Ný lagagrein „skref í átt að lögregluríki“

Með nýrri grein í frum­varpi að útlend­inga­lögum um að hægt sé að skylda útlend­inga í lækn­is­rann­sókn er „verið að nota heil­brigð­is­starfs­fólk í póli­tískum til­gangi til að brjóta mann­rétt­indi jað­ar­setts hóps,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ingur og aðjúnkt.

Með því að þvinga flótta­fólk og hæl­is­leit­endur til að gang­ast undir heil­brigð­is­rann­sóknir er gefið til kynna að til sé heil­brigð­is­starfs­fólk sem getur hugsað sér að vald­beita ein­stak­ling í þessum við­kvæma hópi, skrifar Anna Kristín B. Jóhann­es­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og aðjúnkt, í umsögn um drög að nýjum útlend­inga­lögum sem kynnt voru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Anna Kristín er í hópi nokk­urra þeirra 22 ein­stak­linga og sam­taka sem gáfu umsögn við drögin er gera sér­stak­lega athuga­semd við nýja grein í frum­varp­inu sem „vegur að frið­helgi þess­ara ein­stak­linga að ráða yfir lík­ama sínum og hvaða heil­brigð­is­rann­sóknir þeir gang­ast undir,“ líkt og Anna Kristín orðar það. Um er að ræða 19. grein frum­varps­ins sem felur í sér að lög­reglu sé heim­ilt að skylda útlend­ing til að gang­ast undir heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn „ef nauð­syn­legt þykir til að tryggja fram­kvæmd þegar tekin hefur verið ákvörðun um að hann skuli yfir­gefa landið“.

[adspot]

Í frum­varps­drög­unum segir að með heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn sé átt við „mat á ein­stak­lingi sem við­ur­kenndur heil­brigð­is­starfs­maður fram­kvæmir eða annar aðili sem er til þess bær að ákvarða heil­brigð­is­á­stand við­kom­andi m.a. til að meta hvort hann sé nægi­lega hraustur til að geta ferð­ast eða skapi hugs­an­lega hættu fyrir heil­brigði ann­ars fólks“.

Skoðunin geti náð yfir athugun heil­brigð­is­skjala og lík­ams­skoðun, s.s. með töku blóð- og þvag­sýna og önnur líf­sýni úr við­kom­andi og rann­saka þau, „svo og að fram­kvæma á honum aðra þá lík­ams­rann­sókn sem þörf er á til að tryggja fram­kvæmd ákvörð­unar og gerð verður honum að meina­lausu“. Neiti útlend­ingur að und­ir­gang­ast heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn er lög­reglu heim­ilt að bera kröfu um skyld­una fyrir dóm­ara.

[links]„Ef þetta gengur í gegn í þessu frum­varpi tel ég það mjög hættu­legt for­dæmi og með því væri íslenska ríkið að nota heil­brigð­is­starfs­fólk í póli­tískum til­gangi til þess að brjóta mann­rétt­indi jað­ar­setts hóps,“ skrifar Anna Kristín í umsögn­inni. „Einnig opnar frum­varpið á þann mögu­leika að heil­brigð­is­starfs­fólk eigi að fram­vísa trún­að­ar­upp­lýs­ingum um ein­stak­ling­ana til lög­regl­unnar. Það er gíf­ur­lega alvar­legt og brýtur ekki ein­ungis á rétt­indum flótta­fólks til óháðrar heil­brigð­is­þjón­ustu heldur brýtur það í bága við skyldur heil­brigð­is­starfs­fólks sem eiga að vera málsvarar sinna skjól­stæð­inga, líkna þá og lækna. Heil­brigð­is­starfs­fólk á ekki að vera sett í þá stöðu að fram­fylgja landamæra­stefnu íslenska rík­is­ins en ef þetta frum­varp gengur í gegn verður það sann­ar­lega sorg­leg og hættu­leg þróun.“

Vegið „harkalega“ að grundvallarrétti fólks

Marta Jóns Hjör­dís­ar­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur minnir í umsögn sinni á að fólk á flótta og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sé „einn af okkar við­kvæm­ustu sam­fé­lags­hópum. Í þessu frum­varpi er vegið harka­lega að grund­vallar rétti þeirra til öruggrar heil­brigð­is­þjón­ustu“.

Hún skrifar að sjúk­lingur eigi rétt á þjón­ustu sem mið­ast við ástand hans og horfur á hverjum tíma, byggt á bestu þekk­ingu sem völ er á. Vitnar hún í lög um rétt­indi sjúk­linga þar sem segi: „Virða skal rétt sjúk­lings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur með­ferð… enga með­ferð má fram­kvæma án sam­þykk­ist sjúk­lings“.

Í fyr­ir­liggj­andi frum­varpi sé lög­reglu hins vegar gefin heim­ild til að „neyða sjúk­linga til að gang­ast undir heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn. Það hlýtur að stang­ast á við rétt sjúk­lings um að ákveða sjálfur hvort hann þiggur með­ferð“.

Þá sé einnig ætl­unin með frum­varp­inu að tryggja lög­reglu heim­ild til að afla heilsu­fars­upp­lýs­inga frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum og „neyða heil­brigð­is­starfs­fólk til að afhenda slíkar upp­lýs­ingar“.

Marta bendir á að í siða­reglum hjúkr­un­ar­fræð­inga er hjúkr­un­ar­fræð­ingi gert skylt að hafa sam­ráð við skjól­stæð­ing sinn og virða rétt hans til að taka ákvarð­anir um eigin með­ferð auk þess sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur standi vörð um rétt­indi skjól­stæð­ings til einka­lífs og gætir trún­aðar og þag­mælsku. „Verði þetta frum­varp að lögum vegur það harka­lega að rétti fólks á flótta til grunn heil­brigð­is­þjón­ustu,“ skrifar hún. „Ég tel það vera skyldu okkar að byggja lagaum­hverfi okkar upp þannig að það þjóni okkar við­kvæm­ustu sam­fé­lags­hópum á sem bestan hátt.

Við eigum öll skilið gott aðgengi að bestu mögu­legu heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Heimilislækni misboðið

Pétri Heim­is­syni heim­il­is­lækni finnst inni­hald þess­arar til­teknu greinar frum­varps­ins „and­stætt og mis­bjóða ýmsu því sem ég hef sem heil­brigð­is­starfs­maður, læknir í ára­tugi átt að venj­ast“. Hann telur of langt gengið í að þvinga fólk til að sæta rann­sókn „og svo mjög að erfitt geti orðið fyrir heil­brigð­is­fag­fólk að sinna verk­beiðnum sam­kvæmt þessu enda geti slíkt verið and­stætt siða­reglum við­kom­andi“.

Hann segir í umsögn sinni að engu lík­ara sé þó en að í frum­varp­inu sé einmitt fyrir því hugsað með eft­ir­far­andi setn­ing­ar­hluta: „Með heil­brigð­is­skoðun og lækn­is­rann­sókn er átt við mat á ein­stak­lingi sem við­ur­kenndur heil­brigð­is­starfs­maður fram­kvæmir eða annar aðili sem er til þess bær að ákvarða heil­brigð­is­á­stand við­kom­andi....“

„Þessi opnun á að annar en „við­ur­kenndur heil­brigð­is­starfs­maður“ ann­ist skoðun/rann­sókn er að mati Péturs „sér­lega alvar­leg“ í ljósi þess hvað um skoð­un­ina sjálfa segir í frum­varp­inu: „Skoðunin getur náð yfir athugun heil­brigð­is­skjala sem og lík­ams­skoðun eftir því sem rétt­læt­an­legt er miðað við aðstæður í hverju til­viki, s.s. með töku blóð- og þvag­sýna og önnur líf­sýni úr við­kom­andi og rann­saka þau, svo og að fram­kvæma á honum aðra þá lík­ams­rann­sókn sem þörf er á til að tryggja fram­kvæmd ákvörð­unar og gerð verður honum að meina­lausu.“

Pétri finnst „andi þess­arar greinar í and­stöðu við mann­virð­ingu og mennsk­una sjálfa og í raun vera skref í átt að lög­reglu­ríki“.

Víðtækt inngrip í friðhelgi einkalífsins

Rauði kross Íslands skil­aði ítar­legri umsögn um frum­varps­drögin, m.a. um hina umdeildu 19. grein. Hvað skyldu útlend­ings til að und­ir­gang­ast heil­brigð­is­skoðun eða lækn­is­rann­sókn varðar bendir Rauði kross­inn á að slíkt feli í sér „víð­tækt inn­grip í frið­helgi einka­lífs fólks“ og þurfa að mati sam­tak­anna ákveðin skil­yrði því að vera upp­fyllt svo laga­setn­ing sem þessi stand­ist stjórn­ar­skrá og alþjóða­skuld­bind­ingar.

„Þegar grein­ar­gerð við frum­varpið er skoðuð telur Rauði kross­inn ljóst að mark­miðið með því að skylda ein­stak­linga í lík­ams­rann­sókn og/eða heil­brigð­is­skoðun fellur ekki undir þau mark­mið sem stjórn­ar­skrá og mann­rétt­inda­sátt­máli Evrópu telja lög­mæt [...] Mark­miðið virð­ist vera að unnt sé að vísa ein­stak­lingum úr landi á sem skil­virkastan hátt eftir að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar eða úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála liggur fyrir. Fær Rauði kross­inn ekki séð að það mark­mið eitt og sér geti talist lög­mætt enda ekki nauð­syn­legt vegna þjóðar­ör­yggis, almanna­heilla eða efna­hags­legrar far­sældar þjóð­ar­innar, til þess að firra glund­roða eða glæpum, til verndar heilsu manna, sið­gæði eða rétt­indum og frelsi ann­arra.“

COVID-19 er tímabundið ástand

Tak­mark­anir á mann­rétt­indum mega ekki ganga lengra en nauð­syn­legt er svo að mark­mið þeirra náist, segir RKÍ í umsögn sinni. Tak­mark­anir þurfa að vera í sam­ræmi við með­al­hófs­reglu.

Í athuga­semdum við frum­varpið kemur fram að við und­ir­bún­ing og gerð þess hafi sér­stak­lega verið litið til þess hvort önnur væg­ari úrræði væru tæk. Í þessu sam­bandi er sér­stak­lega fjallað um þær áskor­anir að útlend­ingar, sem fengið hafa synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd, neiti að und­ir­gang­ast PCR-sýna­töku og komi þannig í veg fyrir fram­kvæmd flutn­ings.

Segir í frum­varp­inu að þrjár leiðir hafi verið kann­aðar en að mati frum­varps­höf­unda nái engin þeirra því mark­miði sem stefnt væri að og því sé nauð­syn­legt að kveða á um skyldu útlend­ings til þess að gang­ast undir sýna­töku, með lög­reglu­valdi ef þörf krefur.

Hvað PCR-próf varðar sér­stak­lega bendir Rauði kross­inn á að far­sótt líkt og COVID-19 er tíma­bundið ástand og „ekki má nýta það til þess að lög­festa ákvæði til fram­búðar sem skerða mann­rétt­indi ein­stak­linga á svo víð­tækan hátt“.

Einnig gerir Rauði kross­inn athuga­semdir við orða­lag ákvæð­is­ins þess efnis að heil­brigð­is­starfs­maður eða annar aðili sem er til þess bær skuli ákvarða heil­brigð­is­á­stand við­kom­andi. „Rétt væri að til­taka sér­stak­lega hvaða aðrir aðilar en heil­brigð­is­starfs­fólk séu til þess bærir að ákvarða heil­brigð­is­á­stand eigi það að koma til álita að aðrir aðilar fram­kvæmi slíkt mat“.

Geti átt von á frelsissviptingu

Í umsögn lög­manns­stof­unnar Claudia & Partners er gerð „mjög alvar­leg athuga­semd“ við að lög­reglan megi þvinga umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í heil­brigð­is­skoðun. „Neitar umsækj­andi að gang­ast undir slíkt próf, má vænta þess að málið verði með­höndlað á grund­velli laga um með­ferð saka­mála og að lög­regla megi krefj­ast gæslu­varð­halds­úr­skurðar yfir ein­stak­lingum sem geta átt von á frels­is­svipt­ingu í allt að tvær vikur,“ segir í umsögn­inni.

„Í ljósi núgild­andi fram­kvæmdar þar sem ein­stak­lingar sem í raun eru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, m.a. vegna fötl­unar, alvar­legrar and­legrar eða lík­am­legrar heilsu eru ekki metnir sem slíkir.“ Sömu ein­stak­lingar verði lík­legir til þess að verða frels­is­sviptir og gert að sæta gæslu­varð­haldi m.a. í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Við hin heppnu

„Það er ófrá­víkj­an­leg stað­reynd að flótta­fólk og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eru einn af þeim sam­fé­lags­hópum sem er hvað við­kvæm­astur,“ skrifar hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Anna Kristín í umsögn sinni. „Því ætti hverskyns laga­frum­varp um þennan hóp að hverf­ast um að standa vörð um þeirra rétt­indi til mann­sæm­andi lífs. Þetta frum­varp vegur hins vegar að frið­helgi þessa ein­stak­linga með því að svipta þeim ákveðnum grund­vall­ar­mann­rétt­indum sem við, hin heppnu sem fæð­umst í frið­sælu og auð­ugu landi tökum sem gefnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannréttindamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár