Lýst eftir tveimur Rúmenum sem talið er að gætu verið smitaðir af COVID-19

Þrír af sex rúm­enskum rík­is­borg­urum sem komu til lands­ins fyrir fimm dögum voru hand­teknir í gær. Tveir þeirra reynd­ust með virkt COVID-19 smit og smita því aðra. Lög­reglan leitar af hinum þremur.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lýsti í gær eftir þremur rúm­enskum karl­mönnum, sem komu til lands­ins fyrripart vik­unnar, nánar til­tekið fyrir fimm dögum síðan. Menn­irnir þrír komu til lands­ins í sex manna hópi, en þeir eru taldir vera mögu­lega smit­aðir af COVID-19 og vera með virk smit.

Þrír hinna sex mann­anna voru hand­teknir í gær vegna búð­ar­hnupls á Selfossi og reynd­ust tveir þeirra vera greindir með virkt COVID-19 smit. Því grunar lög­regl­una að þeir þrír sem lýst er eftir geti verið smit­aðir líka.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur fram að menn­irnir sem leitað er að heita Pioaru Alex­andru Ionut, Adrian Badiu og Madalin Sorin Dragomir. Ionut og Dragomir eru á þrí­tugs­aldri, en Badiu er á fer­tugs­aldri. Hægt er að sjá mynd af tveimur þeirra efst í þess­ari frétt.

[adspot]Lög­reglan biður alla þá sem geta veitt upp­lýs­ingar um ferðir þre­menn­ing­anna, eða vita hvar þeir eru nið­ur­komnir, að hafa taf­ar­laust sam­band við lög­reglu í síma 112.

Fóru víða

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu greindi frá því í gær að hún hefði hand­tekið áður­nefnda þrjá menn fyrir þjófnað á Selfossi í gær. Við rann­sókn máls­ins hafi komið í ljós að þeir komu til lands­ins fyrir fjórum dögum og áttu því að vera í sótt­kví. Vegna þessa var ákveðið að taka sýni úr nef­koki til að kanna með hugs­an­leg COVID-19 smit.

Nið­ur­stöður bár­ust lög­reglu um hádegi í gær og reynd­ust þá tveir ein­stak­ling­ana vera jákvæðir.

Þar sem menn­irnir voru með virk smit, og höfðu ekki myndað mótefni gegn COVID-19, eru 16 lög­reglu­menn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi og Höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem komu að máli þeirra í sótt­kví.

Viðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði við RÚV í gær að menn­irnir sem voru hand­teknir í gær verði fluttir í far­sótt­ar­hús á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag, sunnu­dag, þar sem þeir verða í ein­angrun. Þar munu þeir sæta gæslu lög­regl­unnar þar til næstu skref verða ákveðin en fá við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu og aðgang að heil­brigð­is­starfs­fólki sem mun meta veik­indi þeirra.

Hann sagði að miðað við þýfið sem fannst sé ljóst að menn­irnir fóru víða og Víðir vonar að menn­irnir verði sam­vinnu­þýðir sem myndi auð­velda alla smitrakn­ingu. „Það er þeim ekki til hags­bóta ef þeir verða það ekki og von­andi átta þeir sig á alvöru máls­ins.“

Samkvæmt núgild­andi reglum eiga allir að fara í sótt­kví sem koma til lands­ins en það breyt­ist á mánu­dag þegar erlendir ferða­menn verða skimaðir fyrir kór­ónu­veirunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár