Flughrætt þotulið

Hópur flug­hræddra Breta endar á afskekktu hót­eli á Suð­ur­nesjum í leit að bót sinna meina.

Sjónvarp & Bíó

Northern Comfort

Leikstjórn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
Leikarar Lydia Leonard, Timothy Spall, Timothy Spall, Ella Rumpf, Nick Blakeley, Gina Bramhill, Rob Delaney, Emun Elliott, Sverrir Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson, Naveed Khan, Simon Manyonda, Ashley McGuire, Ahd Tamimi
97 mínútur
Niðurstaða:

Litríkar persónur skemmta manni vel í mynd um sammannlega hræðslu sem hefði mátt enda svona mínútu fyrr.

Gefðu umsögn

Útlend­ingar sem vill­ast til Íslands er að verða lítil hlið­ar­grein í íslenskri kvik­mynda­sögu. Fyrst komu útlenskir meðal-Jónar til lands þar sem útlend­ingar sáust varla í Á köldum klaka og Stuttum Frakka, eftir fálka­ræn­ingja Friðriks Þórs komu jað­ar­settar konur til lands­ins í Andið eðli­lega og Wolka og loks for­dekraður danskur prestur í Volaða land.

Þetta býður vissu­lega þeirri hættu heim að leik­stjórar detti í allar klisju­súp­urnar, en heilt yfir hefur þessum leik­stjórum tek­ist merki­lega vel að fá gests augun lánuð til að sjá eitt­hvað nýtt og ferskt við Ísland – og það á bless­un­ar­lega við um Northern Comfort.

Við byrjum skýjum ofar – sem reyn­ist þó vera á jörðu niðri í London, þar sem hópur flug­hrædds fólks í flug­hermi reynir að ná valdi á hræðsl­unni. Svo fylgjum við fast­eigna­sal­anum Söru eftir, konu sem virð­ist vera með flest sitt á hreinu og gengur vel í líf­inu – en lifir í lygi með sína flug­hræðslu, sem litar allt hennar líf og hún veit að hún þarf að gera eitt­hvað í því áður en spila­borgin hrynur.

Þessi ein­faldi upp­haf­skafli reyn­ist svo til­finn­inga­akk­eri mynd­ar­innar, þótt maður sé kannski laus við flug­hræðslu þá erum við flest haldin ein­hverjum órök­réttum ótta, sem er okkur enda­laus far­ar­tálmi í líf­inu og fær okkur til að haga okkur heimsku­lega og órök­rétt og jafn­vel ljúga. Til­finn­ingin er merki­lega svipuð þótt ótt­inn sé ekki endi­lega sá sami. Og þetta er mynd þar sem hvít lygi kemur per­són­unum ítrekað í koll.

Northern Comfort stikla

Svo mætum við í hið raun­veru­lega flug og stuttu eftir flug­tak er lykilaugna­blik þar sem maður áttar sig á að þetta er hin íslenska Triangle of Sadness, þegar skand­in­av­íski tækni­brós­inn tekur æðiskast og maður minn­ist þess að í Sorg­ar­þrí­hyrn­ingi Östlunds var skand­in­av­íski tækni­brós­inn einna skástur auð­kýf­ing­anna. Þetta er þó jarð­bundn­ari mynd þrátt fyrir loft­hæð­ina, þau ná fæst upp í eina pró­sentið á meðan millj­arða­mær­ing­arnir í Triangle of Sadness voru í efsta pró­mill­inu. Þau eru líka mann­legri og við­kunn­an­legri þrátt fyrir að öll eigi það til að vera óþol­andi og eig­in­gjörn líka. Sorg­ar­þrí­hyrn­ing­ur­inn var fyrst og fremst ískrandi satíra og Northern Comfort er vissu­lega gam­an­mynd líka, en ekki síður drama og á kafla smá hryll­ings­mynd (rit­höf­undur missir vitið á afskekktu hót­eli, halló Shining), eitt­hvað sem tón­list Daníels Bjarna­sonar und­ir­strikar skemmti­lega. Tón­listin er oft mögnuð, sér­stak­lega í fyrri hlut­anum, þar sem lítil stef sögðu risa­stóra sögu.

Fyrst og fremst er þó gaman að fylgja þessum kostu­legu per­sónum. Timothy Spall stelur ófáum senum og er nógu góður leik­ari til að átta sig á að í svona hlut­verki er það dyggð að ofleika. Seint í mynd­inni mætir Björn Hlynur Har­alds­son og stelur ófáum senum líka, það er gaman að sjá hann sleppa alger­lega fram af sér beisl­inu – og vera um leið helsta sögn mynd­ar­innar um það hvernig Ísland er hægt og rólega að verða túristapara­dís fyrir rík­asta pró­sent jarð­kringl­unnar.

„Fyrst og fremst er þó gaman að fylgja þessum kostu­legu per­sónum.“

Sverrir Guðnason er óþekkj­an­legur og skemmti­legur sem tækni­brós­inn Alfons og Ella Rumpf, sem kærastan Coco, leikur per­sónu sem kemur stundum á óvart, en er þó sú per­sóna sem hefði mátt þróa aðeins betur. Þá er full­trúi almúg­ans, Simon Manyonda, sem far­ar­stjór­inn sein­heppni Charles, lúm­skt góður í hlut­verki manns sem er að missa tökin sem far­ar­stjóri kröfu­harðra auð­manna.

Í minni hlut­verkum er Rob Delaney eft­ir­minni­leg­astur sem kven­samur flug­maður en kær­asti Söru er veikur hlekkur, mik­il­vægur fyrir sög­una en full óáhuga­verður. Það er hins vegar Lydia Leonard sem heldur mynd­inni uppi sem Sara, þetta er marg­breyti­leg per­sóna og það sést í and­lit­inu á henni, sem geymir margar konur eftir því hvaða hlut­verk Sara þarf að leika núna, enda á sífelldum flótta – og kannski er það hin raun­veru­lega merk­ing tit­ils­ins: Ísland sem tíma­bundið skjól. Ef maður hefur efni á því, auð­vitað.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár