Faraldurinn að mestu tilkominn vegna ferða Íslendinga erlendis

Á meðan til­tölu­lega fáir hafa sýkst og þar með myndað mótefni þarf að huga að því hvernig hægt er að vernda þann stóra hóp sem enn er mót­tæki­legur. Það er til dæmis hægt með ein­hvers konar ferða­tak­mörk­unum, segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Aðeins níu ný smit af COVID-19 greindust á land­inu síð­asta sól­ar­hring, sjö á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og tvö á Vest­fjörðum. Þriðj­ungur þeirra sem greind­ist var þegar í sótt­kví.

Fyrsta til­felli nýju kór­ónu­veirunnar var stað­fest hér á landi þann 28. febr­úar. Síðan þá hafa 1.720 manns greinst með veiruna, „og við höfum því miður misst átta sjúk­linga,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag þar sem farið var yfir áform um aflétt­ingu á sam­komu­tak­mörk­unum vegna far­ald­urs­ins.

Hingað til hafa rétt yfir 100 manns verið lagðir inn á sjúkra­hús vegna COVID-19, þar af þrjá­tíu á gjör­gæslu. Af þeim hafa 26 þurft á með­ferð í önd­un­ar­vél að halda.

[adspot]

Þórólfur segir að hápunkti far­ald­urs­ins hafi verið náð fyrir um viku og að nú sé farið að draga úr álagi á heil­brigð­is­kerfið. Átta manns liggja núna á gjör­gæslu­deildum. Þrír þeirra eru í önd­un­ar­vél á Land­spít­al­anum en eng­inn er í önd­un­ar­vél á Sjúkra­hús­inu á Akureyri.

[links]Far­ald­ur­inn hefur að sögn Þórólfs verið á nið­ur­leið síð­ustu daga sem þakka megi þeim miklu sam­fé­lags­legu aðgerðum sem verið hafa í gangi hér á landi og þeim sam­taka­mætti sem finna má í öllu sam­fé­lag­inu; meðal almenn­ings, fyr­ir­tækja, félaga­sam­taka og stjórn­valda.

Álag á sjúkra­hús lands­ins hefur verið mikið að sögn Þórólfs og að það megi auð­veld­lega ímynda sér hvað þar hefði gerst ef far­ald­ur­inn hefði verið meiri en raunin varð. Ítrekar hann hversu mik­il­vægt það er að halda far­aldr­inum niðri „eins og mögu­legt er“ til að vernda heil­brigð­is­starf­sem­ina.

Verður að stíga skref hægt og bítandi

Reynt verður á næst­unni að aflétta þeim tak­mörk­unum sem settar hafa verið á dag­legt líf fólks. „Það er mjög mik­il­vægt að aflétta þeim og að gera það hægt og bít­andi svo að fáum ekki far­aldur aftur og þurfum að stíga skref til baka,“ segir Þórólfur. Stór hópur í sam­fé­lag­inu er enn mót­tæki­legur fyrr veirunni.

Segir hann ýmsar hug­myndir í gangi um hvernig hægt sé að tak­marka með ein­hverjum hætti ferðir ferða­manna hingað til lands og ferða­lög Íslend­inga jafn­vel líka. Bendir hann á að far­ald­ur­inn hér sé að mestu til­kom­inn vegna ferða Íslend­inga erlendis en ekki ferða­manna sem hingað hafa komið.

Samtakamátturinn einstakur

Þórólfur hvetur allan almenn­ing til að halda sam­stöð­unni áfram. „Hún er alveg ein­stök. Sam­taka­máttur okkar og almenn­ings verður lyk­ill­inn að því að við getum staðið upp og hrósað sigri á þess­ari veiru­sýk­ingu.“

Á fund­inum var Þórólfur spurður hvort að hætt yrði við að aflétta tak­mörk­unum ef smitum færi aftur að fjölga. Hann svar­aði því til að yfir­völd væru til­búin til að takast á við hóp­sýk­ingar sem gætu komið upp á ákveðnum svæðum. Ef að mikil útbreiðsla á lands­vísu kæmi upp aftur þá gæti þurft að grípa til harðra aðgerða á ný.

Á meðan til­tölu­lega fáir hafi sýkst og þar með myndað mótefni þyrfti að huga að því hvernig hægt er að vernda þann stóra hóp sem enn er mót­tæki­legur. Það væri hægt með ein­hvers konar ferða­tak­mörk­unum en allar aðgerðir mið­ast við að vinna sér tíma þar til með­ferð við veiru­sýk­ing­unni finnst, veiran deyr út í heim­inum (eins og gerð­ist með SARS á einu ári) eða að bólu­efni finnst. „Við höfum verk að vinna en verðum að eiga við þetta eftir því sem far­ald­ur­inn verður hér og erlendis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár