664 börn á biðlista Þroska- og hegðunarstöðvarinnar

Þróun biðlista Þroska- og hegð­un­ar­stöðv­ar­innar síð­ast­liðin tvö ár hefur verið í beinum tengslum við fjölgun beiðna árlega, segir heil­brigð­is­ráð­herra.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 664 börn á biðlista Þroska- og hegð­un­ar­stöðv­ar­innar þann 1. júní síð­ast­lið­inn. Þar af bár­ust 360 beiðnir á fyrstu fimm mán­uðum þessa árs. Á biðlist­anum eru ekki ein­ungis börn sem bíða eftir ADHD-grein­ingu heldur einnig börn sem eru með fjöl­þætt­ari og sam­settan vanda sem þarfn­ast þver­fag­legrar grein­ingar, þ.e. tauga­þroskarask­anir, svo sem ein­hverfu, ADHD, kvíð­arask­anir, hegð­unar- og sam­skipta­vanda, dep­urð og van­líðan.

Þetta kemur fram í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Oddnýju G. Harð­ar­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar um mál­efni fólks með ADHD.

Samkvæmt ráð­herra hefur þróun biðlist­ans síð­ast­liðin tvö ár verið í beinum tengslum við fjölgun beiðna árlega. Í árs­lok 2020 hafi 608 börn verið á biðlista, í árs­lok 2019 hafi 420 börn beðið og í árs­lok 2018 hafi 315 börn verið á biðlist­anum. Fjöldi beiðna árið 2020 var 622, árið 2019 voru þær 536 og árið 2018 komu 520 beiðnir, að því er fram kemur í svar­inu.

717 bíða eftir greiningu hjá ADHD-teymi Landspítalans

Oddný spurði einnig hversu margir full­orðnir væru á biðlista eftir grein­ingu og þjón­ustu hjá ADHD-teymi Land­spít­ala og hvernig biðlist­inn hefði þró­ast síð­ast­liðin tvö ár.

„ADHD-teymi Land­spít­ala hefur haft það hlut­verk að sinna grein­ingu og með­ferð ADHD fyrir fólk 18 ára og eldra. Á biðlista eftir grein­ingu hjá ADHD-teymi Land­spít­ala voru í byrjun júní 2021 alls 717 ein­stak­lingar. Það er aukn­ing milli ára þar sem í maí 2020 voru 480 ein­stak­lingar á biðlist­anum og í maí 2019 biðu 565 ein­stak­lingar.

Fækkun á biðlist­anum frá því í maí 2019 þar til í maí 2020 skýrist meðal ann­ars af því að gert var sér­stakt átak í skimun á meðan sam­komu­tak­mark­anir voru í gildi vegna COVID-19. Biðlist­inn hefur því lengst. Auk þess eru nú um 120 til­vís­anir sem ekki eru komnar inn á biðlista þar sem eftir á að taka afstöðu til þess hvort þau mál eigi heima hjá ADHD-teymi Land­spít­ala. Á biðlista eftir með­ferð hjá lækni eru nú 66 ein­stak­lingar,“ segir í svari ráð­herra.

Vinna við tillögur til úrbóta á lokastigi

Enn fremur spurði Oddný hvaða áform ráð­herra hefði, ef ein­hver, um að eyða biðlistum eftir grein­ingu og þjón­ustu vegna ADHD, ann­ars vegar hjá börnum og hins vegar full­orðnum, og þá hver.

Í svar­inu kemur fram að núna liggi fyrir grein­ingar um hvar skór­inn kreppir svo að vandi þessa máls sé nokkuð ljós. „Und­an­farna mán­uði hefur verið unnið að lausn þess að mæta betur þörf barna og full­orð­inna á grein­ingu og þjón­ustu vegna ADHD. Sú vinna hefur meðal ann­ars verið unnin í sam­vinnu við ADHD-sam­tökin. Vinna við til­lögur til úrbóta er á loka­stigi en um leið og þær liggja fyrir verða nið­ur­stöð­urnar kynntar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár