Valitor tapaði 1,9 milljarði í fyrra eftir að hafa misst sinn stærsta samstarfsaðila

Valitor missti sinn stærsta við­skipta­vin um mitt ár 2018. Félagið, sem skil­aði 940 milljón króna hagn­aði 2017, tap­aði 1,9 millj­arði króna í fyrra. Arion banki ætlar að selja Valitor á árinu 2019.

Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor, sem byggir starfsemi sína á grunni VISA Ísland, sem stofnað var 1983.
Viðar Þor­kels­son er for­stjóri Valitor, sem byggir starf­semi sína á grunni VISA Ísland, sem stofnað var 1983. Mynd: Samsett

Valitor Holding, félag í eigu Arion banka sem á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor, tap­aði 1,9 millj­arði króna í fyrra. Félagið hafði skilað um 940 milljón króna hagn­aði ári áður. Í árs­reikn­ingi Arion banka, sem birtur var í gær, kemur fram að tapið sé vegna fjár­fest­ingar í alþjóð­legri starf­semi Valitors og að það hafi haft tölu­verð áhrif á lak­ari afkomu sam­stæðu Arion banka. „Valitor er í mik­illi upp­bygg­ingu erlendis og hefur í þeim fasa verið rekið með rekstr­ar­tapi,“ segir í árs­reikn­ingnum. Í þeirri upp­bygg­ingu hefur meðal ann­ars falist að ná í stóra við­skipta­vini á Írlandi og í Bret­landi.

Það er þó fleira sem telur. Einn stærsti við­skipta­vinur Valitor, Stripe, hætti færslu­hirð­ing­ar­við­skiptum sínum við Valitor um mitt ár 2018, líkt og Kjarninn greindi frá í mars í fyrra að stæði til. Þessi ákvörðun Stripe leiddi til þess, sam­kvæmt afkomutil­kynn­ingu frá Valitor sem send var út í morgun, að velta fyr­ir­tæk­is­ins flutt­ist frá Valitor sem „hafði tals­verð áhrif á vöxt tekna og við­skipta Valitor á árinu.“

Stefnt að því að ljúka söluferli á árinu

Arion banki ætlar sér að selja Valitor á árinu 2019 og hefur ráðið alþjóð­lega bank­ann Citi til að veita sölu­ráð­gjöf. Í fjár­festa­kynn­ingu bank­ans vegna árs­reikn­ings hans kemur fram að Valitor sé nú flokkað „sem starf­semi til sölu frá og með fjórða árs­fjórð­ungi.“ Þar segir enn fremur að fyr­ir­hugað sölu­ferli Valitor sé komið á næsta stig og stefnt sé að því að mark­aðs­setn­ing hefj­ist á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019. Það þýðir að það mun hefj­ast fyrir mars­lok.

Í árs­reikn­ingi Arion banka segir að sam­kvæmt áætlun sem unnið sé eftir sé „stefnt að því að sölu­ferl­inu verði lokið innan tólf mán­aða tímara­mma sem IFRS gerir kröfur um til að flokka megi eign til sölu. Sölu­ferlið verður lokað.“

Áform um að selja Valitor eru ekki ný af nál­inni. Í fyrra stóð til að aðgreina fyr­ir­tækið frá Arion banka-sam­stæð­unni áður en að bank­inn var skráður á markað í fyrra­vor. Mik­ill vilji var hjá sumum erlendu hlut­höf­um Arion banka að greiða hluta­bréf í Valitor út í formi arðs til hlut­hafa áður en að skrán­ing­unni kæmi.

Eigið fé Valitor Holding var þá bók­fært á um 16,3 millj­arða króna í bók­um Arion banka, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem veittar voru á kynn­ing­ar­fund­un­um. Ráð­gjafar Arion banka á þeim tíma héldu kynn­ingu fyrir líf­eyr­is­sjóði lands­ins þar sem því var haldið fram að virði Valitor Holding væri veru­lega van­metið og að miðað við veltu væri virðið vel yfir 50 millj­arða króna.

Í nýjasta árs­reikn­ingi Arion banka er virði Valitor Holding skráð 15,8 millj­arðar króna, og hefur því lækkað um hálfan millj­arð króna milli ára.

Stærsti samstarfsaðilinn hætti

Fyr­ir­tækið sem Valitor missti úr við­skiptum í fyrra, Stripe, er ekk­ert smá fyr­ir­tæki. Um mitt ár 2015 var til­kynnt að alþjóð­lega stór­fyr­ir­tækið Apple hefði ákveðið að Bret­land yrði fyrsta landið utan Banda­ríkj­anna þar sem boðið verður upp á ApplePay sem greiðslu­leið.

Valitor hf. var valið sem eitt af sex fyr­ir­tækjum á Evr­ópu­mark­aði til að þjón­usta ApplePay. Í frétta­til­kynn­ingu sem Valitor sendi frá sér vegna þessa þann 11. júní 2015 sagði m.a.: „Þessa þjón­ustu mun Valitor veita í nánu sam­starfi við banda­ríska fyr­ir­tækið Stripe sem vinnur m.a. með Twitter og Facebook auk Apple. Frá 1. júlí munu breskir kaup­menn í við­skiptum við Stripe geta þróað stuðn­ing við ApplePay sem greiðslu­máta inn í eigið iOS app. Stripe, með Valitor sem færslu­hirði, er einn af örfáum aðilum sem fá að bjóða breskum kaup­mönnum upp á þessa þjón­ustu í fyrstu lotu. Í kjöl­farið mun öðrum sam­starfs­að­ilum Valitor á breskum mark­aði einnig standa til boða að taka við greiðslum með ApplePay.“

Kjarninn greindi frá því í mars í fyrra að búið væri að til­kynna Valitor um vænt­an­legar breyt­ingar á þessu við­skipta­sam­bandi og Viðar Þor­kels­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, stað­festi það. „Stripe hafa til­kynnt okkur að við­skipta­sam­bandið við okkur muni breyt­ast og þró­ast. Þegar lengra líður frá þá munu við­skiptin minnka.“

Í afkomutil­kynn­ing­unni sem send var út í morgun segir að Stripe, stærsti sam­starfs­að­ili Valitor, hafi farið að sinna sinni færslu­hirð­ing­ar­þjón­ustu sjálfur í júlí og þar með flutt veltu sína frá Valitor. „Þessi nið­ur­staða hafði tals­verð áhrif á vöxt tekna og við­skipta Valitor á árinu. Valitor stendur vel að vígi á mjög áhuga­verðum mörk­uðum lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja í Bret­landi og á Írlandi sem og varð­andi við­skipti við stærri versl­ana­keðjur í Evrópu.“

Viðar segir í til­kynn­ing­unni að þrátt fyrir tap­rekstur hafi nið­ur­staða árs­ins verið umfram áætl­anir og að fjár­hags­staða Valitor sé sterk. Heild­ar­velta fyr­ir­tæk­is­ins var 21,4 millj­arðar króna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár