Loforð um kolefnishlutleysi oft „innantóm slagorð og ýkjur“

Fyr­ir­tæki, stofn­anir og heilu borg­irnar heita því að kolefn­is­jafna alla starf­semi sína – ná hinu eft­ir­sótta kolefn­is­hlut­leysi. En aðferð­irnar sem á að beita til að ná slíku fram eru oft í besta falli vafa­samar.

Loforð fyr­ir­tækja, stofn­ana og heilu borg­anna um að ná kolefn­is­hlut­leysi er oft ekk­ert annað en græn­þvottur að mati sér­fræð­inga Sam­ein­uðu þjóð­anna. Skýrsla þar sem rýnt er í málið var kynnt á lofts­lags­ráð­stefn­unni, COP27, í Egypta­landi. Þeir vilja að sett verði skýr við­mið og leiðir um hvernig megi draga raun­veru­lega úr losun og vinna á móti henni.

Skýrsl­unni er ætlað að draga línu í sand­inn. Hingað og ekki lengra eiga falskar full­yrð­ingar hvað varðar bar­átt­una gegn lofts­lags­breyt­ingum að ganga, segja sér­fræð­ing­arnir. Hinar fölsku full­yrð­ingar villa um fyrir neyt­endum, fjár­festum og stjórn­mála­mönnum.

[links]Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glasgow í fyrra til­nefndi Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sautján manna teymi sér­fræð­inga til að rýna í trú­verð­ug­leika lof­orða um kolefn­is­hlut­leysi. Sagði hann það nauð­syn­legt þar sem áhyggjur hefðu vaknað um falskar full­yrð­ingar fyr­ir­tækja í þessum efnum.

„Of mörg þess­ara lof­orða um kolefn­is­hlut­leysi eru lítið annað en inn­an­tóm slag­orð og ýkjur,“ sagði Catherine McKenna, for­maður sér­fræð­inga­hóps­ins og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra Kanada er nið­ur­stöður skýrsl­unnar voru kynntar í Egypta­landi. „Falskar full­yrð­ingar um kolefn­is­hlut­leysi ýta undir auk­inn kostnað sem allir þurfa að lokum að greiða.“

Málaferli

Víðs vegar um heim­inn er verið að setja strang­ari reglur um hvaða athafnir manna og fram­leiðslu­vörur geti talist umhverf­is­vænar. Ekki er nærri því nógu langt gengið í þeim efnum að mati aðgerða­sinna í lofts­lags­málum sem bent hafa á svik og pretti í mála­flokknum.

Og sumar hinna blekkj­andi full­yrð­inga hafa ratað fyrir dóm­stóla. Í vik­unni hófst í Ástralíu rann­sókn á nokkrum málum þar sem fyr­ir­tæki eru sökuð um græn­þvott. Eru fyr­ir­tækin sögð hafa ýkt full­yrð­ingar um jákvæð umhverf­is­á­hrif vara sinna eða starf­semi.

Í októ­ber lagði breska fjár­mála­eft­ir­litið til að búið verði til reglu­verk sem fyr­ir­tæki, sjóðir og stofn­anir verði að fara eftir til að koma í veg fyrir að neyt­endur séu afvega­leiddir með full­yrð­ingum um aðgerðir í lofts­lags­málum.

Samkvæmt rann­sókn sér­fræð­ing­anna er um 80 pró­sent af öllum útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu sagður „kolefn­is­jafn­aður“ með ein­hverjum hætti. Stundum er verið að tala um að búið sé að kolefn­is­jafna fram­leiðslu eða starf­semi og í öðrum til­vikum að unnið sé að því.

Sér­fræð­ingateymið setur í skýrslu sinni fram lista af til­mælum til fyr­ir­tækja og ann­arra til að tryggja að lof­orð þeirra í lofts­lags­málum séu sönn og skili raun­veru­lega ein­hverju fyrir umhverfið. Þannig benda sér­fræð­ing­arnir á að fyr­ir­tæki geti ekki haldið fram kolefn­is­hlut­leysi á sama tíma og það ræðst í nýjar fjár­fest­ingar tengdar jarð­efna­elds­neyti eða skóg­areyð­ingu.

Rakið og hrakið

Thomas Hale, pró­fessor við Oxford-háskóla og einn af stofn­endum verk­efnis sem ætlað er að rekja – og hrekja – full­yrð­ingar um kolefn­is­hlut­leysi, segir skýrsl­una ákveðið skref en að hún þurfi að kom­ast í almenna umræðu og til stjórn­mála­manna eigi hún að verða verk­færi til stefnu­breyt­ingar og -mörk­unar. „Við verðum að átta okkur á því að flest mark­mið í átt að kolefn­is­hlut­leysi munu ekki verða efnd með sama áfram­haldi. Hann segir aðeins helm­ing fyr­ir­tækja sem hann hafi rann­sakað hafa vel útfærðar áætl­anir um hvernig upp­fylla eigi lof­orð um kolefn­is­hlut­leysi. Allt of fáir leggi á sig hina miklu vinnu sem þarf til að raun­gera mark­miðin sem snú­ast ættu fyrst og fremst um að draga úr losun en ekki binda hana með óljósum aðgerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár