„Plast er vandræðavara“

Elva Rakel Jóns­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, telur mik­il­vægt að fram­leiddar séu vörur úr plasti sem ætl­aðar eru til að end­ast. Við kaupum of mikið af einnota plasti en hægt sé að nýta það betur.

Alþingi sam­þykkti í vik­unni breyt­ingar á lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir sem meðal ann­ars kveða á um að óheim­ilt verði að afhenda plast­burð­ar­poka í versl­unum frá og með 1. jan­úar 2021. Óheimilt verður að afhenda hvers kyns burð­ar­poka án end­ur­gjalds frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Elva Rakel Jóns­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, segir í sam­tali við Kjarnann að með­vit­und varð­andi þessi mál megi þó ekki tak­markast við burð­ar­pok­ann. En þrátt fyrir það lítur hún svo á að litlu aðgerð­irnar, á borð við plast­poka­bannið, skipti einnig gríð­ar­legu máli. „Því ef við ráðum ekki við litlu aðgerð­irnar þá ráðum við heldur ekki við þær stóru,“ segir Elva en hún telur að ekki þurfi sér­stak­lega að rök­ræða bannið, það sé borð­leggj­andi.

Hún segir enn fremur að plast sé vand­ræða­vara, því bæði hafi það sínar góðu og slæmu hliðar. Plast sé stöðugt efni og létt í flutn­ingi og því gott hvað það varðar en ein­stak­lega óhent­ugt þegar það er notað ein­ungis einu sinni. „Við þurfum að breyta sölu­hegðun þannig að ekki séu til boða allar þessar umbúðir,“ segir Elva. „Vanda­málið er að við ofnotum plastið og fram­leiðum einnota vörur. Við þurfum að búa til vörur sem end­ast.“

[box]

Nær ekki yfir nestispoka og ruslapoka í rúllum

Samkvæmt skil­grein­ingu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins eru burð­ar­pokar úr plasti hvoru tveggja þykku pok­arnir sem fást í stykkja­tali á afgreiðslukössum versl­ana og þunnu pok­arnir sem meðal ann­ars hefur verið hægt að fá end­ur­gjalds­laust í græn­metiskælum mat­vöru­búða. Fyrr­nefnt bann tekur ekki til plast­poka sem eru sölu­vara í hillum í versl­unum, svo sem nest­is­poka og rusla­poka sem seldir eru margir saman í rúllum.

[links]

Með sam­þykkt lag­anna er fylgt eftir til­lögum sam­ráðs­vett­vangs um aðgerðir í plast­mál­efnum sem í sátu full­trúar atvinnu­lífs, sveit­ar­fé­laga, umhverf­is­vernd­ar­sam­taka, félaga­sam­taka, opin­berra stofn­ana, Alþingis, ráðu­neyta og fleiri. Hópurinn skil­aði umhverfis- og auð­linda­ráð­herra til­lögum að 18 aðgerðum í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og bann við burð­ar­plast­pokum var ein þeirra.

Lögin kveða jafn­framt á um að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra setji fram tölu­leg mark­mið varð­andi árlega notkun burð­ar­poka úr plasti í reglu­gerð.

Frumvarpið gengur lengra en tilskipunin gerir ráð fyrir

Með lög­unum er inn­leidd Evr­óputil­skipun er lýtur að því að draga úr notkun á burð­ar­pokum úr plasti. Frum­varpið gengur þó lengra sam­kvæmt ráðu­neyt­inu en lág­marks­kröfur til­skip­un­ar­innar gera ráð fyrir. Þannig ná þau til allra burð­ar­poka úr plasti, óháð þykkt þeirra, meðal ann­ars þunnu plast­pok­ana sem m.a. hafa verið fáan­legir við græn­metiskæla versl­ana.

Lögin kveða einnig á um að óheim­ilt verði að afhenda burð­ar­poka úr plasti, hvort sem er með eða án end­ur­gjalds, á sölu­stöðum vara frá og með 1. jan­úar 2021, en þó til­skip­unin kveði ekki á um þetta er í henni til­tekið að aðild­ar­ríkjum sé heim­ilt að grípa til slíkra ráð­staf­ana. Þá eru allir burð­ar­pokar gerðir gjald­skyldir, óháð því úr hvaða efni þeir eru. Þetta er gert til að reyna að auka hlut fjöl­nota poka, draga úr ofneyslu burð­ar­poka og koma í veg fyrir að ein einnota neysla fær­ist yfir á aðra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir bann við burð­ar­plast­pokum ekki ætlað að vera alls­herj­ar­lausn á plast­vanda­mál­inu, heldur ein aðgerð af mörgum. „Í mínum huga er þetta er sér­stak­lega mik­il­væg aðgerð því hún snertir dag­legt líf okkar og eykur þannig vit­und okkar um plast og notkun þess í okkar dag­lega lífi. Ég fagna því líka að með þessum lögum gengur Ísland á undan með góðu for­dæmi og tekst af enn frek­ari krafti á við plast­mengun og neyslu en alþjóða­samn­ingar okkar segja til um,“ segir ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár