VG langt undir kjörfylgi og fengi sjö þingmenn

Rík­is­stjórnin nýtur 55 pró­sent stuðn­ings en flokk­arnir sem hana mynda fengju þó ekki meiri­hluta ef gengið yrði til kosn­inga nú. Framsókn bætir við sig, Sjálf­stæð­is­flokkur stendur í stað en VG myndi tapa fjórum þing­mönnum miðað við kosn­ing­arnar 2017.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja á blaðamannafundi í Hörpu í fyrra þegar efnahagsaðgerðir vegna heimsfaraldurs voru kynntar.
Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja á blaða­manna­fundi í Hörpu í fyrra þegar efna­hags­að­gerðir vegna heims­far­ald­urs voru kynntar. Mynd: Bára Huld Beck

Þrátt fyrir að rík­is­stjórnin njóti stuðn­ings meiri­hluta lands­manna, sam­kvæmt nýj­ustu könnun MMR, fengju flokk­arnir þrír sem hana mynda í dag hvorki þann meiri­hluta, hvorki þegar horft er til sam­an­lagðs fylgis né dreif­ingar þing­sæta . Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar, sem birt er í Morg­un­blað­inu í dag, fengi Sjálf­stæð­is­flokkur 16 þing­sæti, Vinstri græn 7 og Fram­sókn­ar­flokkur 8. Sam­an­lagt fylgi þeirra yrði, ef kosið yrði til Alþingis nú, 48 pró­sent.

Samkvæmt könn­un­inni myndu Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur halda sama fjölda þing­sæta og í síð­ustu kosn­ingum en Vinstri græn hins vegar tapa fjórum. Sjálf­stæð­is­flokkur er með 24,6 pró­sent fylgi, sem er nán­ast það sama og í þing­kosn­ing­unum 2017 og Framsókn 12,9 pró­sent fylgi sem er 2,2 pró­sentu­stigum hærra en í síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn eru hins vegar með 10,5 pró­sent fylgi í könnun MMR en það var 16,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2017.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir að sam­kvæmt könn­un­inni, seg­ist 55 pró­sent þátt­tak­enda engu að síður styðja rík­is­stjórn­ina.

Níu flokkar ná inn á þing. Sam­fylk­ingin myndi bæta við sig tveimur þing­sætum frá síð­ustu kosn­ingum, fá níu nú (13,1 pró­sent fylgi). Viðreisn myndi einnig bæta við sig og ná sex mönnum inn á þing og sömu sögu er að segja um Pírata sem eru nú með 12,2 pró­sent fylgi og fengju átta þing­sæti, tveimur fleiri en í kosn­ing­unum 2017. Flokkur fólks­ins er nú með 5,1 pró­sent fylgi og fengi þrjá þing­menn. Mið­flokk­ur­inn fengi svipað fylgi og sama fjölda þing­sæta en myndi tapa sex frá síð­ustu kosn­ingum.

Sós­í­alistar eru með 5,6 pró­sent fylgi og fengju þrjú þing­sæti.

Könnun MMR var gerð 8.-14. júlí og var hluti af spurn­inga­vagni fyr­ir­tæk­is­ins. Í úrtak­inu voru ein­stak­lingar átján ára og eldri valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MME sem valdir eru úr þjóð­skrá. 945 manns svör­uðu könn­un­inni segir í Morg­un­blað­inu.

Könnunin er sú fyrsta sem gerð er í sam­starfi MMR við Morg­un­blaðið og MMR vegna þing­kosn­ing­anna sem fram fara í lok sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár