Dómsmálaráðuneytinu bent á það í október að stafræn ökuskírteini væru auðfalsanleg

Í bréfi borg­ar­stjórnar til ráðu­neyt­is­ins segir að „áber­andi fjöldi“ kjós­enda hafi mætt á kjör­stað í síð­ustu kosn­ingum án skil­ríkja enda sé fólk vant því að greiða með far­símum. Sér­stakur skanni tek­inn í notkun vikum eftir að kosn­ing utan kjör­fundar hófst.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 13. ágúst.
Atkvæða­greiðsla utan kjör­fundar hófst 13. ágúst. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Reykja­vík­ur­borg taldi það nauð­syn­legt í októ­ber í fyrra að skoðun á því hvort útvega þyrfti búnað og gefa út leið­bein­ingar um notkun staf­rænna öku­skír­teina á kjör­stöðum þyrfti að fara fram tím­an­lega fyrir kom­andi kosn­ingar. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var frá skrif­stofu­stjóra borg­ar­stjórnar til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins en Kjarninn hefur bréfið undir höndum. Í bréf­inu var einnig bent á það að öku­skír­teinin voru talin auð­fals­an­leg. Þá óskaði Reykja­vík­ur­borg eftir leið­bein­ingum varð­andi nýt­ingu staf­rænna öku­skír­teina til auð­kenn­ingar á kjós­endum í kom­andi kosn­ingum.

„Af fjöl­miðlum að dæma hafa verið gefnir út tugir þús­unda raf­rænna öku­skír­teina. Í störfum sínum leit­ast kosn­inga­starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar við að vísa kjós­anda aldrei frá kjör­stað fyrr en í allra lengstu lög en ábyrgð­ar­keðja hinna raf­rænu öku­skír­teina þarf að liggja ljós fyrir ef ætl­unin er að taka þau gild á kjör­stað. Í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum eru hátt í 100 kjör­deildir og í for­seta­kosn­ingum sl. sumar mætti áber­andi fjöldi kjós­enda á kjör­stað án skil­ríkja enda fólk orðið vant því að greiða með snjallúrum og snjall­símum,“ segir meðal ann­ars í bréf­inu.

Þar kemur einnig fram að í leið­bein­ingum Reykja­vík­ur­borgar séu skil­ríki með mynd og kenni­tölu talin full­gild, þar með talin debet­kort.

Skanni kynntur til sögunnar vikum eftir að kosning hófst

Kjarninn hafði heim­ildir fyrir því að slíkt bréf hefði verið sent dóms­mála­ráðu­neyt­inu í fyrra og óskaði því eftir bréf­inu sem og svari við því hvernig dóms­mála­ráðu­neytið hefði brugð­ist við efni þess. [adspot]

Í skrif­legu svari frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu segir að brugð­ist hefði verið við ábend­ingum bréfs­ins með leið­bein­ingum um stað­reynslu skír­tein­anna. „Tæpum mán­uði fyrir næstu kosn­ingar bætt­ist síðan við skanni í far­síma sem getur gengið úr skugga um svo óyggj­andi sé að staf­ræn öku­skír­teini séu ófölsuð,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Þrátt fyrir að umræddur skanni hafi verið til­bú­inn um mán­uði fyrir kosn­ingar þá hefur utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla staðið yfir í lengri tíma, hún hófst þann 13. ágúst. Samkvæmt ráðu­neyt­inu og starfs­fólki á kjör­stöðum sem Kjarninn hefur rætt við hófst notkun skann­ans í upp­hafi síð­ustu viku.

Starfsfólki kennt að nota skannann á föstudag

Ekki hafa feng­ist nákvæm­ari upp­lýs­ingar um það hvenær skann­inn var tek­inn í notkun, en ljóst er að skann­inn var ekki not­aður í hátt í þrjár vikur til þess að auð­kenna þá kjós­endur sem fram­vís­uðu staf­rænu öku­skír­teini á þeim stöðum þar sem hægt er að greiða atkvæði utan kjör­fundar. Í sam­tali blaða­manns við einn starfs­mann á kjör­stað kom fram að á föstu­dag hafi farið fram kennsla á notkun skann­ans á raf­rænum fundi. Starfs­mað­ur­inn benti þó á að skann­inn hefði verið not­aður með góðum árangri frá því í upp­hafi síð­ustu viku.

Ekki er hægt að full­yrða um fjölda þeirra kjós­enda sem kjósa að gera grein fyrir sér með staf­rænu öku­skír­teini þegar þeir gengu að kjör­borð­inu á því tíma­bili sem skann­inn var ekki í notkun, enda er slíkt ekki skráð. Líkt og áður segir mætti „áber­andi fjöldi kjós­enda á kjör­stað án skil­ríkja“ í síð­ustu kosn­ingum og því má gefa sér að fjöldi þeirra sem nýtt hafa staf­ræn öku­skír­teini til að kjósa utan kjör­fundar sé tölu­verður.

Kosningasvindl mögulegt fyrir tilkomu skannans

Umræða um staf­rænu öku­skír­teinin og skanna, eða ein­hverja aðra lausn til að auð­kenna kjós­endur sem fram­vísa slíkum skír­teinum, komst í hámæli í síð­ustu viku í kjöl­far greinar sem örygg­is­fyr­ir­tækið Syndis birti á vef sínum. Í grein­inni var fjallað um örygg­is­galla skír­tein­anna og í grein­inni er því bein­línis haldið fram að hægt hafi verið að svindla í kosn­ing­unum sem nú eru hafnar utan kjör­fundar, áður en skann­inn kom til skjal­anna.

Fjallað er um nokkrar leiðir sem eru færar til þess að falsa skír­teinin. Ein­faldasta leiðin er sú að breyta upp­lýs­ingum á skír­tein­inu með því að taka skjá­skot af því og breyta því sem fram kemur á skír­tein­inu. Það hafi ung­lingar til að mynda nýtt sér til þess að kom­ast inn á skemmti­staði án þess að hafa til þess aldur, líkt og fjallað var um í frétt á vef Vísi.

Ólíklegt verður að telj­ast að slíkar fals­anir hefðu blekkt starfs­fólk kjör­staða því ekki er hægt að skoða bak­hlið öku­skír­tein­anna með sama hætti og gert er í raf­rænu veskj­unum sem geyma skír­teinin og þá er ekki hægt að upp­færa sér­stakan tíma­stimpil sem finna má á skír­tein­unum, undir kóð­anum sem nýju skann­arnir skanna.

Gagnrýna seinagang Stafræns Íslands

Samkvæmt grein Syndis er lítið mál að kom­ast hjá því vanda­máli fyrir fólk sem hefur svolitla tækni­þekk­ingu, það sé vel mögu­legt að útbúa passa sem er með öllu sam­bæri­legur staf­ræna öku­skír­tein­inu. Eina leiðin til þess að sann­reyna hvort passi sé gildur sé með því að skanna QR-kóða hans.

Í grein­inni er seina­gangur Stafræns Íslands, sem ber ábyrgð á inn­leið­ingu staf­rænna öku­skír­teina, einnig gagn­rýndur og að því spurt hvers vegna það hafi tekið meira en ár að útbúa skann­ann, eina tólið sem hægt sé að nota til þess að ganga úr skugga um hvort staf­rænt öku­skír­teini sé gilt eður ei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár