Þýskaland, Frakkland og Bretland herða aðgerðir

Samhliða fjölgun smita í haust­bylgju kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í Evrópu hafa þrjú Evr­ópu­lönd til­kynnt hertar svæð­is­bundnar sótt­varn­ar­að­gerðir.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Rík­is­stjórnir Frakk­lands, Bret­lands og Þýska­lands hafa allar til­kynnt hertar sótt­varn­ar­að­gerðir til þess að bregð­ast við örri fjölgun smita af kór­ónu­veirunni. Ólíkt fyrstu bylgju far­ald­urs­ins eru tak­mark­an­irnar svæð­is­bundnar og fela ekki í sér algjört útgöngu­bann, en veit­inga­stöðum, börum og skemmti­stöðum eru þó settar þrengri skorður.

Útgöngubann að nóttu til

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands lýsti yfir neyð­ar­stigi í heil­brigð­is­málum og til­kynnti útgöngu­bann að nóttu til í níu frönskum borgum í sjón­varps­ávarpi í gær. Samkvæmt Macron verður íbúum Parísar, Grenoble, Lille, Lyon, Aix-Marseille, Mont­pellier, Rouen, St. Etienne og Toulouse meinað að fara úr húsi á milli níu á kvöldin og sex á morgn­ana, nema þeir hafi góða ástæðu til þess.

Nýju regl­urnar munu taka gildi á laug­ar­dag­inn og mun gilda í að minnsta kosti fjórar vikur, sam­kvæmt umfjöllun Sky um málið. Í sjón­varps­ávarp­inu sagði for­set­inn ástandið vera áhyggju­efni en að landið hefði ekki enn misst stjórn á far­aldr­inum.

Þriggja þrepa kerfi

Í Bret­landi voru sótt­varn­ar­að­gerðir einnig hertar til muna í vik­unni, en Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, til­kynnti þriggja þrepa kerfi til að sporna gegn frek­ari útbreiðslu veirunnar síð­asta mánu­dag. Kerfinu er ætlað að koma reglu á stað­bundnum aðgerðum milli lands­hluta þar sem smit hafa greinst, en með því verður hættu­stig hvers lands­hluta skil­greint á þrenna vegu eftir því hversu útbreidd kór­ónu­veiran er í honum.

Þessa stund­ina er Liverpool eina borgin sem er á þriðja og efsta þrepi kerf­is­ins, en það felur í sér lokun bara og skemmti­staða auk þess sem fólk sem býr ekki saman má ekki eiga sam­neyti við hvert annað inn­an­dyra.

Jonson vildi einnig setja Manchester á þriðja þrepið, en hætti við eftir að hafa mætt mik­illi and­stöðu frá stjórn­mála­leið­togum á svæð­inu. Andy Burnham, borg­ar­stjóri Manchester, sagði aðgerð­ina vera gall­aða og ósann­gjarna þar sem hún fól ekki í sér efna­hags­stuðn­ing til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem myndu missa tekjur vegna þeirra.

Í dag til­kynnti svo Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands, að London, Essex og York yrðu færð yfir á annað þrep, sem felur í sér tak­mark­aðan opn­un­ar­tíma bara og skemmti­staða auk banns á sam­neyti fólks sem býr ekki saman. Við til­kynn­ingu þeirra í breska þing­inu hrós­aði hann Lund­ún­ar­búum sér­stak­lega fyrir að hafa staðið sig vel í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og sagði alla þurfa að leggja sitt lóð á vog­ar­skál­arnar til að koma stjórn á útbreiðslu veirunnar aftur. Nýju regl­urnar munu taka gildi á mið­nætti aðfar­arnótt laug­ar­dags.

Ungir fresti veislum

Þýska rík­is­stjórnin til­kynnti svo í gær nýjar sótt­varn­ar­að­gerðir, þar sem kór­ónu­veirusmitum hefur fjölgað ört þar í landi á síð­ustu dögum. Aðgerð­irnar fela í sér þrengri sam­komu­tak­mark­anir auk styttri opn­un­ar­tíma veit­inga­staða og bara.

Í Þýska­landi, rétt eins og í Bret­landi, eru regl­urnar svæð­is­bundnar og fara eftir því hversu útbreidd veiran er á hverjum stað. Grímu­skylda gildir á mann­mörgum stöðum þar sem sjö daga nýgengi smita er yfir 35 á hverja 100 þús­und, en á stöðum þar sem nýgengi hefur náð yfir 50 eru sam­komur einnig tak­mark­aðar við 25 manns, auk þess sem barir og veit­inga­staðir þurfa að loka klukkan ell­efu á kvöldin. Fjöldi þýskra borga hefur náð þessum efri mörkum, til að mynda Berlín, Frank­furt og Köln.

„Ég er sann­færð um að það sem við gerum núna muni skera úr um hvernig okkur mun farn­ast í þessum far­aldri,“ hefur þýska blaðið Deutsche Welle eftir Angelu Merkel, kansl­ara þýska­lands við kynn­ingu aðgerð­anna. Í því sam­hengi biðl­aði kansl­ar­inn sér­stak­lega til ungs fólks um að fresta veislu­haldi núna til þess að eiga gott líf í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár