Þeim Íslendingum sem segja það öruggt að þeir þiggi bólusetningu fjölgar mikið

Nálægt 92 pró­sent þjóð­ar­innar telur lík­legt að hún þiggi bólu­setn­ingu. And­staðan við bólu­setn­ingu er mest hjá kjós­endum Mið­flokks­ins.

Bóluefni
Bóluefni Mynd: EPA

Nálægt 92 pró­sent lands­manna segja lík­legt að þeir þiggi bólu­setn­ingu gegn COVID-19, um fimm pró­sent telja það ólík­legt og um þrjú pró­sent hafa ekki myndað sér skoðun á mál­inu. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Athygli vekur að Íslend­ingum sem segja það öruggt að þeir muni þiggja bólu­setn­ingu hefur fjölgað mikið frá því í haust. Í sept­em­ber sögð­ust 49 pró­sent lands­manna hafa þá skoðun en nú er það hlut­fall orðið 65 pró­sent.

Fólk yfir fer­tugu er lík­legra til að þiggja bólu­setn­ingu en yngri hluti lands­manna. Mest er and­staðan við bólu­setn­ingu hjá fólki á fer­tugs­aldri, en í þeim ald­urs­hópi segj­ast tíu pró­sent ólík­legt að það láti bólu­setja sig.

[adspot]Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks, Pírata, Við­reisnar og Vinstri grænna eru lík­legri til að þiggja bólu­setn­ingu en kjós­endur ann­arra flokka. And­staðan við að láta bólu­setja sig er mest hjá kjós­endum Mið­flokks­ins, en tólf pró­sent þeirra segja það ólík­legt að þeir þiggi bólu­setn­ingu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun að hún vænti þess að stór hluti lands­manna yrði bólu­settur gegn COVID-19 á fyrri hluta 2021.

Ísland er í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið og Noreg um samn­inga og kaup á bólu­efni. Þegar er búið að tryggja meira bólu­efni en þarf til að bólu­setja alla þjóð­ina en ekki liggur fyrir að öllu leyti hvenær stór hluti þess verður afhentur.

Fyrstu Íslend­ing­arnir voru bólu­settir 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn í kjöl­far þess að fyrstu skammtar af bólu­efni Pfizer bár­ust hingað til lands. Ísland hefur þegar tryggt sér 250 þús­und skammta frá fyr­ir­tæk­inu sem dugar fyrir 125 þús­und ein­stak­linga. Að lág­marki 50 þús­und skammtar munu ber­ast frá Pfizer fram í mars.

Samn­ingur Íslands við bólu­efna­fram­leið­and­ann Moderna var und­ir­rit­aður 30. des­em­ber 2020. Mat Evrópsku lyfja­stofn­un­ar­innar (EMA) er for­senda mark­aðs­leyfis og áætlað er EMA haldi mats­fund vegna Moderna 6. jan­úar 2021 en til vara 12. jan­úar 2021. Ísland fær um 128 þús­und skammta sem duga fyrir um 64 þús­und ein­stak­linga og áætlað er að afhend­ing hefj­ist á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Ísland fær líka um 230 þús­und skammta sem duga fyrir um 115 þús­und ein­stak­linga af bólu­efni frá Aztra Zeneca og fyr­ir­tækið stefnir að því að byrja að afhenda skammta í Evrópu á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Þá hefur Ísland tryggt sér bólu­efni fyrir 235 þús­und ein­stak­linga frá Janssen og áætlað er að byrja afhend­ingu á þriðja árs­fjórð­ungi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár