Manning biður Obama um að stytta dóminn

Chelsea Manning hefur setið í fang­elsi í rúm­lega sex ár eftir að hafa lekið gögnum úr hernum til Wikileaks árið 2010.

Chelsea Manning hét Bradley áður en hún breytti opinberlega um kyn.
Chelsea Manning hét Bradley áður en hún breytti opin­ber­lega um kyn. Mynd: EPA

Chelsea Manning hefur biðlað til Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, um að hann stytti fang­els­is­dóm hennar í þau rúm­lega sex ár sem hún hefur þegar dúsað í fang­elsi. Manning við­ur­kenndi að árið 2010 hafi hún lekið gagna­safni um utan­ríkis- og varn­ar­mál Banda­ríkj­anna til Wikileaks. Hún var dæmd í 35 ára fang­elsi. Frá þessu er meðal ann­ars greint í The New York Times.

Chelsea Manning óskar eftir í form­legri beiðni sinni til Obama að fang­els­is­dóm­ur­inn verði styttur í þessi sex ár sem hún hefur setið í fang­elsi. Hún við­ur­kennir brot sín á ný og lýsir erf­iðu lífi sínu og þeirri ringul­reið sem hafi kom­ist í líf hennar þegar hún var að átta sig á eigin kyni. Þá var hún fót­göngu­liði í banda­ríska hernum í Írak. Manning gekk áður undir nafn­inu Bradley Manning, eða þar til hún ákvað að leið­rétta kyn sitt.

Fjöl­miðlar greindu frá því á dög­unum að Manning hafi gert aðra til­raun til þess að svipta sig lífi í fang­els­inu í októ­ber. Eftir fyrri til­raun­ina var hún sett í ein­angrun, ekki síst vegna þeirrar með­ferðar sem hún sætir í fang­els­inu.

„Ég bið ekki um að dómnum verði aflétt,“ skrifar Manning til Obama. „Eina eft­ir­gjöfin sem ég óska er að mér verði sleppt úr her­fang­elsi eftir sex ár í haldi sem ein­stak­lingur sem hafði ekki í hyggju að koma höggi á hags­muni Banda­ríkj­anna eða á þá sem gegna her­þjón­ustu.“

Her­réttur dæmdi Manning til 35 ára fang­els­is­vistar í júlí 2013 eftir lögum um njósnir. Þetta er lang­sam­lega þyngsti fang­els­is­dómur sem kveð­inn hefur verið upp og byggður á þessum njósn­a­lögum. Aðrir þeir sem hafa lekið gögnum og hlotið dóma hafa þurft að sæta fang­els­is­vist í eitt til þrjú og hálft ár.

Með beiðn­inni, sem lög­maður Manning sendi fjöl­miðlum vest­an­hafs, fylgja stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar ann­arra upp­ljóstr­ara á borð við Daniel Ellsberg sem lak Penta­gonskjöl­unum um Víetnam­stríðið árið 1971. Einnig fylgdi stuðn­ings­bréf frá Morris Davis, fyrr­ver­andi aðal­sak­sókn­ara í her­rétti Banda­ríkj­anna, og frá Glenn Greenwald, blaða­manni sem hefur stutt Manning.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár