Lögreglustjórar vantreysta Haraldi

Átta af níu lög­reglu­stjórum van­treysta Haraldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra.

Átta af níu lög­reglu­stjórum í land­inu hafa lýst yfir van­trausti á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra. Frá þessu er greint á frétta­vefnum Vísi en Úlfar Lúð­víks­son, for­maður Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands, stað­festir þetta í sam­tali við Vísi. Úlfar er lög­reglu­stjóri á Vest­ur­landi. 

Átta af níu lög­reglu­stjórum lýstu nú rétt í þessu yfir van­trausti á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra. Þetta kemur fram í við­tali frétta­stofu við Úlfar Lúð­víks­son sem er for­maður Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands en hann er lög­reglu­stjóri á Vest­ur­landi. Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, er sá lög­reglu­stjóri sem ekki á aðild að van­traust­yf­ir­lýs­ing­unni.

Úlfar segir í við­tali við Vísi að spilin hafi verið lögð á borðið fyrir Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra.

Eins og fram hefur komið mun Rík­is­end­ur­skoðun gera stjórn­sýslu­út­tekt á mál­efnum emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Mikil óánægja hefur verið meðal lög­reglu­emb­ætta með rík­is­lög­reglu­stjóra, meðal ann­ars í tengslum við bíla- og fata­mál, og fleiri atriði. Úlfar segir í við­tali við Vísi að óánægja hafi einnig verið mikil innan sér­sveit­ar­innar.

Haraldur lét hafa eftir sér í við­tali við Morg­un­blaðið á dög­unum að kergja innan lög­regl­unnar, og óánægja með rík­is­lög­reglu­stjóra, væri meðal ann­ars vegna þess að hann og emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefðu verið að taka á spill­ing­ar­málum innan lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár