Svarti kaupasýkidagurinn

„Gald­ur­inn er að gera alltaf eitt­hvað nýtt og helst gera það að hefð.“ Þetta var svar breska versl­un­ar­eig­and­ans Harry Gordon Sel­fridge, þegar hann var spurður um versl­un­ar­rekstur, snemma á síð­ustu öld. Löngu fyrir daga þess sem nú nefn­ist Black Friday.

Stundum er sagt um okkur Íslend­inga að við séum ótrú­lega fljótir að til­einka okkur erlenda strauma, nán­ast á hvaða sviði sem er. Fyr­ir­bærið sem hæst hefur borið und­an­farna daga á sér hins­vegar ekki langa sögu hér á landi en er ekki nýtt af nál­inni Þetta er að sjálf­sögðu Black Friday.

Þeir fjöl­mörgu útlend­ingar sem leggja leið sína til Íslands reka augun í fjöl­margt sem heima­menn veita enga athygli. Eitt er það að Íslend­ingar ganga mjög gjarna í svörtu, margir ferða­menn hafa orð á þessu þegar þeir eru spurðir um land og þjóð. Svart er líka tákn sorg­ar­innar, nær allir mæta til dæmis svart­klæddir í jarð­ar­farir. Við eigum líka orða­til­tæki þar sem orðið svart kemur fyrir og það er ætíð nei­kvætt „nú er það svart, svart­nætti, aldrei séð það svart­ara“ og fleira mætti nefna.

Árið 1863 fyr­ir­skip­aði Abraham Lincoln for­seti Banda­ríkj­anna að síð­asti fimmtu­dagur í nóv­em­ber ár hvert skyldi vera frí­dagur (thanks­gi­v­ing) þar vestra, til að þakka vel­gjörðir lið­ins árs. George Washington, fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna hafði þá löngu fyr­ir­skipað að slíkur þakk­ar­gjörð­ar­dagur skyldi hald­inn árlega en nefndi ekki til­tek­inn dag. Árið 1939 ákvað Franklin D. Roosevelt for­seti að þakk­ar­gjörð­ar­dag­ur­inn skyldi hald­inn fjórða fimmtu­dag í nóv­em­ber ár hvert og þingið stað­festi þessa til­lögu hans tveimur árum síðar. Sá siður hefur hald­ist síðan og kalkúnn víða á borðum. Margir taka sér frí frá vinnu dag­inn eftir þakk­ar­gjörð­ina, fá þannig „langa helgi“. Black Friday

Árið 1951 var í tíma­rit­inu Factory Mana­gement and Maintenance, sem fjall­aði um iðn­að­ar­mál, föstu­dag­ur­inn eftir þakk­ar­gjörð nefndur Black Friday og vísað til þess að atvinnu­lífið væri nán­ast lamað, þar sem margir mættu ekki til vinnu. Þrátt fyrir það voru flestar versl­anir opnar og því nýttu margir frí­dag­inn til að versla. Lög­reglan í borg­inni Fíla­delfíu kall­aði árið 1961 þennan föstu­dag Black Friday vegna mik­ils umferð­ar­öng­þveitis tengdu inn­kaupa­ferðum borg­ar­búa.

Stóra verslunarhelgin

Sú hefð, að nota föstu­dag­inn eftir þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn, til inn­kaupa hefur fyrir löngu fest sig í sessi í Banda­ríkj­unum. Þar vestra er löng hefð fyrir alls kyns til­boðum og afsláttum, og „svarti föstu­dag­ur­inn“ hefur árum saman verið einn stærsti inn­kaupa­dagur árs­ins. Salan eykst með ári hverju og versl­anir kepp­ast um að krækja í við­skipta­vin­ina, það verður best gert með til­boðum og afsláttum. Versl­anir aug­lýsa tug­pró­senta afslátt og allir selj­endur vöru og þjón­ustu telja sig verða að taka þátt í slagnum um kúnn­ana.

Ekki gengur allt ætíð frið­sam­lega fyrir sig og bæði banda­rískir og evr­ópskir fjöl­miðlar birta árlega sögur, og mynd­skeið, af rifr­ildum og slags­málum. Fyrir fjórum árum mátti til dæmis sjá mynd­skeið frá verslun í Maryland þar sem tvær konur vildu báðar fá sömu rauðu nær­bux­urnar og slógu hvor til ann­arrar meðan þær héldu í buxna­streng­inn. Buxurnar voru ekki gerðar fyrir átök og rifn­uðu en kon­urnar héldu áfram að slást þangað til starfs­menn gripu í taumana. Fyrir nokkrum árum kom til mik­illa átaka í hús­gagna­verslun í Texas þar sem tveir hópar tók­ust á og not­uðu hús­gögn sem vopn. Þegar tókst að skakka leik­inn höfðu margir hlotið sár og skrámur og fjöldi hús­gagna stór­skemmdur eða ónýtur. Enginn taldi sig eiga upp­tökin og versl­unin sat uppi með skemmd­irnar.

Líka í Evrópu

Þótt þakk­ar­gjörð­ar­sið­ur­inn sé að mestu bund­inn við Banda­ríkin er föstu­dag­ur­inn Black Friday orð­inn útbreiddur í Evrópu. Einkum á allra síð­ustu árum. Danska dag­blaðið Berl­ingske birti fyrir nokkrum dögum sölu­tölur frá Banda­ríkj­unum og nokkrum Evr­ópu­löndum (ekki þó frá Íslandi) og þar kemur fram að Danir eru þeir sem kaupa allra þjóða mest á þessum útsölu­degi, eins og Berl­ingske kall­aði það. Danir keyptu fyrir upp­hæð sem svarar til ca. 42 millj­arða íslenskra króna, í Banda­ríkj­unum nam salan þennan dag upp­hæð sem sam­svarar 622 millj­örðum íslenskra króna. Miðað við íbúa­fjölda land­anna kom­ast Banda­ríkja­menn ekki í hálf­kvisti við Dani.

Af hverju elska Danir Black Friday

Þessa spurn­ingu lögðu blaða­menn Berl­ingske fyrir nokkra sér­fróða um neyt­enda­mál og inn­kaupa­venjur. Sér­fræð­ing­arnir nefndu allir að Danir leggi mikið upp úr að kaupa með afslætti, haldi fast um budd­una. Og það eru ekki bara jóla­gjaf­irnar sem þeir kaupa á svarta föstu­deg­inum. Parket, máln­ing, hús­gögn, mat­vörur, bílar, bygg­ing­ar­vörur, raf­tæki o.s.frv., o.s.frv.. Skrifari þessa pistils var í Kaup­manna­höfn fyrir nokkrum dögum og sá margt fólk í búðum. Fékk svo að vita að flestir væru þar að skoða en ætl­uðu að bíða með inn­kaupin fram til föstu­dags. Skrif­ar­inn fór líka í stóra versl­ana­mið­stöð og þar voru aug­lýs­ingar um „stór­kost­lega afslætti“ hvert sem litið var.

Fyr­ir­bærið Black Friday á sér ekki langa sögu í Danmörku, byrj­aði árið 2013. Þremur árum síðar vakti það athygli danskra fjöl­miðla að þekktur versl­un­ar­eig­andi á Strikinu aug­lýsti að hann væri ekki með í þessum svarta föstu­degi. Áður­nefndir sér­fræð­ingar nefndu líka að hjá Dönum sé það nán­ast þjóðar­í­þrótt að rölta í búðir, þess vegna séu þeir mjög með­vit­aðir um verð og láti ekki auð­veld­lega glepjast af gylli­boðum sem vissu­lega er líka nóg af.

„Maður þarf að gæta þess að skilja ekki heil­ann eftir heima þegar maður fer í búð­irnar á Black Friday“ sagði einn úr hópi sér­fræð­ing­anna.

Rímar illa við nytjastefnuna

Á allra síð­ustu árum hefur umræðan um neyslu­hyggju og nægju­semi orðið æ hávær­ari í Danmörku. ,,Gleymir þjóðin svo þessu þegar Black Friday“ rennur upp spurðu blaða­menn Berl­ingske. „Nei“ var svarið. „Ef þú sérð tösk­una sem þig lang­aði alltaf í, á til­boði sem ekki verður end­ur­tekið, er erfitt að stand­ast freist­ing­una“ sagði einn sér­fræð­ing­anna. „Þegar heim er komið með nýju sértil­boðstösk­una, og ekki pláss fyrir eina í við­bót, er bara eitt að gera; fara með þá gömlu, sem varla sér á, í end­ur­nota­búð­ina. Þar gerir svo ein­hver annar kjara­kaup, fær þessa líka flottu tösku á spott­prís. Allir eru ánægðir; sá sem seldi yfir að hafa ekki hent tösk­unni og kaup­and­inn sem borg­aði aðeins brot af því sem ný taska hefði kostað.“

Skilar sér í endurnýtinguna

Ofan­greind ummæli eins neyt­enda­sér­fræð­ing­anna koma heim og saman við upp­lýs­ingar end­ur­nota­versl­ana og end­ur­vinnslu­stöðv­anna. Í kjöl­far Black Friday eykst það sem þangað berst. Hvort sem um er að ræða fatnað, hús­gögn, raf­tæki eða annað.

Hvað með netverslanirnar?

Net­verslun hefur á allra síð­ustu árum auk­ist mjög mikið í Danmörku. Mörgum þykir þægi­legt að þurfa ekki að fara í búð­ina, slíkar ferðir taka tíma, verðið stundum lægra á net­inu, og freist­ing­arnar færri en þegar rölt er um búð­ina. Danska útvarpið, DR, greindi frá því um miðjan dag sl. föstu­dag, Black Friday, að flutn­inga­fyr­ir­tækin sem sjá um að koma net­pönt­unum til kaup­enda sæju fram á algjört kaos, eins og það var orðað, pakka­fjöld­inn væri slíkur. Aukn­ingin milli ára væri mikil og nú væri fólk farið að panta stærri hluti en áður, á net­inu. Tals­maður danska pósts­ins, POSTNORD sagði að þótt það væri kannski óvenju­legt að verið væri að panta elda­vélar og kæli­s­kápa á net­inu væri það við­ráð­an­legt. „Ég veit ekki alveg hvað við gerum ef fólk fer að kaupa bíla á net­inu og vill fá þá senda heim, með póst­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár