Á aðalfundi Bláa lónsins, sem fór fram fyrr í dag, var samþykkt að greiða út um 30 milljónir evra, alls tæplega 4,3 milljarða króna í arðgreiðslu vegna frammistöðu síðasta árs, samkvæmt heimildum Kjarnans. Það er næstum því tvöfalt hærri greiðsla en var greidd út á síðasta ári í arð, þegar slík greiðsla nam 16 milljónum evra, eða tæplega 2,3 milljarðar króna á núvirði.
Í ársreikningi Bláa lónsins fyrir árið 2018, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að rekstrartekjur fyrirtækisins hafi verið 122,6 milljónir evra, um 17,4 milljarðar króna, á síðasta ári. Það er aukning um 20 prósent frá árinu 2017 þegar þær voru 102,3 milljónir evra, eða um 14,5 milljarðar króna á gengi dagsins í dag.
[adspot]Alls nam hagnaður Bláa lónsins á árinu 2018 26,4 milljónum evra, um 3,7 milljörðum króna. Hann dróst lítillega saman milli ára en hann var 31 milljón evra, um 4,4 milljarðar króna, árið 2017. Það þýðir að arðgreiðslan sem samþykkt var á aðalfundi fyrirtækisins fyrr í dag er hærri en sem nemur hagnaði Bláa lónsins á síðasta ári.
Eigið féð 12,4 milljarðar
Bláa lónið hefur vaxið hratt síðustu misseri, samhliða stórauknum ferðamannastraumi til Íslands. Eignir þess um síðustu áramót voru metnar á 157,2 milljónir evra, eða 22,3 milljarða króna, og eigið fé þess var 87,8 milljónir evra, rúmlega 12,4 milljarðar króna.
Stærsti eigandi félagsins er Hvatning slhf. með eignarhlut upp á 39,1 prósent. Eigandi þess er Kólfur ehf., eignarhaldsfélag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins, og Eðvard Júlíussonar. Kólfur keypti tæplega helming í Hvatningu af Horni II, framtakssjóði í stýringu Landsbréfa, í fyrra. Samkvæmt þessu mun Hvatning fá tæplega 1,7 milljarð króna í arðgreiðslu.
Næst stærsti eigandinn er Blávarmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða, sem keypti 30 prósent hlut HS Orku í Bláa lóninu á tæplega fimmföldu bókfærðu virði hlutarins í maí síðastliðnum, eða á 15 milljarða króna.
Salan á hlutnum í Bláa Lóninu fór fram eftir að Jarðvarmi slhf., félag í eigu sömu lífeyrissjóða, hafði eignast allt hlutafé í HS Orku skömmu áður. Miðað við þessi viðskipti þá er Bláa lónið metið í heild sinni á 50 milljarða króna. Blávarmi mun fá tæplega 1,3 milljarða króna í arðgreiðslu.
Þriðji stærsti eigandinn með 8,7 prósent hlut er Keila ehf., en stærsti eigandi þess er áðurnefnd Hvatning. Arðgreiðsla þess félags mun vera um 370 milljónir króna.
Fjölmiðlaeigendur í eigendahópnum
Fjórðu og fimmtu stærstu hluthafarnir er félögin Hofgarðar ehf. og Saffron ehf. með sitt hvorn 6,2 prósent eignarhlut. Hofgarðar er eignarhaldsfélag í eigu Helga Magnússonar. Helgi var í fréttum nýverið þegar hann keypti helmingshlut í Torgi ehf., útgáfufélagi Fréttablaðsins. Hann er enn fremur stjórnarformaður Bláa lónsins.
[adspot]Saffron er í eigu Sigurðar Arngrímssonar, sem er aðaleigandi sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar. Arðgreiðsla hvors félags mun vera um 264 milljónir króna ef miðað er við gengi dagsins í dag.
Bogmaðurinn ehf., félag í eigu Ágústu Johnson er einnig á meðal stærstu eigenda með 2,4 prósent eignarhlut. Ágústa er eiginkona Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. Arðgreiðsla Bogmannsins mun nema um 102 milljónum króna á gengi dagsins í dag.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir