Efsta lagið á Íslandi á nær öll verðbréf í beinni eigu einstaklinga hérlendis

Á sex ára tíma­bili hefur verð­bréfa­eign Íslend­inga vaxið um 192 millj­arða króna, eða um 52 pró­sent. Af þeirri upp­hæð hefur 175 millj­arðar króna farið til þeirra tíu pró­senta lands­manna sem mest eiga, eða 91 pró­sent.

Alls áttu Íslend­ingar verð­bréf fyrir 558 millj­arða króna að nafn­virði um síð­ustu ára­mót. Það er 40 millj­örðum krónum meira en ein­stak­lingar áttu af slíkum ári áður.

Meg­in­þorri verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga til­heyra þeim tíu pró­sentum lands­manna sem eru rík­astir. Sá hópur, tæp­lega 23 þús­und fjöl­skyldur, á 86 pró­sent allra verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga.

Alls er nafn­virði verð­bréfa­eignar þeirra 480,5 millj­arðar króna og hún jókst um 34,3 millj­arða króna í fyrra. Það þýðir að 86 pró­sent af nýrri verð­bréfa­eign féll í hlut þessa hóps.

Þetta kom fram í nýjum tölum um eignir og skuldir lands­manna sem Hagstofa Íslands birti í lið­inni viku.

Jókst um 192 milljarða á sex árum

Verðbréf eru hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum á nafn­virði, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur. Þar sem hluta­bréfin eru metin á nafn­virði í tölum Hag­stof­unnar er ómögu­legt að vita hvað mark­aðsvirði þeirra, það sem myndi fást fyrir bréfin ef þau yrðu seld í dag, sé.

[adspot]Það er þó án nokk­urs vafa mun hærra en nafn­virðið, enda eðli flestra skráðra hluta­bréfa að þau hafa hækkað frá því að þau voru gefin út. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem mælir gengi þeirra tíu félaga innan hennar sem hafa mestan selj­an­leika á hverjum tíma, hefur til að mynda hækkað um 30 pró­sent frá því snemma í jan­úar 2019 og um 60 pró­sent frá byrjun árs 2015.

Á sex ára tíma­bili, frá lokum árs 2013 og fram að síð­ustu ára­mótum, hefur verð­bréfa­eign Íslend­inga vaxið um 192 millj­arða króna sam­kvæmt sam­an­tekt Hag­stof­unnar, eða um 52 pró­sent. Af þeirri upp­hæð hefur 175 millj­arðar króna farið til þeirra tíu pró­senta lands­manna sem mest eiga, eða 91 pró­sent.

Almenningur á lífeyrissjóðina

Stærstu eig­endur verð­bréfa á Íslandi eru líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eiga þorra mark­aðs­skulda­bréfa og víxla (alls fyrir rúm­lega tvö þús­und millj­arða króna um mitt þetta ár) í land­inu og um 40 pró­sent af mark­aðsvirði skráðra félaga (801 millj­arðar króna beint og óbeint um mitt þetta ár).

[links]Auk þess eiga þeir erlend hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini sem metin voru á 1.660 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins.

Eigendur líf­eyr­is­sjóða eru fólkið í land­inu, sem er skyldugt sam­kvæmt lögum að greiða inn í þá mán­að­ar­lega af launum sínum. Líf­eyr­is­sjóð­irnir ávaxta síðan það fé með það fyrir augum að tryggja sem flestum áhyggju­laust ævi­kvöld með líf­eyr­is­greiðslum. Hag­stofan tekur ekki með eign almenn­ings í líf­eyr­is­sjóðum í tölum sínum um eignir og skuldir lands­manna.

Alls voru allar eignir líf­eyr­is­sjóða lands­ins 5.291 millj­arðar króna í lok júní. Þær hafa auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum, en um mitt ár 2016 voru þær til að mynda 3.540 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár