Bjarni ekki hlynntur hugmyndum Sigurðar Inga um aukna tollvernd

Á fundi með Félagi atvinnu­rek­enda í morgun sagði Bjarni Bene­dikts­son að honum hugn­að­ist ekki að hækka tolla til að auka inn­lenda fram­leiðslu, en Sigurður Ingi Jóhanns­son sagð­ist telja slíkt hyggi­legt í ræðu­stóli á Alþingi fyrir um þremur vikum.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson eru ekki sammála um tollamálin.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son eru ekki sam­mála um tolla­málin. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var spurður út í nýleg ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra, þess efnis að skoða þyrfti aukna toll­vernd hér­lendis til þess að styðja við inn­lenda fram­leiðslu, á fundi með félögum í Félagi atvinnu­rek­enda (FA) í morgun. Bjarni sagð­ist ekki hlynntur því að hækka tolla til þess að efla inn­lenda fram­leiðslu.

Samkvæmt frá­sögn af fund­inum á vef FA er ljóst að þessum leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar greinir á um tolla­stefn­una, en Sigurður Ingi sagði í umræðum á Alþingi 14. apríl síð­ast­lið­inn að ef „við meintum eitt­hvað“ með því að auka inn­lenda fram­leiðslu væri að hans mati nokkuð aug­ljóst að skoða þyrfti aukna toll­vernd fyrir íslenska mat­væla­fram­leiðslu.[links]

„Tollar eru jú not­aðir til þess að vega upp kostnað við mis­mun­andi stofn­kostnað eða rekstr­ar­kostnað við fram­leiðslu, það er hugs­unin á bak við tolla. Við höfum látið það óáreitt í mjög langan tíma,“ sagði Sigurður Ingi.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, spurði Bjarna út í þessi ummæli. Svar Bjarna var á þá leið að þetta hugn­að­ist honum ekki.

„Ef menn vilja treysta mat­væla­ör­yggi og efla fram­leiðslu úr þeim gæðum sem við höfum á Íslandi þá eru fyrst og fremst tvær leiðir færar. Leiðin sem rík­is­stjórnin hefur boðað er að efla inn­lendu fram­leiðsl­una og hún felur ekki í sér tolla­hækk­anir. Það væri þá hin leiðin, að taka af fólki val­kosti með hreinum tolla­hækk­unum,“ er haft eftir Bjarna á vef FA.

„Það er hægt að koma í veg fyrir að menn geti átt við­skipti með inn­flutn­ing­inn með því að reisa tolla­vegg. Ég er ekki hrif­inn af því,“ er einnig haft eftir fjár­mála­ráð­herra og því bætt við að hann hafi látið fylgja að á hinn bóg­inn væri hægt að segja að það væri „sann­gjarnt að jafna upp að ein­hverju marki ólíka sam­keppn­is­stöðu þeirra sem eru að fram­leiða á Íslandi í sam­keppni við vörur, sem flæða í mörgum til­vikum toll­frjálst til lands­ins eða með mjög tak­mörk­uðum tollum og hafa verið nið­ur­greiddar í heima­land­inu.“

[adspot]

„Það er leiðin sem ég er miklu hrifn­ari af, að styðja þessa inn­lendu fram­leiðslu en byggja að öðru leyti á val­frelsi neyt­end­anna,“ er haft eftir Bjarna.

Stjórn­völd hafa að und­an­förnu kynnt aðgerðir til þess að styðja íslenska fram­leiðslu nú á tímum heims­far­ald­urs, en til dæmis stendur til að verja 500 millj­ónum króna í sér­stakan Mat­væla­sjóð, sem ætlað er að efla nýsköpun og þróun í íslenskri mat­væla­fram­leiðslu.

Þá hefur einnig verið samið um að ríkið leggi 100 millj­ónir til kynn­ing­ar­átaks undir heit­inu „Íslenskt - gjörið svo vel“, en átakið snýst um að hvetja lands­menn til að skipta við inn­lend fyr­ir­tæki á fjöl­breyttum sviðum við val á fram­leiðslu, vörum og þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár