Verðbólgan haggast varla

Verð­bólga mælist nú 2,2 pró­sent og hefur verið undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í des­em­ber í fyrra.

Eitt meginhlutverk Seðlabanka Íslands er að verðbólgan sé að jafnaði sem næst 2,5 prósent verðbólgumarkmiði hans. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Eitt meg­in­hlut­verk Seðla­banka Íslands er að verð­bólgan sé að jafn­aði sem næst 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði hans. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Verð­bólga mæld­ist 2,2 pró­sent í apr­íl­mán­uði og hækk­aði um 0,1 pró­sentu­stig milli mán­aða. Hún er enn undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands og hefur verið þar frá því í des­em­ber 2019.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands segir að matur hafi hækkað um 1,5 pró­sent í mán­uð­inum og verð á nýjum bílum um 2,5 pró­sent en verð á bens­íni og olíum lækkað um 4,6 pró­sent sem togar fast á móti verð­bólgu. Ef hús­næð­islið­ur­inn væri ekki inni í vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, væri hún 1,9 pró­sent.

[adspot]Í sviðs­myndum Seðla­banka Íslands um efna­hags­legar afleið­ingar COVID-19 far­ald­urs­ins, sem Seðla­banki Íslands birti 2. apríl, kom fram að lít­ill und­ir­liggj­andi verð­bólgu­þrýst­ingur fylgi þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Þvert á móti býst hann við því að verð­bólgan haldi áfram að hjaðna. Spá hans frá því í febr­úar gerði ráð fyrir með­al­verð­bólgu á árinu upp á 1,9 pró­sent. Sviðs­mynd­irnar nú gera hins vegar ráð fyrir því að hún verði lægri, eða 1,4 til 1,7 pró­sent.

Þar ræður miklu að lægra verð á hrá­vöru alþjóð­lega, sér­stak­lega olíu, og sá mikli slaki sem er að skap­ast á Íslandi toga á móti hefð­bundnum verð­bólgu­hvötum eins og geng­is­falli krón­unn­ar, sem hækkar veru­lega verð á inn­fluttum vörum eins og mat og bílum.

Verð­­bólgan fór undir 2,5 pró­­sent mark­mið Seðla­­banka Íslands í des­em­ber síð­­ast­liðnum en hún náði því þar á undan í júní 2018. Frá þeim tíma reis hún hæst í 3,7 pró­­­sent í des­em­ber 2018. Fyrir sum­arið 2018 hafði verð­bólgan verið undir verð­bólgu­mark­miði frá því í febr­úar 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár