„Í mínum huga átti aldrei að ákæra Cosby, aldrei“

„Þetta er hneyksli. Ég er með hnút í mag­anum.“ Við­brögðin við ógild­ingu kyn­ferð­is­brota­dóms yfir Bill Cosby hafa verið gríð­ar­leg. Hann er ekki laus úr fang­elsi vegna þess að hæsti­réttur telji hann sak­lausan heldur vegna ákvörð­unar frá árinu 2005.

Bill Cosby.
Bill Cosby. Mynd: EPA

Bill Cosby hélt tveimur fingrum á lofti til marks um sigur er hann gekk út úr fang­els­inu í Montgomery-sýslu í Penn­syl­vaníu í gær. Hann var orð­inn frjáls maður eftir að hafa verið bak við lás og slá í tvö ár. Cosby, þekkt­astur fyrir að leika Fyr­ir­mynd­ar­föð­ur­inn, stóð hljóður við hlið lög­manna sinna á blaða­manna­fundi skömmu síðar. „Honum finnst hann frjáls,“ sagði einn lög­mann­anna og hinn 83 ára gamli Cospy birti skömmu síðar gamla mynd af sér á Twitter með krepptan hnefa til him­ins.

[adspot]

„Þetta er hneyksli,“ sagði Victoria Val­entino í kjöl­farið. „Ég er með hnút í mag­anum.“

Val­entino er ein þeirra kvenna sem sakað hafa Cosby um kyn­ferð­is­of­beldi. Fyrir þrjú slík brot var hann dæmdur í þriggja til tíu ára fang­elsi árið 2018. Brotin voru alvar­leg. Hann byrl­aði konu ólyfjan og mis­not­aði kyn­ferð­is­lega.

Fjöl­margir taka undir með Val­entino og undr­ast að maður sem kvið­dómur taldi hafið yfir allan vafa að væri sekur um kyn­ferð­is­glæpi sé frjáls ferða sinna.

Fjórir á móti þremur

Frelsið fékk Cosby í kjöl­far þess að hæsti­réttur Penn­syl­vaníu ómerkti dóm yfir honum af lægra dóm­stigi. Í hæsta­rétti rík­is­ins sitja sjö dóm­arar og meiri­hluti þeirra, fjórir, vildu ómerkja dóm­inn en þrír vildu að hann stæði.

Ómerk­ingin hefur hins vegar ekk­ert með þau lög að gera sem Cosby braut með athæfi sínu enda ekki um þau fjallað í nið­ur­stöðu meiri­hluta hæsta­réttar. Bill Cosby getur um frjálst höfuð strokið vegna laga­tækni­legs atriðis. Vegna þess að fyrir mörgum árum gaf sak­sókn­ari í Montgomery-sýslu það út að hann ætl­aði ekki að ákæra Cosby. Túlkun nýs sak­sókn­ara var hins vegar sú að ákvörð­unin ætti ekki að standa til allrar eilífðar. Því er hæsti­réttur ósam­mála og því er fyr­ir­mynd­ar­fað­ir­inn laus úr fang­elsi.

Árið 2004 kærði Andrea Constand Cosby fyrir að byrla sér ólyfjan og brjóta gegn sér kyn­ferð­is­lega. Málið fór til rann­sóknar hjá sak­sókn­ara Montgomery-sýslu á þeim tíma, Bruce Castor. Hann taldi málið hins vegar ólík­legt til sak­fell­ingar, m.a. þar sem Constand beið í ár með að að kæra og var áfram í sam­bandi við Cosby eftir hið meinta ofbeldi. Hann ákvað að gefa ekki út ákæru en sú ákvörðun féll ekki í góðan jarð­veg. Þarna var óþekkt kona að saka heims­frægan og valda­mik­inn karl um ofbeld­is­verk. Órétt­lætið yrði vart mikið meira.

Til að reyna að lægja öld­urnar gaf Castor út frétta­til­kynn­ingu sem í stóð að emb­ættið myndi ekki ákæra Cosby en að sú ákvörðun myndi hins vegar opna leiðir til að höfða einka­mál á hendur honum. Enginn skrif­legur samn­ingur um frið­helgi var gerður milli Castors og Cosby en Castor, sem í dag er nýjasti lög­maður Donalds Trumps, lét þá skoðun sína í ljós er leik­ar­inn var hand­tek­inn að nið­ur­staða hans um að ákæra hann ekki ætti enn við. Eft­ir­maður hans í starfi væri bund­inn af þeirri nið­ur­stöðu. „Í mínum huga átti aldrei að ákæra Cosby, aldrei,“ ítrek­aði sak­sókn­ar­inn fyrr­ver­andi í vitn­is­burði sínum í rétt­ar­höld­unum yfir leik­ar­anum. „Mín trú var sú að ég hefði vald til að gefa slíkt út.“

[adspot]

Eft­ir­maður Castors, Kevin Steele, taldi yfir­lýs­ingar Castors hins vegar eins og fyrr segir ekki duga inn í eilífð­ina og aðeins örfáum dögum áður en þá meint brot Cosbys gegn Constand fyrnd­ust hand­tók hann leik­ar­ann, m.a. á grunni fram­burðar hans í einka­mál­inu sem Constand höfð­aði mörgum árum fyrr. Aðgangur að þeim gögnum hafði þá nýlega feng­ist opn­aður. Í vitn­is­burði Cosbys sagð­ist hann hafa „boðið“ konum sem hann vildi hafa kyn­mök við, deyfi­lyf.

Og Steele lét vaða.

Nið­ur­staða meiri­hluta hæsta­réttar Penn­syl­vaníu-ríkis er hins vegar sú að Steele hafi verið skylt að standa við ákvörðun fyr­ir­renn­ara síns. Í nið­ur­stöð­unni er hand­taka Cosbys einnig gagn­rýnd og sögð „lít­ils­virð­ing“ við grunn­gildi rétt­læt­is­ins, sér­stak­lega í ljósi þess að hún end­aði með ákæru sem hafði verið vísað frá fyrir meira en ára­tug.

Ofbeld­is­verk Cosbys komust í hámæli í #metoo bylt­ing­unni. Hún hófst með ásök­unum á hendur valda­miklum körlum í Hollywood og hrísl­að­ist svo um öll horn heims­ins. Ákæran á hendur Cosby var eitt fyrsta stóra dóms­málið af þessum toga í kjöl­far bylt­ing­ar­innar og þótti til marks um að þögnin hefði verið rofin og breyt­ingar væru í far­vatn­inu.

Cosby var ákærður fyrir að brjóta gegn Constand en við rétt­ar­höldin heim­il­aði dóm­ari vitn­is­burð fimm kvenna til við­bótar sem sök­uðu leik­ar­ann um það sama. Þau brot voru hins vegar framin á níunda ára­tug síð­ustu aldar og því fyrnd.

Sak­sókn­ar­inn Steele ítrek­aði í yfir­lýs­ingu sem hann birti í gær að Cosby hefði verið sleppt úr fang­elsi vegna tækni­legra atriða sem hefðu ekk­ert með brot hans að gera. „Von mín er sú að þessi nið­ur­staða hæsta­réttar dragi ekki úr fórn­ar­lömbum kyn­ferð­is­of­beldis að til­kynna brot.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár