Enginn grunaður í Móabarðsmálunum

Vís­bend­ingar vegna tveggja atvika við Móabarð í Hafn­ar­firði í febr­úar hafa engu skilað, að sögn lög­reglu. Enginn hefur verið hand­tek­inn eða fengið rétt­ar­stöðu grun­aðs manns. Rannsókn stendur enn yfir.

Miðbær Hafnarfjarðar.
Miðbær Hafn­ar­fjarðar. Mynd: Wiki Commons

Enginn hefur verið hand­tek­inn eða fengið rétt­ar­stöðu grun­aðs manns í tveimur málum sem til­kynnt var um í Móabarði í Hafn­ar­firði með viku milli­bili í febr­úar. Árni Þór Sig­mund­ar­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­brog­ar­svæð­inu, segir í sam­tali við Kjarnann að rann­sókn máls­ins standi enn yfir. Ábend­ingar hafi þó engu skilað og, eins og áður segir, eng­inn hafi fengið rétt­ar­stöðu grun­aðs manns eða sak­born­ings.

„Við höldum áfram rann­sókn­inni, tökum á móti ábend­ingum og svo eru ákveðin atriði sem við erum að rann­saka þess utan,” segir Árni Þór. Tækni­deild lög­reglu var send á stað­inn í bæði skiptin. Konan er ekki alvar­lega slösuð.

Tvisvar lýst eftir svartklæddum manni

Vísir greindi frá því 18. febr­úar að lög­regla hafi verið kölluð út að íbúð­ar­húsi við Móabarð í Hafn­ar­firði, mánu­dags­morg­un­inn 15. febr­úar. Kona til­kynnti um alvar­lega lík­ams­árás á heim­ili sínu hvar hún hafði verið ein heima með ungt barn. Samkvæmt heim­ildum Vísis villti mað­ur­inn á sér heim­ildir og þótt­ist vera að lesa af mælum orku­fyr­ir­tækis.

Lög­reglan gaf út til­kynn­ingu í kjöl­far fréttar Vísis þar sem lýst var eftir föl­leitum karl­manni, á aldr­inum 35 til 45 ára, um 180 senti­metrar á hæð, með svarta húfu, svarta hanska og í svartri úlpu. Lýst var eftir vitnum og veg­far­endum sem höfðu orðið manns­ins varir. Leitin skil­aði engum hald­bærum vís­bend­ingum.

Viku síðar, klukkan átta á sunnu­dags­kvöld­inu 21. febr­úar, fékk lög­regla aftur til­kynn­ingu um lík­ams­árás á sama heim­ili og ítrek­aði lýs­ingu sína í fjöl­miðlum í kjöl­farið. Grunur lék á að sami maður hafi komið aftur og veist á ný að kon­unni.

Frásagnir af vígbúnaði íbúa við Móabarð

Greint var frá því í kjöl­far seinni til­kynn­ing­ar­innar að kon­unni hafi verið komið fyrir á öruggum stað og að leit lög­reglu að mann­inum standi enn yfir. Í kjöl­farið fjöll­uðu fjöl­miðlar um að íbúar við Móabarð væru teknir að víg­bú­ast með hagla­byssum og bar­eflum og gagn­rýndu lög­reglu fyrir skort á upp­lýs­ingum. Lög­reglan sendi þá út yfir­lýs­ingu um að ekki væri ástæða til að ótt­ast. Ef hætta verði talin á ferðum grípi lög­regla til aðgerða og láti fólk vita. Rannsókn lög­reglu stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár