Kjósendur Miðflokks flestir yfir fimmtugt en Pírata undir þeim aldri

Mikill munur er á fylgi þriggja flokka þegar kjós­endum er skipt upp í tvennt eftir aldri, yfir fimm­tugt og undir þeim aldri. Mið­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin er mun sterk­ari i eldri hópnum en Píratar í þeim yngri.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður fimmtugur í byrjun næsta árs. Hann færist þá upp úr neðri hópnum í þann efri, þar sem fylgi flokks hans er ívið meira.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður fimm­tugur í byrjun næsta árs. Hann fær­ist þá upp úr neðri hópnum í þann efri, þar sem fylgi flokks hans er ívið meira. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­flokk­ur­inn höfðar mun meira til lands­manna yfir fimm­tugu, en Píratar sækja nær allt sitt fylgi til þeirra sem eru undir þeim aldri. Fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nokkuð svipað hjá hóp­unum tveimur en Sam­fylk­ingin er mun sterk­ari hjá eldri hópum sam­fé­lags­ins en þeim yngri.

Þetta er meðal þess sem má lesa úr gögnum sem MMR hefur tekið saman fyrir Kjarnann úr þeim könn­unum á fylgi stjórn­mála­flokka sem fram­kvæmdar hafa verið frá 12. ágúst til 16. sept­em­ber 2019.

Stöðugleiki hjá ríkisstjórnarflokkunum

Ef ein­ungis þeir sem væru 50 ára og eldri myndu kjósa væri gamli fjór­flokk­ur­inn með 62,2 pró­sent atkvæða.

[adspot]Ef ein­ungis þeir sem hafa kosn­inga­rétt og eru undir 50 ára aldri myndu fá að kjósa myndu sömu fjórir flokkar: Fram­sókn­ar­flokkur, Sjálf­stæð­is­flokkur, Sam­fylk­ing og Vinstri græn, fá 54,4 pró­sent atkvæða. Fylgið flokk­anna fjög­urra er því 14,3 pró­sentum meira hjá eldri hluta þjóð­ar­innar en hjá hinum yngri.

Copy: nytt fylgi okt
Infogram

Eini flokk­ur­inn úr þessu mengi sem nýtur meiri stuðn­ings hjá fólki undir fimm­tugu en hjá þeim sem eru yfir þeim aldri eru Vinstri græn.

Mestur er mun­ur­inn hjá Sam­fylk­ing­unni. Hún mælist með 19 pró­sent fylgi hjá aðspurðum yfir 50 ára en ein­ungis 13,1 pró­sent hjá yngri hópnum. Því er stuðn­ing­ur­inn hjá þeim eldri við flokk­inn 45 pró­sent meiri en hjá hinum yngri. Stuðn­ingur Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, sem er stærsti flokkur lands­ins hjá báðum hópum, er mun jafn­ari eftir ald­urs­flokkum, þótt báðir njóti meiri stuðn­ings hjá hinum eldri en þeim yngri.

Sveiflur hjá flokkum sem stofn­aðir voru eftir 2012

Flokk­arnir sem stofn­aðir hafa verið síðan árið 2012, og eiga sæti á þingi, eru fjórir. Hjá þeim koma mis­mun­andi áherslur ald­urs­hópa mun skýr­ari í ljós en hjá flestum af gömlu flokk­unum.

flygi 50+
Infogram

Fylgi Mið­flokks­ins mælist til að mynda nán­ast tvisvar sinnum meira hjá kjós­endum yfir fimm­tugu en þeim sem eru undir þeim aldri. Alls segj­ast 9,1 pró­sent lands­manna sem eru á aldr­inum 18 til 49 ára að þeir styðji flokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Hjá þeim sem eru eldri en 50 ára er stuðn­ing­ur­inn hins vegar 17,3 pró­sent.

[links]Staðan hjá Pírötum er þver­öfug. Báðir flokkar njóta mun meiri stuðn­ings hjá þeim sem eru undir fimm­tugu en þeim lands­mönnum sem eru yfir þeim aldri. Hjá yngri hópnum segj­ast 16 pró­sent ætla að kjósa Pírata, sem gerir flokk­inn að þeim næst stærsta í þeim ald­urs­hópi. Hjá aðspurðum yfir 50 ára er það hlut­fall sem ætlar að kjósa Pírata 6,1 pró­sent sem gerir hann að minnsta flokknum sem næði manni inn á þing ef kosið yrði í dag.

Allra nýjustu flokkarnir ná betur til yngra fólks

Viðreisn er einnig með mun meiri stuðn­ings hjá fólki undir fimm­tugu en þeim sem eru yfir þeim aldri, en eldri hóp­ur­inn er lík­legri til að kjósa Flokk fólks­ins en sá yngri. Síð­ar­nefndi flokk­ur­inn nýtur þó ekki nægj­an­legs fylgi til að ná inn á þing eins og stendur.

Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem náði inn manni í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík í fyrra, mælist heldur ekki með nægj­an­legt fylgi til að ná inn á þing, en er merkj­an­lega sterk­ari hjá yngri kjós­endum en þeim eldri.

Vert er að taka fram að fleiri ein­stak­lingar til­heyra yngri hópnum sem svar­aði könn­un­inni, um 60 pró­sent, en þeim eldri, sem telur um 40 pró­sent lands­manna.

Fylgi allir
Infogram

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár