Ætla að aðstoða skólabörn og fjölskyldur við að ramma inn daginn

Nýr útvarps­stjóri segir að framundan séu óvenju­legri tímar með for­dæma­lausu sam­komu­banni. RÚV ætlar að breg­ast við aðstæð­unum og meðal ann­ars aðstoða skóla­börn og fjöl­skyldur við að ramma inn dag­inn nú þegar skóla­hald verður tak­markað.

Stefán Eiríksson
Stefán Eiríks­son Mynd: Bára Huld Beck

„Síðustu dagar hafa verið óvenju­legir og úrlausn­ar­efnin ótelj­andi.“ Þetta segir Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Þá bendir hann á að framundan séu enn óvenju­legri tímar með for­dæma­lausu sam­komu­banni og ýmsum öðrum mik­il­vægum ráð­stöf­unum. Þær ráð­staf­anir séu tíma­bærar og nauð­syn­legar og muni tryggja að Íslend­ingar nái tökum á þeirri stöðu sem uppi er.

„Við hjá RÚV höfum verið að und­ir­búa okkur undir þessa stöðu síð­ustu daga og vikur í sam­starfi við ýmsa aðila, bæði til þessa að tryggja órofna starf­semi RÚV á tímum sem þessum og skipu­leggja og und­ir­búa einnig hvernig við getum enn bætt og styrkt okkar upp­lýs­inga­miðlun, fræðslu, skemmtun og afþr­ey­ingu,“ skrifar hann.

Hafa skýru hlutverki að gegna

Þá bendir Stefán á að þau á RÚV hafi mik­il­vægu og skýru hlut­verki að gegna í almanna­varna­á­standi eins og nú ríkir. Það eigi við um miðlun frétta, upp­lýs­inga og ekki síður afþrey­ing­ar­efnis af ýmsu tagi. Hann telur að öllum þeim verk­efnum sem þessu fylgja hafi starfs­fólk RÚV sinnt af mik­illi fag­mennsku og elju und­an­farnar vikur og mán­uði.

„Margt er í und­ir­bún­ingi sem þegar er byrjað að kynna í dag og áfram næstu daga. Við munum með fjöl­breyttum hætti aðstoða skóla­börn og fjöl­skyldur við að ramma inn dag­inn nú þegar skóla­hald verður tak­markað og gera allskyns fræðslu­efni aðgengi­legt, við erum að fram­leiða og setja í dreif­ingu á næstu dögum aðgengi­leg örmynd­bönd með lykil-fræðslu­at­riðum sem tengj­ast stöðu mála, höfum fengið til liðs við okkur þýð­endur til að þýða fréttir og upp­lýs­ingar yfir á pólsku til við­bótar við enskar þýð­ingar, munum sam­eina morg­un­út­varp rásar eitt og tvö frá og með mánu­degi og sjón­varpa þeirri útsend­ingu sömu­leiðis og erum með í vinnslu ítar­legan frétta­skýr­inga­þátt um COVID-19 og ítar­legan upp­lýs­inga­þátt í kjöl­far þess, allt í næstu viku,“ skrifar hann.

Huga að ýmsu sem snýr að leikfimi og hreyfingu

Að hans sögn eru þau á RÚV að skipu­leggja ýmis­legt í sam­starfi við Þjóð­leik­húsið og fleiri menn­ing­ar­stofn­anir og auka við alla útsenda dag­skrá, þar á meðal af vin­sælu eldra efni. „Við erum einnig að huga að ýmsu sem snýr að leik­fimi og hreyf­ingu, ekki síst þeirra sem nú kom­ast ekki í hefð­bundna sjúkra­þjálfun eða leik­fimi, og sömu­leiðis með jóga, hug­leiðslu og öðru því sem hjálpar við að byggja upp og við­halda and­legum styrk.“

Útvarps­stjóri lýkur færslu sinni með því að segja að með sam­starfi og sam­vinnu allra munum við kom­ast vel í gegnum þessa „miklu áskorun sem við okkur blasir. Við gerum það einnig með hlýju og vænt­um­þykju gagn­vart hvert öðru, skulum vera dug­lega að dreifa hrósi og jákvæðum straumum út um allt. Ég hlakka mikið til að kynna nánar fyrir ykkur allt það sem RÚV mun leggja af mörkum í þessum efnum á næstu vikum og mán­uðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár