Mynd: Bára Huld Beck

„Komufarþegar munu átta sig á því hvar Davíð getur keypt ódýrara öl og versla áfengið á brottfararflugvelli“

Ferða­þjón­ustan og hags­muna­verðir hennar gagn­rýna fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp á ýmsan hátt og telja hækkun gjalda á áfengi, tóbak og elds­neyti muni draga úr getu Íslands til að keppa um ferða­menn.

Aðilar í ferða­þjón­ustu, og hags­muna­verðir þeirra, gera marg­hátt­aðar athuga­semdir við áform rík­is­stjórn­ar­innar um að leggja á svo­kallað vara­flug­valla­gjald, sem á að skila 1,4 millj­arði króna í nýjar tekjur á næsta ári, og hækk­anir á áfengis-, tóbaks- og elds­neyt­is­gjöldum sem dragi úr sam­keppn­is­hæfni Íslands í bar­átt­unni um ferða­menn.

Þá telja ýmsir innan ferða­þjón­ust­unnar að hækkun á álögum á áfengi og tóbak í frí­höfn­inni muni gera það að verkum að tekju­öflun á Kefla­vík­ur­flug­velli drag­ist saman og salan á þessum vörum muni þess í stað fær­ast í auknum mæli yfir til frí­hafna á brott­far­ar­flug­velli. Áætlanir um að þessar hækk­anir muni skila 700 millj­ónum króna í við­bót­ar­tekjur fyrir rík­is­sjóð séu því óraun­hæfar.

Þetta má lesa úr umsögnum sem skilað hefur verið inn um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp.

Mikil óánægja með varaflugvallargjald

Isavia, rík­is­fyr­ir­tækið sem rekur Kefla­vík­ur­flug­völl og aðra flug­velli á land­inu, segir í umsögn sinni að það komi ekki fram í frum­varp­inu hvernig eigi að ráð­stafa þeim 1,4 millj­arði króna sem á að inn­heimta af nýju vara­flug­vall­ar­gjaldi. Þá sé ekki að sjá í frum­varp­inu að útgjöld til flug­valla eigi að aukast í takti við þessar nýju tekjur og bendir á að Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hafi áður gert ríkið aft­ur­reka með skatt­lagn­ingu vegna vara­flug­vall­ar­gjalds.

Isavia segir rann­sóknir sýna að tíu pró­sent aukn­ing flug­teng­inga til og frá land­inu auki hag­vöxt til fram­tíðar um 0,5 pró­sentu­stig. „með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á flug­rek­endur), draga úr þjón­ustu eða fresta fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þá mun hækkun á gjöldum í frí­höfn­inni fela í sér meiri flutn­ing toll­frjáls varn­ings í far­þega­rými til Íslands sem er mjög nei­kvæð þróun. Þetta mun í fyrsta lagi auka þyngd flug­véla og kolefn­is­spor og í öðru lagi auka umfang hand­far­ang­urs sem nú þegar skapar vanda­mál. Síðasta sumar var tveggja ára ferða­þörf að leys­ast úr læð­ingi og margir höfðu safnað upp ferða­sjóðum á tíma Covid-19 far­ald­urs­ins. Þetta verður ekki staðan á næsta ári enda hafa ferða­sjóðir verið tæmdir og verð­bólga mikil á öllum mörk­uðum. Það væri því væn­legra fyrir rík­is­sjóðs að lækka frekar gjöld sem snúa að ferða­mönnum og auka þar með eft­ir­spurn eftir ferða­lögum til Íslands. Í ljósi alls ofan­greinds telur Icelandair að hækk­anir á þeim gjöldum sem um ræðir muni ekki skila sér í auknum tekjum til rík­is­sjóðs enda eru hækk­an­irnar til þess fallnar að draga úr eft­ir­spurn. Þær munu hafa nei­kvæð áhrif til langs tíma.“

Í umsögn Icelandair Group, sem skrifuð er af Boga Nils Bogasyni for­stjóra, segir að verði farin sú leið að leggja á sér­stakt vara­flug­valla­gjald vegna allra flug­ferða til og frá Íslandi sé ljóst að slík gjald­taka hefði veru­leg nei­kvæð áhrif á Icelandair og aðra íslenska flug­rek­endur. Gjaldið myndi skaða sam­keppn­is­hæfni þeirra á mark­aði fyrir flug milli Evrópu og Norður-Ameríku. Icelandair ítreki „mik­il­vægi þess að íslenskir flug­rek­endur verði ekki látnir bera kostn­að­inn af upp­bygg­ingu flug­valla utan Kefla­vík­ur­flug­vallar og að nauð­syn­legri upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli verði haldið áfram.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. Mynd: RÚV/Skjáskot
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group. Mynd: RÚV/Skjáskot

Samtök ferða­þjón­ust­unnar (SAF) eru á svip­uðu slóðum í sinni umsögn. Þar segir að sam­tökin gjaldi „var­hug við því að sett sé fram upp­hæðin 1,4 ma.kr. í slíka inn­heimtu án þess að búið sé að ganga úr skugga um fyr­ir­komu­lagið og hvort það sé yfir­höfuð lög­legt. Fyr­ir­hugað er að leggja fram frum­varp um málið í haust og ekki er tryggt að það verði afgreitt.“

Þegar dýrt Ísland verði enn dýrara

For­stjóri Icelandair eyðir einnig miklu púðri í að gagn­rýna hækk­aði á ýmsum gjöldum sem renna til rík­is­ins, til að mynda áfeng­is­gjalds, tóbaks­gjalds og elds­neyt­is­gjalds, sem öll eigi það sam­eig­in­legt að hafa áhrif á ferða­menn. „Ljóst er að ferða­menn á Íslandi munu finna fyrir hækkun þess­ara gjalda í formi hærra verð­lags og mun Ísland því verða enn dýr­ari áfanga­staður en ella. Þetta er til þess fallið að draga úr sam­keppn­is­hæfni Íslands sem ferða­manna­staðar enda hefur landið nú þegar orð á sér fyrir hátt verð­lag sem er letj­andi fyrir ferða­menn þegar kemur að skipu­lagn­ingu ferða­laga til Íslands.“

Þótt Icelandair skilji þá afstöðu stjórn­valda að sækja þurfi tekjur frá ferða­mönnum í því skyni að tryggja upp­bygg­ingu inn­viða í ferða­þjón­ustu þá muni slík skatt­heimta snú­ast upp í and­hverfu sína ef hún verði til þess að skerða sam­keppn­is­hæfni Íslands sem ferða­manna­staðar og þar með skila færri ferða­mönnum til lands­ins. „Þrátt fyrir að um sé að ræða vel efn­aða ferða­menn þá er fljótt að spyrj­ast út ef verð­lag á Íslandi er með þeim hætti að verð séu langt umfram gæði. Ef ferða­menn þurfa til að mynda að yfir­borga fyrir mál­tíðir og bíla­leigu­bíla þá verða aðrir áfanga­staðir fljótt meira aðlað­andi. Auðvelt er að sýna fram á að nú þegar eru tekjur rík­is­ins af ferða­mönnum með óbeinum sköttum og auk­inni veltu í hag­kerf­inu langt umfram kostnað við við­hald og styrk­ingu nauð­syn­legra inn­viða. Þarna eru vara­flug­vellir ekki und­an­skildir.“

SAF segir að miðað við aðrar Evr­ópu­þjóðir séu skattar á áfengi og tóbak með þeim hæstu hér á landi. Það hafi nú þegar ýmis nei­kvæð áhrif á eft­ir­spurn í íslenskri ferða­þjón­ustu. „Það er ljóst að fyr­ir­huguð skatta­hækkun mun gera áfanga­stað­inn Ísland að enn dýr­ari áfanga­stað og munu ferða­menn líkt og lands­menn finna vel fyrir hækk­un­inni sem mun draga úr sam­keppn­is­hæfni íslenskrar ferða­þjón­ustu.“

Farþegar klyfjaðir áfengi munu þyngja vélarnar

Áform um að hækka álagn­ingu á áfengi og tóbak sem selt er í frí­höfn Kefla­vík­ur­flug­vallar er líka þyrnir í augum ferða­þjón­ust­unnar og hags­muna­varða hennar, en til stendur að hækka áfeng­is­gjald sem lagt er á söl­una úr 10 í 25 pró­sent og tóbaks­gjaldið úr 40 í 50 pró­sent.

Í umsögn Icelandair segir að afleið­ing þess­ara hækk­ana verði ósam­keppn­is­hæft verð­lag og því sé lík­legt að salan muni fær­ast í auknum mæli yfir til frí­hafna á brott­far­ar­flug­völlum. „Þessi tekju­skerð­ing hjá Isavia mun fyr­ir­sjá­an­lega leiða til þess að hækka þurfi flug­tengdar tekjur (sem myndi leggj­ast á far­þega með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á flug­rek­endur), draga úr þjón­ustu eða fresta fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þá mun hækkun á gjöldum í frí­höfn­inni fela í sér meiri flutn­ing toll­frjáls varn­ings í far­þega­rými til Íslands sem er mjög nei­kvæð þróun. Þetta mun í fyrsta lagi auka þyngd flug­véla og kolefn­is­spor og í öðru lagi auka umfang hand­far­ang­urs sem nú þegar skapar vanda­mál.“

Síðasta sumar hafi tveggja ára ferða­þörf verið að leys­ast úr læð­ingi og margir hafi safnað upp ferða­sjóðum á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. „Þetta verður ekki staðan á næsta ári enda hafa ferða­sjóðir verið tæmdir og verð­bólga mikil á öllum mörk­uðum. Það væri því væn­legra fyrir rík­is­sjóðs að lækka frekar gjöld sem snúa að ferða­mönnum og auka þar með eft­ir­spurn eftir ferða­lögum til Íslands. Í ljósi alls ofan­greinds telur Icelandair að hækk­anir á þeim gjöldum sem um ræðir muni ekki skila sér í auknum tekjum til rík­is­sjóðs enda eru hækk­an­irnar til þess fallnar að draga úr eft­ir­spurn. Þær munu hafa nei­kvæð áhrif til langs tíma.“

SF mót­mælir einnig hækk­unum á gjöldum á áfengi og tóbak í frí­höfn­inni, sem ætlað er að skili 700 millj­ónum króna í nýjar tekjur fyrir rík­is­sjóð. „Samtökin telja að ef fyr­ir­huguð hækkun standi þá muni verslun með þær vörur fær­ast úr landi og sala í frí­höfn drag­ast saman og leiða til tekju­skerð­ingar hjá Isavia. Því munu fyr­ir­hug­aðar tekjur af hækk­un­inni skila sér að litlu leyti. Komu­far­þegar munu átta sig á því hvar Davíð getur keypt ódýr­ara öl og versla áfengið á brott­far­ar­flug­velli. Komi far­þegar í flug­vél­arnar klyfj­aðir af áfengi mun það þyngja vél­arnar, auka óhag­kvæmi og hækka kolefn­is­spor, þvert gegn við­leitni flug­fé­laga und­an­farið til að létta vél­arnar.“

Við­skipta­ráð leggur líka orð í belg um þessa hækkun í sinni umsögn um fjár­laga­frum­varpið og seg­ist telja „mjög hæpið að tekjur rík­is­sjóðs Íslands muni aukast sem nokkru nemur vegna þessa. Verð á mörgum vöru­teg­undum í þessum flokkum mun að óbreyttu verða umtals­vert hærra en í frí­hafn­ar­versl­unum erlendis. Neyt­endur munu að öllum lík­indum bregð­ast við þessum hækk­unum og verslun með áfengi- og tóbak í frí­hafn­ar­versl­unum mun því senni­lega flytj­ast úr landi í auknum mæli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár