Minjastofnun fær ekki séð hvernig eigi að koma Borgarlínu fyrir í miðborginni

Minja­stofnun Íslands gerði í upp­hafi sum­ars athuga­semdir við eitt og annað í tengslum við Borg­ar­línu, í umsögn vegna væntra aðal­skipu­lags­breyt­inga Reykja­vík­ur­borgar og Kópavogs í tengslum við fyrstu lotu verk­efn­is­ins.

Minjastofnun segist gera ráð fyrir miklum og tímafrekum fornleifarannsóknum víða þar sem fyrirhugað er að Borgarlínan muni liggja, fyrst og fremst í miðbæ Reykjavíkur.
Minja­stofnun seg­ist gera ráð fyrir miklum og tíma­frekum forn­leifa­rann­sóknum víða þar sem fyr­ir­hugað er að Borg­ar­línan muni liggja, fyrst og fremst í miðbæ Reykja­víkur. Mynd: Borgarlína

Minja­stofnun Íslands telur að Borg­ar­lína muni hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á friðuð og frið­lýst hús í elstu hverfum Reykja­víkur og að ekki fáist séð að Borg­ar­línan kom­ist fyrir, „eins og hún virð­ist hugsuð“, án þess að hafa veru­leg áhrif á byggða­mynstrið í elsta hluta Reykja­víkur og víðar.

Við það seg­ist stofn­unin gera athuga­semdir, í umsögn sinni við vinnslu­til­lögur Reykja­vík­ur­borgar og Kópa­vogs­bæjar að breyt­ingum á aðal­skipu­lagi vegna fyrstu lotu Borg­ar­línu, sem lagðar voru fram til kynn­ingar í vor.

Tímafrekar fornleifarannsóknir þurfi að fara fram

Í umsögn stofn­un­ar­innar, sem send var til sveit­ar­fé­lag­anna og inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda undir lok maí­mán­aðar, segir einnig að von sé á því að það muni þurfa að fara fram „miklar og tíma­frekar forn­leifa­rann­sóknir víða þar sem línan liggur, en þó fyrst og fremst í miðbæ Reykja­víkur.“ Þá sé gróf­lega áætlað af hálfu stofn­un­ar­innar að lagn­ing fyrstu lotu Borg­ar­línu um mið­borg­ina muni hafa áhrif á um 100 hús.

Stofn­unin gerir athuga­semdir við að það sem lagt hafi verið fram um legu og umfang Borg­ar­línu til þessa sé að nokkru leyti óljóst. Minja­stofnun geti því ekki að öllu leyti tekið raunsanna afstöðu til þess sem óskað er umsagnar um af hálfu sveit­ar­fé­lag­anna tveggja.

Einnig eru gerðar athuga­semdir við að ein­ungis sé óskað eftir umsögnum um breyt­ingar vegna fyr­ir­hug­aðrar fyrstu lotu Borg­ar­línu, sem á að liggja á milli Ártúns­höfða og Hamra­borgar. Að mati Minja­stofn­unar hefði verið betra að kynnt væri „heild­ar­á­ætlun um verk­efnið sem hægt væri að taka afstöðu til,“ en til stendur að borg­ar­línu­verk­efnið verði unnið í lotum fram á næsta ára­tug.

Þá gerir Minja­stofnun líka athuga­semdir við að búið sé að gera samn­inga um hönnun fyrstu lotu Borg­ar­línu áður en stofn­unin geti brugð­ist við minja­skrán­ingu út frá forn­minja-, húsa- og mann­virkja­skrán­ingu. Stofn­unin minnir líka á að það að óheim­ilt sé að veita fram­kvæmda­leyfi áður en slík skrán­ing með til­liti til minja hafi farið fram og fengið sam­þykki stofn­un­ar­innar.

„Slíkar upp­lýs­ingar geta vissu­lega haft áhrif á lagn­ingu Borg­ar­línu,“ segir í umsögn Minja­stofn­unar.

Breidd gatnanna vefst fyrir Minjastofnun

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þá mynd sem dregin var upp af væntri legu Borg­ar­línu er frum­draga­skýrsla vegna fyrstu lotu verk­efn­is­ins kom út í byrjun febr­úar á þessu ári. Í umræðum miss­erin þar á undan hafði einmitt verið mikið fjallað um hvernig ætti að koma sér­rým­inu fyrir borg­ar­línu­leiðir fyrir í gegnum elsta hluta Reykja­víkur.[links]

Eins og fram kom í frum­draga­skýrsl­unni er það þó ekki raunin að hug­myndir geri ráð fyrir því að vagnar Borg­ar­línu verði í sér­rými er þeir þræða sig um elsta hluta Reykja­vík­ur­borgar, heldur er ráð­gert að hönn­unin og umferð­ar­skipu­lagið taki mið af aðstæðum á hverjum stað.

Í umsögn Minja­stofn­unar, sem Kristín Huld Sig­urð­ars­dóttir for­stöðu­maður und­ir­ritar, er þó vísað til myndar af svoköll­uðu kjör­sniði Borg­ar­línu, sem sjá má hér að neðan.

Þar er sér­ak­rými fyrir borg­ar­línu­vagna fyrir miðju, tvær sér­a­kreinar fyrir einka­bíla og hjóla­stígar beggja megin göt­unnar, auk gang­stétta. Segir í umsögn Minja­stofn­unar að það fáist ekki betur séð en að það þurfi 34,5 metra breitt svæði til þess að götu­snið geti verið með þessum hætti.

„Í miðbæ Reykja­víkur, þar sem er fjöldi frið­aðra og og frið­lýstra húsa, eru götur það þröngar að ekki er pláss fyrir borg­ar­línu götur eins og þær eru kynntar [á áður­nefndri mynd],“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar.

Þar segir enn­fremur að breidd Hverf­is­götu sé mest um 15,5 metrar, Lækj­ar­götu 29 metrar, Frí­kirkju­vegs 21 meter og Von­ar­strætis 13,4 metrar. „Suð­ur­gata, þar sem eru bæði friðuð og frið­lýst hús og að auki frið­aður kirkju­garður (Hóla­valla­garður), er ein­ungis 10 m breið. Skot­hús­vegur er aðeins 12,5 m breiður. Teikn­ingar af bið­stöðvum, eins og við Hverf­is­götu, benda til mik­illa áhrifa á húsin við göt­una. Ekki fæst séð hvernig á að koma Borg­ar­línu fyrir á þessum svæðum án þess að hún hafi veru­leg nei­kvæð áhrif á frið­uðu og frið­lýstu húsin, Hóla­valla­garð og borg­ar­á­sýnd­ina í mið­bænum,“ segir í umsögn Minja­stofn­unar.

Það sem segir þó í þeirri til­lögu Reykja­vík­ur­borgar sem Minja­stofnun er að taka afstöðu til er að þegar komið sé inn að mið­borg­inni liggi hús að götum og götu­rými þreng­ist á köflum. Tekið sé til­lit til þess við útfærslu borg­ar­línu­leið­anna.

„Ljóst er að ekki er mögu­legt að koma Borg­ar­línu fyrir í sér­rými nema á hluta leið­ar­innar um mið­borg­ina. Þar gera hug­myndir að sniðum ráð fyrir að Borg­ar­línan verði í bland­aðri umferð á köflum,“ segir í til­lögu borg­ar­innar, sem var til umsagnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár