Þeir sem eiga peningalegar eignir gætu þurft að borga brúsann fyrir COVID-19

Pró­fessor í hag­fræði segir að æski­legt væri að gerð hafi verið áætlun um hvernig og hvenær halla­rekstri rík­is­sjóðs verði snúið við og vextir hækk­aðir í takt við vax­andi hag­vöxt.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Skjáskot

„Eftir far­sótt­ina mun hag­vöxtur aukast og atvinnu­leysi minnka við lægri vexti en áður, meira pen­inga­magn í umferð og halla­rekstur rík­is­sjóðs sem skuldar meira en í upp­hafi far­sótt­ar­innar. Afleið­ingin gæti orðið vax­andi verð­bólga á Vest­ur­löndum sem seðla­bankar gætu átt í erf­ið­leikum með að bregð­ast við. Verð­bólga myndi nú, eins og ára­tug­ina eftir síð­ari heims­styrj­öld í Banda­ríkj­unum, lækka hlut­fall opin­berra skulda og VLF. Þeir sem skulda myndu hagn­ast svo lengi sem verð­bólgan kæmi ekki að fullu fram í hærri nafn­vöxtum og þeir sem eiga pen­inga­legar eignir borga brús­ann fyrir COVID-19.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í grein sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Vís­bend­ingar, sem kom út í lok síð­ustu viku.

Greinin ber fyr­ir­sögn­ina „COVID-19 og eft­ir­málin“. Þar segir Gylfi að ekki sé auð­velt að sjá út úr þeirri far­sótt sem nú herji á heims­byggð­ina og að fyllsta ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af næstu mán­uðum, miklu atvinnu­leysi og gjald­þrotum fyr­ir­tækja. „En ein­hvern tíma, og kannski fyrr en margir ótt­ast, mun far­sóttin taka enda og fólk geta ótta­laust sótt vinnu, keypt þjón­ustu og ferð­ast til ann­arra landa. Þá mun hið mikla fram­boðs­á­fall COVID-19 heyra sög­unni til og þjóðum heims­ins verða létt, bjart­sýni aftur ríkj­andi. En hvernig verður það hag­kerfi sem þá mun vaxa aftur eftir áföll lið­inna mán­aða?,“ spyr Gylfi í grein­inni.

Æskilegt að áætlun sé til staðar

Fyrir liggi að hag­vöxtur muni aukast að far­sótt lok­inni og atvinnu­lausi drag­ast saman. Það verði gert í lægra vaxtaum­hverfi en áður sem þó inni­heldur meira pen­inga­magn í umferð og rík­is­sjóð í halla­rekstri sem mun skulda meira en við upp­haf far­sótt­ar­innar. Þetta gæti leitt til vax­andi verð­bólgu á Vest­ur­löndum með þeim afleið­ingum að þeir sem skulda hagn­ast, svo lengi sem að verð­bólgan kemur ekki að fullu fram í hærri nafn­vöxtum, og þeir sem eiga pen­inga­legar eignir sitji þá uppi með að borga kostn­að­inn af COVID-19.

[adspot]Gylfi segir að Ísland sé í betri stöðu til að takast á við eft­ir­leik­inn en flest stóru ríkin í heim­inum.

Skulda­staða hins opin­bera sé góð, alla­vega enn sem komið er, nafn­vextir jákvæðir og hag­kerfið hefur orðið fyrir minna höggi á fram­boðs­hlið – fólk getur mætt til vinnu og keypt sér þjón­ustu – vegna árang­urs­ríkra sótt­varna. „Lágir nafn­vextir og nei­kvæðir raun­vextir örva nú þegar inn­lenda eft­ir­spurn, erlendir ferða­menn munu aftur venja komur sínar hingað og halla­rekstur rík­is­sjóðs kynda enn meira undir inn­lendri eft­ir­spurn í kjöl­far far­sótt­ar­innar. Við þessar aðstæður, vax­andi atvinnu og mögu­lega óróa á vinnu­mark­aði er æski­legt að gerð hafi verið áætlun um hvernig og hvenær halla­rekstri rík­is­sjóðs verði snúið við og vextir hækk­aðir í takt við vax­andi hag­vöxt.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár