Velti því fyrir sér „til hvers þessi loftslagsráðherra eiginlega er“

Þing­maður Sam­fylk­ingar gerði dreif­ingu lofts­lags­mála um Stjórn­ar­ráðið að umtals­efni á Alþingi í dag, eftir að ráð­herra lofts­lags­mála benti honum á að lofts­lags­að­gerð sem þing­mað­ur­inn spurði um heyrði undir annan ráð­herra.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar, hér fyrir miðri mynd.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar, hér fyrir miðri mynd. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar spurði Guðlaug Þór Þórð­ar­son ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála út í afstöðu hans til afslátta af vöru­gjöldum til handa bíla­leigum vegna kaupa á bensín- og dísel­bílum, sem námu 875 millj­ónum í fyrra og munu nema um þús­und millj­ónum í ár, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi síð­degis í dag.

Jóhann Páll nefndi að þessir afslættir hefðu veittir í nafni orku­skipta, en bíla­leig­urnar geta ekki fengið þá nema þær kaupi ákveðið hlut­fall vist­vænna öku­tækja inn í flota sína. Hann spurði hvort ráð­herr­ann væri sam­mála því mati skatta­skrif­stofu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að þessi aðgerð gæti hrein­lega tafið fyrir orku­skiptum í sam­göngum og ef svo væri, hvernig ráð­herra ætl­aði að bregð­ast við og hvaða leiðir ráð­herra vildi fara til að hraða raf­væð­ingu bíla­leigu­flot­ans.[links]

Guð­laugur Þór hóf svar sitt á að þakka fyrir spurn­ing­una, en minnti svo á að þetta ein­staka mál væri ekki á hans borði, eins og þing­mað­ur­inn vissi. Hann svar­aði því ekki spurn­ingum sem lutu að afstöðu hans til þess­ara nið­ur­greiðslna á bensín- og dísel­bílum sem bíla­leigur hafa verið að kaupa og munu kaupa á þessu ári, né til þess hvaða aðgerða hann teldi rétt að grípa í því til­tekna máli.

Innviðir um allt land

Ráð­herr­ann sagði svo að þrátt fyrir að Ísland stæði framar en flest ríki í raf­væð­ingu bíla­flot­ans heilt yfir, væri enn mikið verk fyrir höndum. Raf­bíla­væð­ingu þyrfti að flýta eins og hægt væri.

„Ég held að við sjáum það í hendi okkar þegar við skoðum þetta mál að okkur liggur á að byggja upp inn­viði svo þetta sé raun­hæfur kostur, ekki bara fyrir bíla­leigur heldur fólk úti um allt land. Þegar við skoðum það hverjir eru búnir að eign­ast raf­bíla [..] held ég að það megi alhæfa að það sé meira efna­meira fólk sem býr á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þetta verður að vera fyrir alla,“ sagði Guð­laugur Þór.

Loftslagsmálin víða í stjórnarráðinu

Jóhann Páll steig svo aftur í ræðu­stól og sagð­ist telja að Alþingi yrði það tals­vert erfitt um vik að ræða um lofts­lags­mál, ef það ætti að verða við­kvæðið að ákveðnir þættir lofts­lags­mála heyrðu undir aðra ráð­herra.

„Nú er þannig til dæmis að stærsti los­un­ar­þáttur Íslands heyrir ekki undir lofts­lags­ráð­herra heldur mat­væla­ráð­herra, sem er losun sem kemur frá landi og við­brögð við því. Eins er það þannig t.d. að almenn­ings­sam­göngur og inn­viða­upp­bygg­ing almennt heyrir undir inn­við­a­ráð­herra og þá veltir maður fyrir sér til hvers þessi lofts­lags­ráð­herra eig­in­lega er, þegar svona stórir þættir sem hafa með lofts­lags­málin að gera heyra ekki undir hann,“ sagði Jóhann Páll, en bætti svo við að það væri ágætt að Guð­laugur Þór væri til í þetta sam­tal.

„Og við hljótum öll að vera sam­mála um það að orku­skiptum í sam­göngum verður ekki náð fram með millj­arða nið­ur­greiðslu til bensín- og dísel­bíla,“ sagði þing­mað­ur­inn svo.

„Hrærður“ yfir miklu trausti

Guð­laugur Þór mætti aftur í ræðu­stól og svar­aði því til að ef Jóhann Páll væri að leggja til að allt sem heyrði undir lofts­lags­málin færi undir lofts­lags­ráð­herr­ann væri hann „hrærður“ enda þýddi það „gríð­ar­leg völd“ því lofts­lags­málin tengd­ust inn í alla þætti sam­fé­lags­ins.

„Bara það að það sé lagt til að ég fái öll þessi völd, sá sem hér stendur, það er auð­vitað bara ánægju­legt að heyra og ég met það þannig að það sé sér­stakt traust sem hátt­virtur þing­maður er að lýsa yfir gagn­vart þeim sem hér stendur,“ sagði Guð­laugur Þór.

Hann bætti því svo við að lofts­lags­málin væru mála­flokkur sem snertu alla þætti og ekki mál eins ráð­herra, né einnar rík­is­stjórnar, heldur væru þau „þjóð­ar­á­tak.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár