Framtíð kapítalisma sem efnahagskerfis ekki björt frammi fyrir áskorunum nútímans

Ari Trausti Guð­munds­son frá­far­andi þing­maður VG seg­ist verja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur „sem fram­sækna á mörgum sviðum“ þótt honum sjálfum, sem sós­í­alista, þyki margt ógert til að ná auknum jöfn­uði og jafn­rétti.

Ari Trausti Guðmundsson þingmaður VG í Suðurkjördæmi.
Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður VG í Suð­ur­kjör­dæmi. Mynd: Bára Huld Beck

„Alþingi er afar mik­il­væg stofnun og þar vanda menn sig oftar en ekki. Lyk­ill­inn þar er hlut­lægni ásamt virð­ing fyrir stað­reyndum,“ segir Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður Vinstri grænna. Hann er einn af þeim all­nokkru sem ljóst er að munu hverfa af þingi núna í lok kjör­tíma­bils, en Kjarninn ákvað að heyra í nokkrum frá­far­andi þing­mönnum og fá sýn þeirra á kjör­tíma­bilið og stöð­una í stjórn­málum núna í aðdrag­anda kosn­inga.

Ari Trausti var lands­þekktur jarð­vís­inda­maður áður en hann var kjör­inn á þing fyrir VG í Suð­ur­kjör­dæmi árið 2016. Hann segir að þegar hann kom fyrst til starfa við Aust­ur­völl hafi hann talið sig vita tölu­vert mikið um stjórn­mál og starfs­hætti þings­ins, en það hafi þó tekið hann eitt til tvö ár að kom­ast vel inn í starfið.

„Það kom mér ekki á óvart en vinnu­á­lagið gerði það að sumu leyti. Vinnu­samur og vand­vikur þing­maður vinnur mjög langar vinnu­vikur og hléin eru götuð með fundum og verk­efnum. Það er meira að segja hringt í mann eldsnemma morg­uns – kannski ein­hver áhuga­mað­ur­inn um orku­mál eða sorp­förgun. Og alls konar per­sónu­legar beiðnir detta inn sem þing­maður getur ekki leyst sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum og þing­sköpum nema í fáum til­vikum,“ segir Ari Trausti, í skrif­legu svari sem hann veitti Kjarn­anum.

Hann segir það eina sem far­ald­ur­inn hafi létt á varð­aði þing­störfin hafi verið ferða­lög á vegum Alþingis. „Þau eru raunar langoft­ast stutt og snagg­ara­leg og lang­mest sam­suða úr fundum. Margt annað, fundir og þing­mál, bara jókst að vöxtum,“ segir Ari Trausti.

Ari Trausti segir að góð vinna sé unnin í þing­inu. „Ég minni oft á að um það bil 2/3 þing­mála sem koma til afgreiðslu líða í gegn eftir mikla vinnu „á grænu“, það er án mót­at­kvæða eða með öllum greiddum atkvæðum.“ Einnig nefnir hann „gríð­ar­lega gott og reynt starfs­fólk Alþingis sem gegnir höf­uð­hlut­verki í sam­fé­lags­dramanu sem springur þar út.“

Meira gefandi að vera í stjórn en stjórnarandstöðu

Ari Trausti próf­aði að vera í stjórn­ar­and­stöðu frá 2016 til 2017 er rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var við völd og nú hefur hann verið þing­maður í stjórn­ar­meiri­hluta und­an­farin fjögur ár. Þetta segir hann ólíkar stöður og bætir við að það sé „ólíkt meira gef­andi að vera hluti af lög­gjaf­anum en ekki sífellt með gagn­rýn­is­gler­augun á nef­inu í aðhalds- og eft­ir­lits­skyni.“

Hann seg­ist verja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur „sem fram­sækna á mörgum sviðum enda þótt sumt hafi verið látið kyrrt liggja eða ekki náð­ist not­hæft sam­komu­lag um.“

[adspot]

„Í sam­steypu­stjórn­ar­landi eru mála­miðl­anir lyk­ill­inn að sæmi­lega stöð­ugu, póli­tísku ástandi. En ver­andi sós­í­alisti tel ég margt eftir að gera til að ná nægum jöfn­uði og jafn­rétti til að Ísland telj­ist nor­rænt þing­ræðis- og vel­ferð­ar­ríki með borg­ara­legt lýð­ræði og kap­ít­al­ískt hag­kerfi. Sem efna­hags­kerfi raunar á kap­ít­al­ism­inn sér ekki bjarta fram­tíð frammi fyrir vax­andi ójöfn­uði og lofts­lags­breyt­ingum,“ segir Ari Trausti og bætir við að breið­ara lýð­ræði og hringrás­ar­hag­kerfi með sam­fé­lags­legri deil­ingu gæða sé að teikn­ast upp um leið og öfga­hyggja og popúl­ismi sé að efl­ast.

„Næstu ára­tugir verða mjög spenn­andi og afdrifa­ríkir í póli­tískum skiln­ingi,“ segir Ari Trausti.

Bjartir tímar í Suðurkjördæmi

Ari Trausti segir að kjör­dæmið sem hann situr á þingi fyrir, Suð­ur­kjör­dæmi, sé ekki bara stórt heldur sé það í raun þrjú býsna ólík svæði, Suð­ur­nesin, meg­in­hluti Suð­ur­lands með Eyjum og svo svæðið austan Mýr­dals­sands alla leið til Hafnar.

„Lands­byggða­þing­maður verður að reyna að sinna mál­efnum kjör­dæm­is­ins en hann er líka þing­maður allra ann­arra kjör­dæma. Það fer eftir þing­málum,“ segir Ari Trausti og seg­ist geta nefnt mörg mál sem tek­ist hafi að þoka í rétta átt í kjör­dæm­inu, stundum með sam­stíga átaki allra tíu þing­manna þess.

Hann seg­ist þess viss að Suð­ur­kjör­dæmi eigi ágæta fram­tíð í vændum, „tak­ist vel til með nýsköpun, mennt­unar- og búsetu­skil­yrði, sam­göngur og skil­grein­ingar á þol­mörkum nátt­úru og sam­fé­laga á svæð­inu“ og bætir við að sjálf­bærni setji skorður við ójafn­vægi og stans­lausum vexti.“

Óskrifaðir kaflar taka við

Ari Trausti er elsti núver­andi þing­mað­ur­inn og seg­ist oft spurður að því hvað taki við núna eftir þing­mennsk­una. Hann segir vinnu­þrekið gott og skrokk­inn og koll­inn vel í lagi.

„Ég held áfram þar sem frá var horfið 2016, bæti við bókum, tvær að koma úr prentun þessa dag­ana, fræði fólk í fjöl­miðlum og fyr­ir­lestrum, stunda leið­sögn úti við og mín jarð­vís­indi eftir því sem mig langar til og sinni fjöl­skyld­unni nær og oftar en ég náði að gera meðan á þing­set­unni stóð. Síðast ekki síst kalla fjöllin, jökl­arnir og heim­skauta­slóðir á mig, svo ég tali nú ekki um borgir og ferða­lönd, og þá einkum og sér í lagi fyrir okkur hjónin saman. Mitt líf hefur verið kafla­skipt alla tíð og þegar þessum merka og lit­ríka kafla í sam­fé­lags­þjón­ustu er lokið taka við þeir óskrif­uðu,“ segir Ari Trausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár