Stefnt að opnun sundlauga 18. maí

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að hann og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra séu ásátt um að stefna á opnun sund­lauga þann 18. maí, með ein­hverjum tak­mörk­unum, sem ekki er búið að form­festa.

Almenningur gæti komist í sund 18. maí næstkomandi.
Almenn­ingur gæti kom­ist í sund 18. maí næst­kom­andi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stefnt er að því að leyfi verði gefið til þess að opna sund­laugar 18. maí næst­kom­andi, með ákveðnum tak­mörk­unum, sam­kvæmt orðum Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Þórólfur sagði að hann og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefðu orðið ásátt um að stefna að þess­ari dag­setn­ingu, en bætti við að ekki væri búið að form­festa nákvæm­lega hvernig útfærslan yrði og hvaða tak­mark­anir yrðu á sund­ferðum til að byrja með.

Opnun sund­lauga verður þó háð því, að sögn Þórólfs, að far­ald­ur­inn verði áfram í þeirri lægð sem hann er kom­inn í. Hann sagði að svo lítið sam­fé­lags­legt smit virt­ist vera í gangi þessa dag­ana að óhætt þætti að leyfa þjóð­inni að gera það sem hún þráði einna mest, að kom­ast í sund.

Þórólfur lagði áherslu á það, í máli sínu á upp­lýs­inga­fund­inum í dag, að verk­efn­inu væri ekki lokið þó að með rýmkun sam­komu­banns­ins í dag væri einum kafla að ljúka í glímunni við veiruna.

Hann brýndi fyrir fólki að halda áfram að gera sótt­varna­ráð­staf­anir og minnti sér­stak­lega á að tveggja metra reglan er ennþá í gildi hjá full­orðnum og hana ætti að reyna að halda að eins miklu marki og mögu­legt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár