Þrjú fyrirtæki hafa varið 4 milljörðum í von um olíuvinnslu á Drekasvæðinu

Björt fram­tíð og fleiri flokkar töl­uðu fyrir aft­ur­köllun leyfa til olíu­leitar fyrir kosn­ingar.

Kostn­aður sem leyf­is­hafar hafa lagt í rann­sóknir vegna olíu­leitar á Dreka­svæð­inu nemur um 4 millj­örðum íslenskra króna sam­kvæmt mati Orku­stofn­unar. Björt fram­tíð tal­aði fyrir aft­ur­köllun leyfa fyrir kosn­ingar, en ekki hefur verið lagt mat á bóta­kröfur vegna aft­ur­köll­unar leyfa ef til slíks kæmi.

Þetta kemur fram í svari Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Halldóru Mogensen, þing­konu Pírata, um leyfi til olíu­leitar. 

Björt Ólafs­dóttirumhverf­is­ráð­herra

Björt fram­tíð, Píratar, Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð og Sam­fylk­ingin tóku skýra afstöðu gegn olíu­leit og olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga.

Talaði Björt fram­tíð sér­stak­lega fyrir því að leyfi til olíu­leitar yrðu aft­ur­kölluð. Í dag fer flokk­ur­inn með umhverf­is­ráðu­neytið í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar. 

Eitt sér­leyfi til rann­sókna og vinnslu kol­vetnis er í gildi í dag en hand­hafar þess eru útibú kín­verska fyr­ir­tæk­is­ins CNOOC á Íslandi, Eykon Energy ehf. og Petoro Iceland ehf. 

Leyfið var veitt 22. jan­úar 2014 og gildir til 22. jan­úar 2026. Að því er fram kemur í svari ráð­herra hefur leyf­is­hafi ekki skuld­bundið sig í sér­leyf­inu til að bora rann­sókn­ar­holu, en sam­kvæmt ákvæðum leyf­is­ins þarf leyf­is­hafi að gera það fyrir 22. jan­úar 2022. „Slík fram­kvæmd yrði leyf­is­skyld og mats­skyld sam­kvæmt íslenskum lögum og ekki er heim­ilt að bora í jarð­lög undir hafs­botni nema að fengnu sam­þykki Orku­stofn­unar á bún­aði, áætlun um borun og starfs­fyr­ir­komu­lagi, sbr. 14. gr. kol­vetn­islaga, nr. 13/2001.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár