Íbúðalánasjóður getur gjaldfellt lán eða breytt lánskjörum hjá þeim sem ætla að græða

Íbúða­lána­sjóður hefur gripið til aðgerða gagn­vart félögum sem rekin eru með arð­sem­is­sjón­ar­miði en hafa tekið lán hjá sjóðnum sem ætluð eru fyrir óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög.

Íbúða­lána­sjóður getur krafið þau félög sem virð­ast rekin með arð­sem­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi, en hafa samt sem áður sóst eftir lánum frá sjóðnum sem eiga að úti­loka félög sem rekin eru í hagn­að­ar­skyni, um ýmis­konar gögn er varða starf­semi þeirra.

Verði sjóð­ur­inn var við að lán­takar brjóti gegn skil­yrðum sem gerð eru til lán­tak­end­anna þá getur hann beitt tvenns konar úrræðum gegn þeim sem ger­ast brot­legir. Annars vegar getur hann gjald­fellt lánin og hins vegar boðað breyt­ingar á láns­kjörum. Þetta kemur fram í svörum Íbúða­lána­sjóðs við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[adspot]Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að Íbúða­lána­sjóður hafi beitt síð­ara úrræð­inu, að boða breyt­ingar á láns­kjörum, gagn­vart félögum sem sann­ar­lega eru rekin í hagn­að­ar­skyni en hafa samt sem áður tekið umrædd lán. Þekktasta dæmið um slíka starf­semi er leigu­fé­lagið Heima­vellir, sem skráðu sig á markað í fyrra með það að mark­miði að end­ur­fjár­magna lánin frá Íbúða­lána­sjóði til að geta losað sig undan þeirri kvöð að mega ekki greiða arð.

Á meðal ann­arra þekktra aðila sem hafa nýtt sér umrædd lán til að fjár­magna kaup á ýmsum eignum er fjár­festir­inn Matthías Imsland. Félag á hans vegum keypti meðal ann­ars eignir í Vest­manna­eyjum í fyrra fyrir lán sem ætluð eru óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum og í sept­em­ber síð­ast­liðnum keypti hann fjórtán íbúða blokk á Akranesi af Heima­völlum með sömu fjár­mögnun. Matthías var aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur, þáver­andi ráð­herra hús­næð­is­mála og þess ráð­herra sem Íbúða­lána­sjóður heyrði undir, þegar reglu­gerð um þessa teg­und lána var sett árið 2013.

Má ekki vera starfsemi rekin í hagnaðarskyni

Reglu­gerð 1042/2013 snýst um að Íbúða­lána­sjóð­ur, sem er í eigu rík­is­ins, veiti lán til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið reglu­gerð­ar­innar var að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“.

Reglu­gerðin setur þau skil­yrði að allir sem fái lán undir hatti hennar megi ekki vera reknir í hagn­að­ar­skyni „og úr þeim má hvorki greiða arð né arðs­gild­i“.

[adspot]Lánin eru tvenns kon­ar. Ann­ars vegar svokölluð leigu­í­búð­ar­lán sem eru ekki félags­leg. Hins vegar hafa verið veitt svokölluð félags­leg íbúð­ar­lán. Þau eru bundin sömu skil­yrðum og almennu leigu­í­búð­ar­lánin auk þess sem að við­bót­ar­skil­yrði eru um að íbúð­irnar sem lánað er til má ein­göngu leigja til þeirra ein­stak­lingar og fjöl­skyldna sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­ar­mörk­um. Þau lán eru auk þess veitt á nið­ur­greiddum vöxt­um. Heim­ild til að veita slík lán féll úr gildi í lok árs 2017.

Kjarninn greindi frá því í fyrra­sumar að Íbúða­lána­sjóður hefði þá lánað alls 25 félögum 18,4 millj­arða króna á grund­velli reglu­gerð­ar­innar. Langstærstur hluti lán­anna fór til Heima­valla, sem skráði sig svo á markað með það yfir­lýsta mark­mið að ætla sér að greiða arð. Auk þess höfðu Heima­vellir orðið upp­vísir að því að greiða umsýslu­fé­lagi tengt þáver­andi stjórn­ar­mönnum, stjórn­endum og nokkrum hlut­höfum, alls 480 millj­ónir króna í þóknana­greiðslur, meðal ann­ars fyrir það sem var kallað „grein­ingu og fram­kvæmdir fjár­fest­inga“.

Eigið fé langt yfir markaðsvirði

Lyk­il­hlut­hafar Heima­valla reyndu að afskrá félagið fyrr á þessu ári eftir að illa gekk að fá stóra fag­fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði til að fjár­festa í því og eftir að félag­inu mistókst að end­ur­fjár­magna sig í takti við fyrri áætl­anir sem áttu að losa það undan arð­greiðslu­hömlum.

Kauphöll Íslands hafn­aði þeim til­raunum og þess í stað fóru helstu hlut­hafar Heima­valla í þá veg­ferð að selja eignir með það mark­mið að skila arð­inum af þeim til hlut­hafa.

Marka­virði Heima­valla í dag er rétt tæp­lega 13 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins, mun­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða 19,4 millj­arðar króna miðað við síð­asta birta upp­gjör.

Kjarninn greindi frá því í maí síð­ast­liðnum að sam­kvæmt verð­mati sem Arctica Finance vann í vor, og hluti hlut­hafa Heima­valla höfðu aðgang að og er kyrfi­lega merkt trún­að­ar­mál, hafi komið fram að Arctica Finance hafi metið eignir Heima­valla á mun hærra verði en gert var í birtum reikn­ingum þess. Samkvæmt því mati átti eigið fé Heima­valla að hafa átt að vera 27 millj­arðar króna í vor, eða 14 millj­örðum krónum meira en mark­aðsvirði félags­ins er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár