Ritstjóri DV: „Stórslys fyrir lýðræðið“ ef frambjóðandi Flokks fólksins næði inn á þing

Björn Þor­finns­son rit­stjóri DV svarar athuga­semdum Ástu Lóu Þórs­dóttur, fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins, við frétta­flutn­ing af máli Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar fullum hálsi í dag. Rit­stjór­inn segir fram­bjóð­and­ann gaspra af ábyrgð­ar­leysi.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Björn Þorfinnsson og Jakob Frímann Magnússon.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, Björn Þor­finns­son og Jakob Frímann Magn­ús­son. Mynd: Samsett/DV/Flokkur fólksins

Björn Þor­finns­son, rit­stjóri DV, seg­ist aldrei hafa upp­lifað annað eins áreiti á ferli sínum í blaða­mennsku og í kjöl­far þess að mið­ill­inn birti frétt um aðkomu Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar, odd­vita Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, að því að útvega barni svo­kallað liprunar­bréf frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, svo barnið gæti farið úr landi í mars í fyrra.

Hann gagn­rýnir Ásthildi Lóu Þórs­dóttur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins harð­lega, í svari til hennar í gegnum aðgang DV á Facebook, og segir raunar að hún sýni af sér dóm­greind­ar­leysi sem sýni fram á að það yrði „stór­slys fyrir lýð­ræðið“ ef hún næði kjöri til Alþingis.

Fram kom í frétt DV fyrr í vik­unni að móðir barns­ins, sem væri for­sjárað­ili þess, teldi að Jakob Frímann hefði mis­notað stöðu sína sem fyrr­ver­andi starfs­maður ráðu­neyt­is­ins og þjóð­þekktur ein­stak­lingur til að koma barn­inu til föð­ur­ins, sem er búsettur erlendis, með blekk­ingum. Auk þess, að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu væri að skoða málið.

Í beiðni sinni til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sagði Jakob Frímann meðal ann­ars að barnið væri í „fjöl­skyld­unni“ en barnið teng­ist honum þó engum fjöl­skyldu­böndum, heldur er Jakob Frímann vinur föð­ur­ins, sem býr erlendis.

Utan­rík­is­ráðu­neytið aft­ur­kall­aði síðar liprunar­bréfið og hefur beðið móður barns­ins afsök­unar á því að hafa ekki kannað sann­leiks­gildi þess að móð­irin væri sam­þykk för barns­ins, en því hélt Jakob Frímann fram í beiðni sinni til ráðu­neyt­is­ins.

Ekki komst upp um aðkomu Jakobs Frímanns að mál­inu fyrr en móð­ur­fjöl­skyldan átti fund með ráðu­neyt­inu og fór fram á að fá öll gögn máls­ins afhent.

Þau gögn sýna að til­laga Jakobs Frímanns að texta liprunar­bréfs­ins var afrituð orð­rétt yfir á bréfs­efni ráðu­neyt­is­ins af hálfu starfs­manna utan­rík­is­þjón­ust­unnar, en liprunar­bréf sem þessi hafa verið gefin út til þess að liðka fyrir ferðum fólks á milli landa á tímum COVID-19, en í mars í fyrra voru lönd óðum að loka sig af til þess að hamla útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og sýna þurfti fram á nauð­syn ferða­laga.

Ritstjórinn segir frambjóðandann mislesa skjáskot

Ásta Lóa Þórs­dóttir, sem er odd­viti Flokks fólks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, full­yrti í svari sínu á Facebook við frétt DV í gær að mið­ill­inn væri að sleppa lyk­il­at­riði úr frétt­inni, sem væri það að móð­irin hefði verið sam­þykk því að barnið færi úr landi. Vísar hún til þess að hafa fengið að sjá skjá­skot um hið sama.

Óhætt er að segja að rit­stjóri DV hafi svarað þessum aðfinnslum og öðrum sem Ásta Lóa gerir við frétta­flutn­ing DV fullum hálsi í morgun, í nafni fjöl­mið­ils­ins. Hvað varðar sam­þykki móð­ur­innar segir rit­stjór­inn að Jakob Frímann hafi sent miðl­inum skjá­skot, sem sé vænt­an­lega það sama og Ásta Lóa hafi fengið að sjá.

„Þar kemur fram að sam­þykki lá fyrir um ferð barn­anna til föður síns þann 6.apríl (og mögu­lega fyrr ef aðstæður leyfðu og í því sam­hengi var minnst á 1.apríl þó ekk­ert væri ákveðið). Þetta teljið þið flokks­fé­lag­arnir sem sam­þykki fyrir skyndi­legri ferð út þann 19.mars án vit­undar móður- 2-3 vikum fyrr. Mér hrýs hugur við þeirri til­hugsun að fólk með slíkar tak­mark­anir í lesskiln­ingi sé að sækj­ast eftir sæti á Alþingi og reyna að túlka og bæta við­kvæma laga­texta,“ segir rit­stjór­inn í svari sínu til fram­bjóð­and­ans.

Í svari sínu segir rit­stjór­inn einnig að fréttin snú­ist um „inn­grip þjóð­þekkts manns með tengsl við ráðu­neyti sem fékk flýti­af­greiðslu innan stjórn­sýsl­unnar“ sem ekki sé í boði fyrir almenna borg­ara, „án þess að reynt væri með nokkrum hætti að sann­reyna þær upp­lýs­ingar sem hann lagði fram.“

„Þetta er áfell­is­dómur yfir stjórn­sýsl­unni enda end­aði málið með þeim for­dæma­lausa hætti að ráðu­neytið baðst afsök­unar á vinnu­brögðum sínum. Flokks­fé­lagi þinn fékk tvo sól­ar­hringa til að útskýra sína aðkomu og í stað þess að við­ur­kenna mis­tök og mögu­lega ein­hvers­konar fljót­færni eða mis­skiln­ing hófst her­ferð til að þagga frétt­ina niður og áreiti sem að á sér ekki hlið­stæðu á ferli mínum sem blaða­maður. Enn er síðan haldið áfram að reyna að gera lítið úr frétt­inni með rang­færslum,“ segir rit­stjór­inn í svari sínu.

Snúist ekki um sorglega forsjárdeiluna

Björn segir einnig að DV hafi eftir fremsta megni reynt að láta frétt­ina snú­ast um stjórn­sýsl­una og inn­grip Jakobs, „frekar en hina sorg­legu for­sjár­deilu sem er ekki okkar að leysa“.

Hann gagn­rýnir síðan fram­bjóð­and­ann fyrir að hika ekki við, „í aumk­un­ar­verðri til­raun til að skríða inn á þing, að gaspra um þetta mál og draga álykt­anir án þess að vita neitt um málið annað en að hafa séð skjá­skot/tölvu­póst­inn hér fyrir neðan. Í stað þess að hafa hug­rekki til þess að takast á við mis­tök fram­bjóð­enda, reyna að útskýra þau með hrein­skiptum hætti og axla ábyrgð, þá farið þið í vörn og reynið í þokka­bót að ráð­ast á trú­verð­ug­leika fjöl­mið­ils sem reynir að sinna skyldum sínum,“ segir rit­stjór­inn.

Björn bætir því við að það sé „bein­línis ógn­verkj­andi“ að hugsa til þess „hvernig Flokkur fólks­ins og liðs­menn hans myndu hegða sér ef þið kæmust ein­hvern tím­ann í áhrifa­stöðu og væruð að sýsla með þjóð­hags­lega mik­il­væg mál.“

„Þú ættir að skamm­ast þín Ásta Lóa Þórs­dóttir að láta nota þig með þessum hætti til að reyna að verja flokk­inn og það dóm­greind­ar­leysi sýnir svart á hvítu að þú átt ekk­ert erindi inn á þing. Í raun­inni væri það stór­slys fyrir lýð­ræðið,“ segir rit­stjór­inn.

Ásta Lóa telur ritstjórann reiða hátt til höggs

Ásta Lóa hefur svarað þessum orðum rit­stjór­ans og segir hann reiða hátt til höggs með ummælum sínum um sig. „Finnst þér þetta orða­lag þér sæm­andi sem rit­stjóra?“ spyr fram­bjóð­and­inn meðal ann­ars.

Hún seg­ist ekki skilja hvers vegna DV kaus að slá mál­inu upp með þeim hætti sem mið­ill­inn gerði og segir málið hafa verið látið snú­ast um „mann sem var að reyna að hjálpa.“

Fram­bjóð­and­inn segir enn­fremur að Jakob Frímann hafi verið í „góðri trú að hjálpa bæði for­eldrum og barni“ og að dag­setn­ingar flug­miða barns­ins úr landi hafi vænt­an­lega ekki verið á hans könnu.

Hún lætur þess þó hvergi getið að Jakob hafi í bréfi sínu til ráðu­neyt­is­ins látið að því liggja að barnið væri í fjöl­skyldu hans, sem er ekki rétt.

„Ég hef í því sem ég hef skrifað lagt áherslu á að Jakob hafi verið í góðri trú og ég forð­ast að fjalla um málið að öðru leyti. Ég stend við það. Komi annað í ljós mun ég þurfa að end­ur­skoða minn mál­flutn­ing, en almennt, og ekki síst þegar fólk sýnir hjálp­semi í góðri trú, á að að leyfa því að njóta vafans, þar til sekt þess er sönnuð,“ segir Ásta Lóa í svari sínu til rit­stjór­ans.

Fréttin hefur verið upp­færð með við­brögðum Ást­hildar Lóu við svari Björns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár