Hamfarir í Suður-Afríku tvöfalt líklegri vegna loftslagsbreytinga

Ef veð­ur­far væri svipað nú og það var fyrir iðn­bylt­ingu myndu ham­farir á borð við þær sem kost­uðu 435 mann­eskjur lífið í Suður-Afríku í apríl eiga sér stað á 40 ára fresti en ekki einu sinni á hverjum tutt­ugu árum.

BJörgunarmenn að störfum í Durban eftir gríðarleg flóð.
BJörg­un­ar­menn að störfum í Durban eftir gríð­ar­leg flóð. Mynd: EPA

Hlýnun jarðar vegna lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum gerir það tvisvar sinnum lík­legra að rign­ingar eins og þær sem urðu í Suður-Afríku í apríl orsaki gríð­ar­leg flóð og aur­skriður líkt og raunin varð.

Þetta er nið­ur­staða vís­inda­hóps á vegum The World Weather Attribution. Reuters greinir frá. Skyndi­flóð sem urðu við strand­borg­ina Durban varð 435 að bana og olli því að tug­þús­undir misstu heim­ili sín. Mikið tjón varð á vegum, raf­magns­línum og vatns­lögnum í þess­ari mestu hafn­ar­borg Suður-Afríku og einni stærstu í Afríku.

Vís­inda­menn­irnir greindu veð­ur­gögn og settu þau í hermi­líkan til að bera saman áhrif veð­ur­fars dags­ins í dag og veð­ur­far í lok nítj­ándu aldar – áður en iðn­bylt­ingin og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem henni fylgdi hófst. Á þeim tíma var með­al­hiti á Jörðinni 1,2 gráðum lægri en hann er nú. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar er m.a. sú að sögn vís­inda­mann­anna að vænta má ham­fara eins og þeirra sem urðu í Durban einu sinni á hverju tutt­ugu ára tíma­bili. Ef losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda væri á pari við það sem þekkt­ist fyrir iðn­bylt­ingu yrðu slíkar ham­farir lík­lega á um fjöru­tíu ára fresti.

Gríð­ar­miklar rign­ingar geta átt sér stað óháð lofts­lags­breyt­ingum en lík­urnar á þeim hafa auk­ist mikið, um 4-8 pró­sent, með losun af manna völdum.

Líkur en ekki fullvissa

Það fylgir því alltaf óvissa að meta líkur á nátt­úru­ham­förum. Lyk­il­orðið er einmitt alltaf „líkur“ – aldrei full­vissa.

Vís­inda­menn­irnir benda í rann­sókn sinni á að suð­aust­ur­strönd Afríku verði fyrir áhrifum af veð­ur­kerfum yfir hafi sem sýnt hefur verið fram á að lofts­lags­breyt­ingar hafi þegar gert ill­víg­ari.

World Weather Attribution, WWA, eru sam­tök sér­fræð­inga sem sér­hæfa sig í að fylgj­ast með breyt­ingum á veð­ur­fari og kort­leggja frá­vik. Þau telja að gríð­ar­leg rign­ing­ar­veður séu orðin algeng­ari í sunn­an­veðri Afríku en áður. Veðrið í nokkrum löndum sunnan mið­baugs hefur verið mjög óvenju­legt það sem af er ári. Þrír felli­byljir og tveir hita­belt­is­stormar gengu yfir á aðeins sex vikna tíma­bili. Þetta hafði mikil og nei­kvæð áhrif á líf yfir einnar millj­ónar manna, m.a. vegna mik­illar úrkomu og flóða.

Vís­inda­menn sam­tak­anna segja að vegna mjög tak­mark­aðra veð­ur­gagna sé þó ekki hægt að full­yrða að lofts­lags­breyt­ingar séu almennt að auka tíðni slíkra ofsa­veðra í heims­hlut­anum en gögnin frá Durban og nágrenni skera sig þó úr og því hægt að álykta um það svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár