Leiðbeinandi nemandans sem skáldaði viðtal birti greinar í gervifræðiritum

Þór­hallur Örn Guð­laugs­son fjar­lægði lista yfir rann­sóknir sínar af heima­síðu sinni eftir frétta­flutn­ing DV í fyrra. Hann hefur birt fjölda greina í fræði­ritum sem full­yrt er að séu svika­myllur.

Þór­hallur Örn Guð­laugs­son, leið­bein­andi nem­and­ans sem er tal­inn hafa spunnið upp ummæli í BA-rit­gerð sinni, hefur birt rann­sóknir sínar í svoköll­uðum gervi­fræði­ritum. Skil­greina má gervi­fræði­rit sem rit þar lítil sem engin rit­rýni fer fram, höf­undur greiðir fyrir birt­ingu og útgáfan er hugsuð út frá gróða­sjón­ar­miðum. Nemandi Þórhalls er sagður hafa skáldað við­tal við Friðrik Pálsson, hót­el­stjóra á Hótel Rangá, í rit­gerð sinni sem nefn­ist Markaðs- og mark­hópa­grein­ing á hót­el­mark­aðnum á Suð­ur­landi. „Hversu fýsi­legt er að ráð­ast í fram­kvæmdir og rekstur á nýju Hóteli og bað­að­stöðu á Suð­ur­landi“.

Greint var frá mál­inu í Frétta­blað­inu á dög­unum. Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins um málið bendir margt til þess að umrædd rit­gerð sé að stórum hluta upp­spuni. Friðrik Pálsson er sagður einn við­mæl­enda og er vitnað í hann í rit­gerð­inni. Friðrik seg­ist aldrei hafa rætt við nem­and­ann. Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag greindi Vísir frá því að rit­gerðin hafi fengið 8 í ein­kunn þrátt fyrir fjöl­margar staf­setn­inga­villur. Þrír meintir við­mæl­endur í rit­gerð­inni segja að nem­and­inn hafi ekki rætt við sig. Það verður því ekki betur séð en að Þór­hallur hafi ekki kannað rétt­mæti heim­ilda nem­anda síns.

Ekki náð­ist í Þórhall Örn við vinnslu frétt­ar­innar.

Tímaritin sögð „rándýr“ fræðimannasamfélagsins

Líkt og fyrr segir er leið­bein­andi nem­and­ans, Þór­hallur Örn Guð­laugs­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild. DV fjall­aði um notkun hans á svoköll­uðum gervi­fræði­ritum í fyrra. Fyrir ári síðan mátti sjá á innri síðu hans á vef Háskóla Íslands þrjár greinar í und­ir­flokknum „rit­rýndar fræði­greinar“ sem hafi verið birtar í tíma­rit­inu International Journal of Business and Social Science. Tíma­ritið International Journal of Business and Social Science er á vegum félags sem nefn­ist Centre for Promot­ing Ideas sem sagt er vera meðal verstu „rán­dýra“ fræði­manna­sam­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár