í 100 pró­sent vegna ofan­greinds. Sú hækkun gildir sem stendur frá 1. mars og út þetta ár og það hefur skilað þess­ari miklu aukn­ingu á end­ur­greiðslum.

Þetta felur í sér að virð­is­auka­skattur af vinnu iðn­að­ar­manna er í raun afnumin tíma­bundið, og hún verður þar af leið­andi mun ódýr­ari að kaupa án þess að það hafi áhrif á tekjur iðn­að­ar­manna. Sá aðili sem gefur eftir tekj­urnar er rík­is­sjóður.

Hann hefur end­ur­greitt alls ríf­lega tólf millj­arða króna vegna end­ur­greiðslu­beiðna á virð­is­auka­skatti vegna nýbygg­ingar eða end­ur­bóta á íbúð­ar­hús­næði, bíla­við­gerða, heim­il­is­hjálpar eða -þrifa það sem af er ári.

[adspot]Frá þessu er greint á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þar sem reglu­lega eru birtar upp­færðar tölur yfir stöðu þeirra efna­hags­að­gerða sem gripið var til vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Fjórfaldast milli ára

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að frá því í jan­úar 2020 hafi borist rúm­lega 18.500 end­ur­greiðslu­beiðnir vegna allra end­ur­greiðslu­þátta. Í fyrra hafi 6.340 end­ur­greiðslu­beiðnir borist Skatt­inum frá 1. jan­úar út ágúst.

Ef litið var til þrengra tíma­bils, þá hafði Skatt­inum borist rúm­lega 14 þús­und umsóknir um end­ur­greiðslur af ýmsu tagi frá því í maí. Í fyrra nam fjöldi end­ur­greiðslu­beiðna frá maí til og með ágúst um 3.500. Fjöldi umsókna hafði því fjór­fald­ast á milli ára á tíma­bil­inu. Allt bendir til þess að sú aukn­ing hafi haldið áfram í sept­em­ber.

[links]Umsóknum frá ein­stak­lingum vegna end­ur­bóta á íbúð­ar­hús­næði hefur fjölgað mest, og eru kostn­að­ar­samastar. Í ágúst­lok hafði Skatt­inum borist um 12 þús­und slíkar umsóknir frá upp­hafi árs, og þar af um átta þús­und frá 1. maí síð­ast­liðnum. Vegna heim­il­is­að­stoðar og reglu­legrar umhirðu hús­næðis hafa Skatt­inum nú borist rúm­lega eitt þús­und umsóknir. Vegna bíla­við­gerða hafa borist um 4.900 end­ur­greiðslu­um­sóknir.

Vert er að taka fram að end­ur­greiðslu­beiðni getur verið vegna verks sem fram­kvæmt var á síð­asta ári, þótt hún ber­ist í ár. Einungis þau verk sem fram­kvæmd eru eftir 1. mars njóta 100 pró­sent end­ur­greiðslu.

Vill að úrræðið sé framlengt

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, sagði í við­tali við Kjarnann sem birt­ist í síð­ustu viku að átakið, sem gengur alla jafna undir nafn­inu „Allir vinna“, hafi verið ein­stak­lega vel heppnað. „Það dregur úr svartri atvinnu­starf­semi sem er mjög jákvætt og skapar hvata til umsvifa. Þetta hefur sann­ar­lega skilað góðum árangri, við finnum það á sam­tölum við okkar félags­menn að það er mjög mikið að gera – það er mjög mikið að gera til ára­móta, þegar úrræðið fellur úr gildi.“

Hann sagði það blasa við að það yrði að fram­lengja úrræði „að minnsta kosti út næsta ár ef vel á að vera.“

Sigurður sagð­ist þó hafa skiln­ing á því að stjórn­völd hafi ákveðið að hafa úrræðið svona tíma­bundið til að byrja með, til að skapa rétta hvata til að ráð­ast í fram­kvæmdir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár