Fimm fréttir sem auka bjartsýni á nýju ári

Bólu­setn­ingar og jákvæðar horfur fyrir dýra­teg­undir sem áður voru í útrým­ing­ar­hættu ættu að auka okkur bjart­sýni á árinu sem nú fer í hönd.

Nýtt ár er hafið. Og það eru margar ástæður til bjartsýni.
Nýtt ár er hafið. Og það eru margar ástæður til bjart­sýni. Mynd: EPA

Það fagna því margir að árið 2021 sé liðið og það aldrei komi til baka. Árið sem við áttum að end­ur­heimta „eðli­legt líf“ en var erf­ið­ara mörgum en það sem á undan fór heyrir nú sög­unni til.

Og það er vissu­lega hægt að tína til ýmsar ástæður til að vera bjart­sýnn nú í upp­hafi árs­ins 2022. Sam­taka­máttur, vís­indin og mennskan eru leið­ar­stefin að betra lífi okkar allra.

[adspot]

Pöndur ekki lengur í bráðri útrýmingarhættu

Á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar bjuggu innan við þús­und pöndur í sínu nátt­úru­lega umhverfi. Með vernd­ar­átaki sem staðið hefur nú í þrjá­tíu ár hefur tek­ist að ná því mark­miði að nú ganga (og kút­velt­ast) um 1.900 pöndur frjálsar á heima­slóðum sínum í Kína í þeim 67 frið­löndum sem þeim hafa verið búin . Yfirvöld þar í landi lýstu því yfir árið 2021 að pöndur væru því ekki lengur í bráðri útrým­ing­ar­hættu. Enn eru þó um 600 pöndur fangar í dýra­görðum vítt og breitt um ver­öld­ina.

Vís­inda­menn höfðu ótt­ast að bambus­inn, eft­ir­læt­is­fæða pand­anna, myndi verða fyrir nei­kvæðum áhrifum af lofts­lags­breyt­ingum. Pöndur éta 12-38 kíló af bambus á dag og því eru það sann­ar­lega gleði­tíð­indi að bambus­inn, líkt og pönd­urnar sjálfar, er að ná sér á strik.

Bóluefni gegn malaríu

Malaría hefur í fjölda ára verið ban­væn­asti sjúk­dómur ver­aldar. Árið 2020 lét­ust um 627 þús­und manns af hans völdum. Meira en 260 þús­und börn yngri en fimm ára deyja árlega í Afríku úr malaríu. Í þeirri heims­álfu verða 96 pró­sent allra dauðs­falla af völdum sjúk­dóms­ins.

Í októ­ber síð­ast­liðnum gaf Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin fyrsta bólu­efn­inu gegn malaríu grænt ljós og talið er að það muni bjarga lífi hund­ruð þús­unda barna.

Í fyrra bár­ust önnur góð tíð­indi af bar­átt­unni gegn malaríu. WHO gaf út að Kína væri laust við sjúk­dóm­inn eftir ára­tuga her­ferð þar í landi til að útrýma henni. Um miðja síð­ustu öld voru að grein­ast um 30 milljón til­felli árlega. Árið 2020 var hið fjórða í sam­felldri röð þar sem ekk­ert til­felli malaríu greind­ist og það varð til þess að hægt er að lýsa Kína laust við sjúk­dóm­inn. WHO stefnir að því að útrýma malaríu í 25 löndum til við­bótar fyrir árið 2025.

COVID-faraldur mögulega á enda

Bjart­sýni svífur yfir vötnum í upp­hafi árs­ins um að innan skamms verði annar far­aldur úr sög­unni: Heims­far­aldur COVID-19. Tvennt skýrir þá bjart­sýni. Hið nýja afbrigði ómíkrón virð­ist valda væg­ari sjúk­dóms­ein­kennum en þau fyrri þrátt fyrir að vera mun meira smit­andi. Ómíkrón gæti með tíð og tíma útrýmt öðrum afbrigðum þótt enn sé hætta á að ný skjóti upp koll­inum.

Það mun ráð­ast af því hvernig tekst að bólu­setja heims­byggð­ina. Þótt bólu­setn­ing­ar­hlut­fall sé orðið mjög hátt í vest­rænum heimi er það enn aðeins örfá pró­sent í mörgum fátæk­ustu löndum ver­aldar. Meira en 8,5 millj­örðum skammta af bólu­efni hefur verið dreift og WHO von­ast til þess að í júlí verði búið að bólu­setja 70 pró­sent íbúa allra landa.

Grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Ipsos spurði 22 þús­und full­orðna ein­stak­linga í 33 löndum um hvernig þeir teldu árið 2022 verða og lýstu flestir yfir tölu­verðri bjart­sýni þegar kom að bar­átt­unni við COVID-far­ald­ur­inn. Um 77 pró­sent aðspurðra töldu að árið yrði almennt betra en 2021. Mest var bjart­sýnin í Kína.

Meiri­hluti þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni var bjart­sýnn á að í það minnsta 80 pró­sent jarð­ar­búa verði búnir að fá bólu­setn­ingu fyrir lok árs. Þá voru þátt­tak­endur almennt bjart­sýnir á að líf­legra yrði í sam­fé­lögum og að efna­hagur myndi vænkast.

Hinn sanni ólympíuandi

Augna­blikið þegar ítalski hástökkvar­inn Gianmarco Tamberi ákvað að deila ólymp­íugulli sínu með keppi­naut sínum, Kat­ar­anum Mutaz Barshim, var það hjart­næm­asta á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó í ágúst. Slíkt hefur ekki átt sér stað á leik­unum frá því árið 1912. Barshim segir Tamberi einn af sínum allra bestu vinum og að það hafi verið sann­kall­aður draumur að standa á verð­launa­pall­inum við hlið hans. Ákvörðun hans hafi lýst sönnum ólymp­íu­anda.

Ár tígrisdýrsins

Árið 2022 er ár tígris­dýrs­ins sam­kvæmt kín­verska tíma­tal­inu. Það mun einnig marka enda­lok tíu ára átaks til að tvö­falda fjölda þess­ara stór­kost­legu dýra. Björg­un­ar­verk­efnið TX2 er eitt það metn­að­ar­fyllsta sem ráð­ist hefur verið í til að bjarga einni ákveð­inni teg­und. Og árang­ur­inn þykir tölu­verður. Í sex löndum hefur tek­ist að fjölga tígris­dýrum um 40 pró­sent. Heim­kynni þeirra eru í Asíu og tóku þrettán lönd í heims­álf­unni þátt í verk­efn­inu.

Líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki á enn undir högg að sækja á mörgum sviðum. Hins vegar þykir björg­un­ar­verk­efnið TX2 gefa góð fyr­ir­heit um að ger­legt sé að vinda ofan af nei­kvæðri þróun og fækkun teg­unda sem spila stórt og ómissandi hlut­verk í vist­kerfum jarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár