Kirkjulist eða klám

Undir venju­legum kring­um­stæðum er ekki dags­dag­lega stríður straumur fólks í Heilagsanda­kirkj­una í Faaborg á Fjóni. Und­an­farið hefur hins vegar fjöldi fólks streymt í kirkj­una, ekki þó til að hlýða á guðs­orð eða biðj­ast fyrir.

Ein af myndunum eftir Jim Lyngvild í Heilagsandakirkjunni í Faaborg
Ein af mynd­unum eftir Jim Lyngvild í Heilagsanda­kirkj­unni í Faaborg Mynd: Facebook/Jim Lyngvild

Smá­bæj­ar­ins Faaborg á Suður-Fjóni, með sína 7 þús­und íbúa er sjaldan getið í dönskum fjöl­miðlum. Bæjarins er fyrst getið í skjölum árið 1229 en talið er að saga hans sé mun eldri. Á sumrin er Faaborg vin­sæll við­komu­staður fólks sem siglir um höfin á skútum og smá­bátum og á síð­asta ári komu þangað um 15 þús­und slíkir far­kostir. Í elsta hluta bæj­ar­ins eru fjöl­mörg veit­inga­hús og þjón­usta við ferða­fólk, einkum sæfar­endur, mik­il­vægur þáttur í atvinnu­líf­inu.

Und­an­farið hefur, þrátt fyrir kór­ónu­far­ald­ur­inn, verið óvenju margt ferða­fólk í Faaborg. Fyrst og fremst Danir. Bæj­ar­búar eiga því ekki að venj­ast að landar þeirra streymi til bæj­ar­ins en þannig hefur það verið frá 7. mars. Þann dag var opnuð mynd­list­ar­sýn­ing í Heilagsanda­kirkj­unni í bænum. Það er útaf fyrir sig ekki nýlunda í þess­ari gömlu kirkju, sem á sér margra alda sögu.

Sýningin sem nú stendur yfir er ólík flestu því sem áður hefur verið sýnt í kirkj­unni og það er þessi sýn­ing sem dregur fólk að. Lista­mað­ur­inn, sem er 42 ára gam­all Dani og heitir Jim Lyngvild, er þekktur í heima­land­inu. Auk mynd­list­ar­innar hefur Jim Lyngvild skrifað margar bækur og gert sjón­varps­þætti.

Árið 2016 tók hann þátt í keppni í kín­verska sjón­varp­inu. Keppnin fólst í að hanna tísku­fatnað. Um það bil 200 millj­ónir Kínverja fylgd­ust með hverjum þætti. Jim Lyngvild bar ekki sigur úr býtum en hann seldi „fata­lín­una“ úr keppn­inni fyrir jafn­gildi 1400 millj­óna íslenskra króna. Þá pen­inga lét Jim Lyngvild renna til góð­gerð­ar­mála.

Myndirnar og Ole Billum

Haustið 2019 hóf Jim Lyngvild, sem býr skammt frá Faaborg, vinnu við gerð mynda sem hann sagði að „yrðu í trú­ar­legum anda en þó öðru­vísi.“ Það reynd­ust orð að sönnu. Mynd­irnar, sem á end­anum urðu sjö tals­ins, eru sam­bland ljós­mynda og mál­verka, lista­mað­ur­inn hefur stillt upp fyr­ir­sætum og tekið mynd. Eftir að myndin hefur verið sett á pappír, eða striga, hefur svo ýmsu verið bætt inn á mynd­ina og síðan tekin önnur mynd.

Ole Billum sem er efn­aður atvinnu­rek­andi í Faaborg, og þekkti til Jim Lyngvild, frétti af þessum sér­stöku myndum og fékk hug­mynd. Hún var sú að myndir Jim Lyngvild yrðu prent­aðar, mikið stækk­aðar, á léreft og sýndar almenn­ingi. Þeir höfðu sam­band við sókn­ar­nefnd Heilagsanda­kirkj­unnar í Faaborg sem tók vel í hug­mynd­ina. Ole Billum stóð straum af kostn­að­inum við prentun og inn­römmun mynd­anna sjö. Mynd­irnar eru engin smá­smíði, hver um sig 4,5 x 3 metrar á stærð. Sökum stærð­ar­innar varð inn­römm­unin að fara fram inni í kirkj­unni.

Fólk streymdi í kirkjuna

Eins og áður var nefnt var sýn­ingin opnuð 7. mars, að við­stöddu fjöl­menni (fjöld­inn var þó tak­mark­aður vegna COVID19) og vakti strax mikla athygli. Danskir fjöl­miðlar greindu ítar­lega frá sýn­ing­unni og voru allir á einu máli um að mynd­irnar væru „öðru­vísi en þó með trú­ar­legu yfir­bragði,“ eins og lista­mað­ur­inn hafði sagt. Sem dæmi má nefna að á einni mynd­inni, Grebet i ægteskabs­brud, má sjá les­bískt par með húð­flúr og við borð situr kona með far­síma í hendi.

Allt frá fyrsta degi hefur fjöldi fólks sótt sýn­ing­una, skoð­anir sýn­ing­ar­gesta hafa verið skiptar. Sumir segja þær klám en allir, sem fjöl­miðlar hafa rætt við, eru sam­mála um að hún sé athygl­is­verð og ekki þurfi að fjöl­yrða um færni lista­manns­ins.

Hvað gerist 1. september?

Upp­haf­lega var gert ráð fyrir að sýn­ing­unni á verkum Jim Lyngvild lyki 31. ágúst. Ákveðið hafði verið, fyrir löngu, að þá yrði kirkj­unni lokað vegna við­gerða og yrði ekki opnuð aftur fyrr en 1. nóv­em­ber á næsta ári. Vegna mik­illar aðsóknar að sýn­ingu Jim Lyngvild hefur sókn­ar­nefndin fengið margar fyr­ir­spurnir um hvort sýn­ingin verði ekki áfram í kirkj­unni þegar við­gerð­unum lýkur og hún verður á ný opin almenn­ingi. Á Facebook síðu kirkj­unnar hefur staðið yfir könnun um hvort sýn­ing­unni skuli ljúka 31. ágúst eða hvort hún verði áfram. Um það bil 8 þús­und manns hafa tekið þátt í könn­un­inni og 97% þeirra vilja að mynd­irnar verði áfram til sýnis í kirkj­unni.

Sóknarnefndin úr takti við almenningsálitið

Sókn­ar­nefndin er hins vegar ekki á sama máli og þegar kosið var um hvort mynd­irnar verði teknar niður eða látnar vera áfram vildu 7 af 12 láta taka mynd­irnar niður en 5 vildu láta þær vera áfram. Eftir fund­inn í sókn­ar­nefnd­inni þar sem kosn­ingin fór fram kom í ljós að einn nefnd­ar­manna hafði ekki rétt til að kjósa, hann var í fríi frá nefnd­inni en mætti samt til að kjósa. Vegna þessa þurfti að end­ur­taka kosn­ing­una en úrslitin urðu þau sömu, meiri­hlut­inn vill að mynd­irnar verði ekki til sýnis þegar kirkjan verður opnuð aftur eftir við­gerð­irnar.

Ákvörðun sókn­ar­nefnd­ar­innar hefur kallað fram sterk við­brögð margra sem segja nefnd­ina algjör­lega úr takti við almenn­ing. Í stað þess að gleðj­ast yfir að fólk streymi í kirkj­una og ræði um mynd­irnar og inni­hald trú­ar­innar sé nefndin gam­al­dags í afstöðu sinni. Formaður sókn­ara­nefnd­ar­innar er tals­maður þess að mynd­irnar verði áfram í kirkj­unni en seg­ist verða að hlíta ákvörðun meiri­hlut­ans.

Ný sóknarnefnd í haust

Þrátt fyrir ákvörðun sókn­ar­nefnd­ar­innar um að mynd­irnar skuli burt er ekki loku fyrir það skotið að þar geti orðið breyt­ing á. Í haust verður nefni­lega kosin ný sókn­ar­nefnd og þótt venju­lega séu ekki mikil átök í kringum slíkar kosn­ingar er lík­legt að fram­bjóð­endur verði krafðir um afstöðu sína til mynd­anna í Heilagsanda­kirkj­unni. Vitað er að fimm af núver­andi sókn­ar­nefnd­ar­mönnum ætla ekki að sitja áfram.

Hvað ef?

Eins og áður var nefnt varð að setja mynd­irnar í rammana inni í kirkj­unni, vegna stærðar. Ef þær verða fjar­lægðar verður að hafa sama hátt á, taka þær úr ramm­anum og taka síðan rammann i sundur.

Jim Lyngvild sagði fyrir nokkru síðan að ef mynd­irnar yrðu ekki áfram til sýnis myndi hann brenna þær. Síðar sagði hann að það væri ekki góð hug­mynd að kveikja í Jesú, hann myndi í það minnsta ekki taka þátt í því. En bætti svo við „ég las að fyrir nokkrum árum hefði fund­ist 400 ára gam­alt verk, með Kristi á kross­inum, í skoti á kirkju­lofti. Hver veit hvað kann að finn­ast á loft­inu hér í Heilagsanda­kirkj­unni eftir þrjú til fjögur hund­ruð ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár