Eiríkur Björn og Sigríður leiða Viðreisn í Norðausturkjördæmi

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Fljóts­dals­hér­aði og Akureyri verður odd­viti Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum.

Sigríður Ólafsdóttir verður í öðru sæti listans og Eiríkur Björn í því fyrsta.
Sigríður Ólafs­dóttir verður í öðru sæti list­ans og Eiríkur Björn í því fyrsta. Mynd: Viðreisn

Eiríkur Björn Björg­vins­son, sviðs­stjóri og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Akureyri og á Fljóts­dals­hér­aði, leiðir lista Við­reisnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi til alþing­is­þing­kosn­inga í haust.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum í dag, en reyndar hafði fyrir all­nokkru kvis­ast út að Eiríkur yrði odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu og höfðu hér­aðs­frétta­miðlar í kjör­dæm­inu slegið því föstu að svo yrði, sam­kvæmt sínum heim­ildum.

Í öðru sæti list­ans verður Sigríður Ólafs­dóttir, mannauðs­ráð­gjafi og mark­þjálfi. Viðreisn á engan þing­mann í kjör­dæm­inu í dag og fékk 495 atkvæði í kosn­ing­unum árið 2017, eða 2,1 pró­sent atkvæða. Þá var Benedikt Jóhann­es­son odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Eiríkur hefur ára­tug­a­reynslu af störfum í stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga í kjör­dæm­inu. Hann var ráð­inn bæj­ar­stjóri Austur-Héraðs árið 2002 og var síðan ráð­inn bæj­ar­stjóri Fljóts­dals­hér­aðs við sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga á Héraði. Áður hafði hann starfað í stjórn­sýslu á bæði Akureyri og Egils­stöðum.

[adspot]

Árið 2010 var Eiríkur svo ráð­inn bæj­ar­stjóri á Akureyri og gegndi hann því starfi til árs­ins 2018. Haft er eftir honum í frétta­til­kynn­ingu frá Viðreisn að mik­il­vægt sé að hlusta á vænt­ingar og þarfir íbúa í kjör­dæm­inu og setja fólkið í fyrsta sæti.

„Það þarf að bæta og efla skiln­ing rík­is­ins á stöðu fólks í kjör­dæm­inu og á lands­byggð­unum almennt og tryggja jöfnuð milli lands­hluta. Þá þarf að skapa jarð­veg fyrir ungt fólk til að lifa og starfa í kjör­dæm­inu og horfa til fram­tíðar, meðal ann­ars með stuðn­ingi við nýsköpun og frum­kvöðla,“ er haft eftir Eiríki í til­kynn­ingu flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár