„Þurfum nú öll að færa fórnir“

Seðla­banka­stjóri segir að við þurfum nú öll að færa fórnir sem von­andi hafi þá þýð­ingu að bjarga manns­lífum – en engir björg­un­ar­pakkar af hálfu hins opin­bera geti tekið þessi óþæg­indi af okkur nema að mjög tak­mörk­uðu leyti.

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri fjallar um það ástand sem upp er komið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

„Síðustu 500 ár – eða svo – hafa skæðir alheims­far­aldrar af inflú­ensu geisað um tvisvar til þrisvar sinnum á öld. Enginn man lík­lega nú eftir eftir hinni svo köll­uðu „Asíuflensu“ árið 1957 eða „Hong Kong“ inflú­ens­unni árið 1968. Þetta voru þó mjög mann­skæðir flensu­far­aldrar á tutt­ug­ustu öld – þó ekki kom­ist þeir í hálf­kvisti við spænsku veik­ina er varð 21-50 millj­ónum manna að ald­urtila um heim allan,“ skrifar hann.

Þá segir Ásgeir að það sem sé sér­stakt við Covid-19 far­ald­ur­inn sé ekki veikin sjálf – heldur við­brögðin við henni. Þær alþjóð­legu sótt­varn­ar­ráð­staf­anir sem gripið hefur verið til eigi sér ekki hlið­stæðu. Þær feli í sér gríð­ar­legan efna­hags­legan kostnað og gætu hæg­lega leitt til djúprar en von­andi skamm­vinnar efna­hags­dýfu. Töpuð fram­leiðsla og tap­aðar tekjur séu það gjald sem við séum að sjálf­sögðu til­búin að greiða ef við getum bjargað manns­lífum.

Því sé mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar hafi þetta í huga „áður en við sökkvum okkur í bar­lóm, nei­kvæðni eða sjálfs­vor­kunn. Við þurfum nú öll að færa fórnir sem von­andi hafa þá þýð­ingu að bjarga manns­lífum – en engir björg­un­ar­pakkar af hálfu hins opin­bera geta tekið þessi óþæg­indi af okkur nema að mjög tak­mörk­uðu leyti,“ skrifar seðla­banka­stjóri.

Hann bendir enn fremur á að þeir pen­ingar sem nú spar­ast vegna þess að fólk situr heima hverfi ekki – heldur muni seytla aftur inn í hag­kerfið um leið og far­ald­ur­inn hefur gengið yfir. Hag­sældin muni koma aftur – og von­andi fyrr en varir.

Samdráttur allt að 4,8 prósent í ár

[links]Fram kom á kynn­ingu Seðla­bank­ans í vik­unni að bank­inn reikn­aði með, í sviðs­myndum sínum, að 2,4 til 4,8 sam­dráttur yrði á lands­fram­leiðslu í ár. Fyrri spá bank­ans, sem birt var í febr­úar, gerði ráð fyrir 0,8 pró­sent hag­vexti. Því gæti breyt­ingin frá síð­ustu spá, verði dekkri sviðs­mynd Seðla­bank­ans að veru­leika, verið 5,6 pró­sentu­stig.

Sviðs­mynd­irnar sem kynntar voru mið­uðu ann­ars vegar við mild­ari áhrif og hins vegar við dekkri áhrif. Þær inni­halda grein­ingu á væntri þróun útflutn­ings álaf­urða, hver áhrifin verða á útflutn­ing sjáv­ar­af­urða, áhrif á einka­neyslu og vinnu­markað og tíma­bundin áhrif ein­angr­unar og sam­komu­banns. En helstu áhrifin sem metin eru koma til vegna skells í ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár