Hópsmit um borð í rússneskum togara sem lagði að bryggju í Færeyjum

Virk smit af kór­ónu­veirunni í Færeyjum urðu skyndi­lega 26 um helg­ina eftir að 23 skip­verjar á rúss­neskum tog­ara greindust með veiruna.

Klakksvík íFæreyjum.
Klakks­vík íFær­eyjum. Mynd: Af Wikipedia

Um helg­ina greindust 23 ný til­felli af COVID-19 í Færeyjum. Þetta er mesti fjöldi smita sem greindur er á einum degi frá því að far­ald­ur­inn braust út í mars. Á eyj­unum hafa því greinst 26 virk smit síð­ustu daga. Þeir sem greindust um helg­ina eru allir skip­verjar á rúss­neskum tog­ara sem þar lagði að bryggju. Þrjú smit til við­bótar greindust í síð­ustu viku. Þar var um að ræða fjöl­skyldu sem var að koma í frí til eyj­anna. Fór hún í ein­angrun í húsi sem hún hafði tekið á leigu.

Togarinn AK-0749 Karelia, lagði að bryggju í Færeyjum fyrir helgi. Einn skip­verj­inn var lagður inn á sjúkra­húsið í Klakks­vík á föstu­dag með lungna­bólgu. Á laug­ar­dag kom í ljós að hann var sýktur af COVID-19. Þá var hann fluttur á lands­sjúkra­húsið í Þórshöfn, segir í frétt fær­eyska sjón­varps­ins. Einn skip­verji til við­bótar var um helg­ina fluttur á COVID-deild lands­sjúkra­húss­ins.

Haft er eftir Lars Fodgaard Møller land­lækni að skip­verjarnir hafi ann­ars ekki komið í land í Færeyjum. Hins vegar eru átta manns, sem áttu í sam­skiptum við áhöfn­ina, komnir í sótt­kví.

Um borð í tog­ar­anum eru 77 skip­verjar og voru sýni tekin af 30 þeirra um helg­ina. 23 reynd­ust smit­aðir en sjö sýni reynd­ust nei­kvæð. Í frétt Local.fo kemur fram að tog­ar­inn hafi farið frá Færeyjum á laug­ar­dags­kvöld.

Í frétt Kringvarps­ins segir að 32.453 sýni hafi verið tekin í Færeyjum frá upp­hafi far­ald­urs­ins. 214 hafa reynst sýktir af veirunni og 188 hafa náð bata. Enginn dauðs­föll vegna COVID-19 hafa orðið á eyj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár