Stefna að því að opna líkamsræktarstöðvar 25. maí

Ástæða er til að fara hraðar í aflétt­ingar tak­mark­ana, að sögn sótt­varna­læknis.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á dag­legum blaða­manna­fundi í dag að hugs­an­lega væri hægt að aflétta tak­mörk­unum hraðar ef vel gengi að hemja far­ald­ur­inn – og að sama skapi þyrfti að fara hægar í sak­irnar ef illa gengi.

„Ég tel nokkuð ljóst að okkur hafi gengið vel að hemja þennan far­aldur til þessa vegna góðrar sam­vinnu við almenn­ing og vegna þess að almenn­ingur hefur farið eftir því sem hann er beð­inn um,“ sagði hann.

Því væri ástæða til þess að fara hraðar í aflétt­ingar heldur en boðað hefði verið og að höfðu sam­ráði við Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra þá væri stefnt að því að næsta skref í aflétt­ingu yrði þremur vikum eftir fyrsta skrefið, eða þann 25. maí næst­kom­andi.

„Í því skrefi yrði leyfð opnun á ýmiss konar starf­semi, til dæmis starf­semi lík­ams­rækt­ar­stöðva, með ákveðnum skil­yrðum og meiri fjöldi leyfður í sama rými en nú er leyfður. Þó að leyfður fjöldi hafi ekki verið ákveð­inn ennþá þá höfum við talað um að minnsta kosti 100 ein­stak­linga en það verður ákveðið síðar,“ sagði Þórólfur.

Fram kom á blaða­manna­fundi almanna­varna þann 4. maí síð­ast­lið­inn að stefnt væri að því að leyfa opnun sund­lauga þann 18. maí, með ákveðnum tak­mörk­un­um.

Opnun sund­lauga yrði þó háð því, að sögn Þór­ólfs, að far­ald­ur­inn yrði áfram í þeirri lægð sem hann er kom­inn í. Hann sagði að svo lítið sam­fé­lags­legt smit virt­ist vera í gangi þessa dag­ana að óhætt þætti að leyfa þjóð­inni að gera það sem hún þráði einna mest, að kom­ast í sund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár