Lögblind með nýja sýn á lífið

Þegar Dagný Krist­manns­dóttir fór að missa sjón­ina bjarg­aði það geð­heils­unni að þáver­andi trún­að­ar­maður Blindra­fé­lags­ins hringdi reglu­lega í hana. Nú starfar hún sjálf sem trún­að­ar­maður hjá félag­inu, og segir að í kjöl­far áfalls eða veik­inda hjálpi mikið að leita til jafn­ingja sem þekkja þessar aðstæður.

Dagný Krist­manns­dóttir er lög­blind, en lætur það ekki aftra sér í dag­legu lífi. Hún sinnir sjálf hvers­dags­legum verkum, fer í búð og ferð­ast til útlanda, og þá hjálpar hvað hún fær góðan stuðn­ing frá eig­in­mann­inum. „Ég veit ekki hvar ég væri stödd án hans. Hann gerir lífið mun auð­veld­ara.“

Þau fóru að draga sig saman eftir að hún flutti í íbúð í hús­næði Blindra­fé­lags­ins, þar sem þau búa saman í dag. „Ég átti ekki von á því að ég myndi ná mér aftur í mann – orðin kol­blind, þung­lynd og veik eins og ég var á þeim tíma þegar við byrj­uðum að vera saman. Við höfðum alltaf vitað af hvort öðru en mæður okkar þekkt­ust.

Ég var mjög ein­angruð þetta ár, 2011, og var nýbúin að missa vin minn sem bjó einnig í íbúð á vegum Blindra­fé­lags­ins og dó úr sama sjúk­dómi og ég er með. Vinkona mín …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár