Kristrún Frostadóttir sækist eftir sæti hjá Samfylkingunni

Aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka er á meðal þeirra sem upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík gæti sett á fram­boðs­lista í febr­úar fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar.

Kristrún Frostadóttir aðalhagfræðingur Kviku banka
Kristrún Frosta­dóttir aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka Mynd: Aðsend

Kristrún Frosta­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka, verður á meðal fram­bjóð­enda í ráð­gef­andi skoð­ana­könnun meðal félags­manna Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík um upp­still­ingu fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar á næsta ári. Þetta stað­festir Kristrún í sam­tali við Kjarnann.

Sænska leiðin

Eins og Kjarninn hefur áður greint frá verður ekk­ert próf­kjör hjá Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, heldur mun sér­stök upp­still­ing­ar­nefnd innan flokks­ins ganga frá fram­boðs­listum í febr­úar.

Til hlið­sjónar mun nefndin hafa nið­ur­stöður úr ráð­gef­andi skoð­ana­könnun sem fer fram núna á fimmtu­dag­inn þar sem kosið verður um þá ein­stak­linga sem til­nefndir hafa verið af flokks­fólki og hafa gefið leyfi fyrir því. Þessi aðferð hefur verið nefnd „sænska leiðin“ og hefur verið notuð hjá Sós­í­alde­mókra­ta­flokknum í Svíþjóð.

Vill nýta krafta sína til góðs

Aðspurð hvers vegna hún hafi tekið þessa ákvörðun segir Kristrún að hún skynji mjög mikla eft­ir­spurn eftir heil­brigðri umræðu um efna­hags­mál og að hún vilji nýta þekk­ingu sína til góðs með því að sækj­ast eftir einu af efstu sæt­unum í Reykja­vík.

„Ég held að Sam­fylk­ingin hafi alla burði til að vera leið­andi afl í hrein­skiptri umræðu um hvað felst í ábyrgri hag­stjórn og ég tel að ég geti stutt vel við þá umræðu,“ bætir Kristrún við og seg­ist vilja stíga inn til þess að koma umræð­unni um efna­hags­mál á hærra svið. Einnig segir hún að tals­verð eft­ir­spurn hafi verið eftir hennar kröftum og að hún geti ekki skor­ast undan því. Ef hún fái nægan stuðn­ing sé ljóst að verk­efnið framundan sé umfangs­mikið og hún muni láta af störfum sem aðal­hag­fræð­ingur Kviku til að geta ein­beitt sér að fram­boðs­málum og þeirri vinnu sem framundan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár