Tekjufallsstyrkir útvíkkaðir, viðspyrnustyrkir kynntir og rætt um áframhald hlutabótaleiðar

Rík­is­stjórn Íslands boðar enn einn efna­hag­s­pakk­ann. Sá nýjasti er snið­inn að mestu að þeim minni fyr­ir­tækjum og ein­yrkjum sem þurfa að loka vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti hertar aðgerðir vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á blaðamannafundi fyrr í dag. Efnahagsaðgerðirnar eru afleiðing af þeirri stöðu.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti hertar aðgerðir vegna útbreiðslu kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á blaða­manna­fundi fyrr í dag. Efna­hags­að­gerð­irnar eru afleið­ing af þeirri stöðu. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti á fundi sínum í morgun að grípa til frek­ari efna­hags­að­gerða vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. tekju­falls­styrkir verða útvíkk­aðir og greiddir verða svo­kall­aðir við­spyrnu­styrkir sem eiga að styðja við rekstur fyr­ir­tækja á kom­andi mán­uðum. Þá var rætt um að að halda hluta­bóta­leið­inni, sem rennur að óbreyttu sitt skeið um kom­andi ára­mót, áfram í virkni.

Í nýjasta pakk­anum, sem ræddur var sam­hliða hertum tak­mörk­unum vegna útbreiðslu far­ald­urs­ins, er lagt til að tekju­falls­styrkir, sem rík­is­stjórnin sam­þykkti fyrr í þessum mán­uði að leggja fram á Alþingi, verði útvíkk­aðir áður en að frum­varp um þá verður afgreitt. Þeim er meðal ann­ars ætlað að styðja minni rekstr­ar­að­ila sem starfa í menn­ing­ar- og list­grein­um, ferða­leið­sögu­menn og aðra minni aðila í rekstri sem hafa orðið fyrir veru­legu tekju­falli frá byrjun apríl og fram til dags­ins í dag.

[adspot]Sú breyt­ing verður gerð á úrræð­inu að fallið er frá skil­yrðum um hámarks­fjölda starfs­manna, hann var þrír sam­kvæmt frum­varp­inu. Í stað­inn er lagt til að styrkir verði veittir fyrir allt að fimm stöðu­gildi. Ef tekju­fall við­kom­andi er á bil­inu 40 til 70 pró­sent er hægt að fá styrk upp á 400 þús­und krónur á mán­uði fyrir hvert stöðu­gildi og ef það er 70 til 100 pró­sent er hægt að fá 500 þús­und króna styrk á stöðu­gildi á mán­uði á meðan að úrræðið er í gildi. Í frum­varp­inu var gert ráð fyrir að allir sem hefðu orðið fyrir 50 pró­sent eða meira tekju­falli gætu fengið allt að 400 þús­und krónur í styrk á hvert stöðu­gildi.

Þá er tíma­bilið sem úrræðið gildir fyrir lengt úr sex mán­uðum í sjö, frá 1. apríl og út októ­ber. Hámarks­styrkur sam­kvæmt þessu verður 17,5 millj­ónir króna á hvern rekstr­ar­að­ila.

Þá mun Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, leggja fram frum­varp sem nú er í und­ir­bún­ingi um nýtt úrræði, við­spyrnu­styrki, sem gert er ráð fyrir að verði veittir í fram­haldi af tekju­fall­styrkjum og fram á næsta ár.

[links]Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að úrræð­inu sé ætlað tryggja að fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir tekju­falli vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins geti við­haldið nauð­syn­legri lág­marks­starf­semi á meðan áhrifa far­ald­urs­ins gætir, varð­veitt við­skipta­sam­bönd og tryggt við­búnað þegar úr ræt­ist. „Um við­spyrnu­styrki munu gilda sam­bæri­leg skil­yrði og eiga við um tekju­falls­styrki og verða þeir veittir með reglu­legum greiðslum yfir a.m.k. sex mán­aða tíma­bil eða allt fram á mitt næsta ár.“

Þá ræddi rík­is­stjórnin í morgun um mögu­lega fram­leng­ingu hluta­bóta­leið­ar­innar sem rennur út nú um ára­mót. Þegar er til með­ferðar á Alþingi frum­varp um fram­hald á svoköll­uðum lok­un­ar­styrkjum. Þeir yrðu greiddir til fyr­ir­tækja sem eru skylduð til þess að loka dyrum sínum núna í þriðju bylgju far­ald­urs­ins vegna sótt­varna­reglna. Slík fyr­ir­tæki munu geta sótt um 600 þús­und krónur í lok­un­ar­styrk með hverjum starfs­manni á mán­að­ar­grund­velli. Alls geta styrkirnir numið 120 millj­ónum króna að hámarki á hvert fyr­ir­tæki. Það þýðir að stór fyr­ir­tæki á borð við lík­ams­rækt­ar­keðjur sem hafa þurft að loka dyrum sínum vegna sótt­varn­ar­ráð­staf­ana geta fengið mikið tjón bætt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár