Leikarar vilja óháða úttekt á kynferðisofbeldi

Leik­ara­sam­fé­lagið íslenska stendur þétt saman og vill úttekt á birt­ing­ar­myndum kyn­bund­ins ofbeldis.

„Fund­ur­inn fagnar opinni umræðu og hvetur til óháðrar og fag­legrar úttektar á vegum Mennta – og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og Félags – og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra „á umfangi og birt­ing­ar­myndum kyn­ferð­is­legrar áreitni, ofbeldis og mis­beit­ingar á valdi í sviðs­listum og í kvik­mynda – og sjón­varps­iðn­aði á Íslandi,“ segir í til­kynn­ingu.

Félögin sem standa saman að álykt­un­inni, sem sam­þykkt var á fundi í dag, eru: Félag íslenskra leik­ara, Félag leik­stjóra á Íslandi, Félag leik­skálda og hand­rits­höf­unda, Bandalag íslenskra lista­manna, Þjóð­leik­húsið, Leik­fé­lag Reykja­víkur í Borg­ar­leik­húsi, Menn­ing­ar­fé­lag Akur­eyrar, Íslenska Óperan, Sjálf­stæðu leik­húsin, Samband íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda, Samtök kvik­mynda­leik­stjóra og RÚV.

Mikil umræða hefur farið fram að und­an­förnu um kyn­ferð­is­legt ofbeldi innan leik­ara- og afþrey­ing­ar­iðn­að­ar­ins, ekki síst í Hollywood. Konur hafa stigið fram og greint frá ofbeldi og áreitni, sem leitt hefur til afhjúp­unar á ofbeld­is­mönnum, eins og Harvey Weinstein og nú síð­ast Kevin Spacey.

Þá hafa einnig komið fram á sögur um ofbeldi og áreitni innan leik­ara­sam­fé­lags­ins á Íslandi, eins og greint hefur verið frá, og ekki síst þess vegna vilja fyrr­nefnd félög að óháð úttekt fari fram.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur sagt að taka þurfi ábend­ingum um ofbeldi og áreitni mjög alvar­lega, og vinna mark­visst að því að upp­ræta það og bæta úr því sem þarf að bæta úr. Sú vinna hefj­ist strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár